Víkurfréttir - 10.07.2014, Síða 10
fimmtudagurinn 10. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
Rétt tæpir þrír mánuðir eru síðan Hljómahöllin var
opnuð. Víkurfréttir tóku púlsinn
á Tómasi Young, framvæmda-
stjóra, en nóg hefur verið að gera
hjá honum og öðru starfsfólki
hallarinnar.
Viðtökur fram úr væntingum
„Ég er ánægðastur með útlit safns-
ins í heild. Þegar fólk kemur hingað
býst það við rosalega litlu en þegar
það kemur inn segir það bara
VÁ!“ segir Tómas og að ástæðan
sé sú að fólki finnist safnið miklu
stærra og viðameira en það átti von
á. Safnið hafi í raun
farið fram úr vænt-
ingum að mati gesta
og það sé ánægjuefni.
„Það bera allir safninu
söguna vel. Viðtökur,
t.d. frá Páli Óskari og
öðru tónlistarfólki,
hafa verið frábærar
og margir gefið muni.
Ég fékk símtal nýverið
frá einum sem á bar í
Reykjavík og var búinn
að sanka að sér plakötum og hljóð-
færum sem tónlistarmenn höfðu
gefið honum. Hann sagði einfald-
lega: Þið eruð búnir að opna rokk-
safn. Ég er búinn að geyma hérna
dót fyrir ykkur í nokkur ár,“ segir
Tómas og brosir.
Flestir gesta í stórum hópum
Þúsundir gesta hafa séð safnið, þar
af langflestir í hópum. „Í síðustu
viku byrjaði t.d. einn dagurinn
á því að það komu fjórar rútur
með 200 eldri borgurum. Safnið
er mjög vinsælt og hefur náð fót-
festu hjá vorferðum, hópferðum
og óvissuferðum hjá fyrirtækjum,
skólum og klúbbum,“ segir Tómas.
Ótrúlegt sé hversu mikið af fyrir-
spurnum séu með að koma með
hópa. Það hafi í raun komið mest
á óvart. „Að vissu leyti er það fínt
vegna þess að því fylgir visst áreiti
og þá lærum við sem starfsmenn
vel á húsið, safnið og hvernig við
gerum hlutina. Þetta tekur allt
tíma. Við höfum fengið rými til að
anda inni á milli og enn verið að
klára smáatriði. Það getur tekið allt
að ár.“ Þá hefur ásókn verið mikil
í sali hússins og Tómas segir að
hann og starfsfólkið hafi vart haft
undan. „Ég hef fengið fyrirspurnir
frá starfsfólki mínu um hvort ég
sé að ganga fram af því, sérstak-
lega í maí. Ég bjóst til dæmis ekki
við öllum þessum hópum í maí
og margir þeirra vildu fá súpu eða
aðrar veitingar í hádeginu og aðrir
hópar vildu hafa barinn opinn,“
segir Tómas.
Vill fleiri erlenda ferðamenn
Tómas segir helstu áskorun sína
vera að kynna safnið fyrir út-
lendingum. „Reykjanesbær er ekki
áfangastaður og við viljum koma
Rokksafninu á kortið þannig að
það verði viðkomustaður áður en
fólk fer heim á leið. Það gerum við
með því að koma okkur inn í ferða-
plön hjá fólki og það gerist ekki
hratt.“ Hann segir að starfsmenn
Atlantic, sem sjá um skemmti-
ferðaskip sem koma hingað, hafi
komið á opnunina og verið mjög
spenntir. „Þeir sögðust pottþétt
geta selt aðgang að safninu en þó
ekki fyrr en árið 2015. Fólk sem
kemur hingað með skemmtiferða-
skipi er löngu búið að plana sína
ferð. Þannig tekur tíma að komast
inn hjá ferðaþjónustuaðilunum. Ég
bjóst svo sem ekki við að það yrði
hangið á hurðarhúninum en við
höfum verið að auglýsa í stórum
ferðablöðum og svo erum við að
skoða netmarkaðssetningu líka.
Við viljum planta fræjunum áður
en fólk kemur til Íslands,“ segir
Tómas en bætir við að erlendir
gestir hafi þó komið í safnið sem
ýmist hafi fundið eitthvað um það
á netinu eða séð skiltið úti á horni.
„Kannski hafa þeir séð bæklingana
og jafnvel eru hótelin á svæðinu að
minnast á okkur.“
■■ Þriggja mánaða Hljómahöll fer vel af stað. Rokksafnið vinsælast hjá hópum:
Við viljum
planta fræj-
unum áður en
fólk kemur til
Íslands
Það bera
allir safninu
söguna vel.
Viðtökur hafa
verið frábærar
og margir gefið
muni
-viðtal pósturX vf@vf.is
VÁ!
Starfsmannafélag Suðurnesja
Kynning og kosning á nýjum kjarasamningi Starfsmannafélags
Suðurnesja við Samband íslenskra sveitarfélaga verður haldin
að Krossmóa 4a, 5. hæð, 260 Reykjanesbæ, þann 16. júlí n.k.,
kl. 17. Þeir sem ekki hafa tök á að koma á kynninguna geta
komið á skrifstofu félagsins til 24. júlí á opnunartíma og kosið.
Minnum félagsmenn á að kynna sér
samninginn á heimasíðu félagsins STFS.is.