Víkurfréttir - 10.07.2014, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 10. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Hin 22 ára gamla Keflavíkurmær Elva Björk Sigurðardóttir
gerir ýmislegt sér til dundurs. Hún er þessa dagana í fæðing-
arorlofi en hún á fjögurra mánaða gamlan son, Daníel Aron,
ásamt kærasta sínum Róberti Þór. Við fengum Elvu til þess
að segja okkur hvað hún gerir sér til afþreyingar þegar hún á
tíma aflögu en þar kennir ýmissa grasa.
Bókin
Ég er að lesa bókina Divergent um þessar
mundir. Ég fjárfesti í bókinni þegar ég var stödd
erlendis nú fyrir skömmu. Ég hafði ekki mjög
miklar væntingar til bókarinnar en hún hefur
komið mér skemmti-
lega á óvart. Það er
rosalega erfitt að segja
frá henni í stuttu máli
en svona í grófum
dráttum er hún um
stelpu sem þarf að
velja á milli flokka,
hvort hún vilji halda
áfram að lifa sínu lífi
með sínum flokki, eða velja annan flokk og
þar af leiðandi byrja nýtt líf á eigin fótum.
Ég er allavegana mjög spennt að sjá bíó-
myndina, en hún kom út núna í mars. Bókin
Grimmd eftir Stefán Mána er
svo næst á dagskrá hjá mér.
Tónlistin
Ég er þessi dæmigerða alæta
þegar kemur að tónlist. Ég er
mikið fyrir svona „feel good“
tónlist og fær platan Wait for
Fate með Jóni Jónssyni oft að
rúlla á mínu heimili. Eyjalagið
með honum er einmitt algjört heilalím. Íslensk tónlist er í miklu uppá-
haldi hjá mér og hlusta ég rosalega mikið á hana ásamt því að hlusta
mikið á Beyonce, John Legend og Kanye West. Svo á ég líka einn
fjögurra mánaða strák og er ég með lög eins og Hafið bláa hafið, Maís-
tjarnan og Úmbarassa stanslaust á heilanum, enda eru þau sungin oft á
dag með tilheyrandi fagnaðarlátum.
Sjónvarpsþátturinn
Undanfarið hef ég verið að horfa á
Scandal þættina en ég er alveg að
elska þá. Þeir fjalla um spillinguna
í stjórnmálum og lögfræðinga sem
vinna að allskyns málum. Ég er
mikið fyrir þætti af þessu tagi, sem
sagt með mikilli spennu og drama.
Grínþættirnir How I met your
mother og Friends eru líka ofar-
lega á listanum, en þeir eru reyndar
meira svona þættir fyrir svefninn,
heldur en þættir sem maður fær sér popp og kók yfir. Þegar á heildina
er litið eru samt alltaf vinkonur mínar í Desperate Housewives og vinur
minn Gabriel Macht í Suits í uppáhaldi hjá mér.
-afþreying
póstur X eythor@vf.is
Fær sér popp og
kók yfir Scandal
Listamaðurinn Guðmundir Rúnar Lúðvíksson tekur um
þessar mundir þátt í áhugaverðu
verkefni sem fram fer í Bandaríkj-
unum. Í haust verður opnuð sýning
á yfir 1000 verkum frá 35 löndum
sem unnin eru á/með hjólkoppa
sem listamennirnir hafa fundið á
förnum vegi í sínu heimalandi og
breytt þeim í listaverk. Sýningin
heitir Second Time Around: The
Hubcap as Art og er sýnd í Museum
of the Shenandoah Valley Winc-
hester USA.
Í samtali við Víkurfréttir segir
Guðmundur Rúnar að hann telji
að þessi sýning og verkin þar gætu
kveikt neistann hjá einhverjum til
frekari sköpunar og opnað augu
margra með hvað hægt er að gera
skemmtilega hluti ef hugurinn er
opinn og jákvæður. Meðfylgjandi
eru myndir af nokkrum hjól-
koppum sem verða á sýningunni.
-mannlíf pósturX vf@vf.is
■■ Sýning á 1000 verkum frá 35 löndum:
Gerir listaverk úr hjólkoppum
www.vf.is
83% LESTUR
+
„Ég vinn við það að auka upplifun fólks sem hingað kemur. Ég bæti
kreminu á kökuna,“ segir Bjartur Guðmundsson, gestgjafi í Bláa
lóninu. Starf gestgjafa var á sett á laggirnar í Bláa lóninu fyrir tveimur
árum. Í sumar starfa níu manns í fullu starfi á tólf tíma vöktum við
að hafa ofan fyrir gestum lónsins. Meðal þess sem Bjartur og félagar
gera er að vera til staðar, mæta þörfum fólks og komast að því hverjar
eftirvæntingar þess eru. „Svo leitum við leiða til að finna út úr því.
Við finnum hvað er í boði og bendum á möguleika. Við erum staðsett
við innganginn og mætum gestum brosandi og bjóðum þá velkomna.
Spyrjum þá hvort þeir ætli það ofan í eða finnum út hvort einhver við-
burður sé í gangi, s.s. brúðkaupsafmæli, stórafmæli eða annað,“ segir
Bjartur.
Frí myndataka
Þá er einnig boðið upp á fría þjón-
ustu við að taka myndir af gestum
með spjaldtölvum og senda þeim
í tölvupósti. „Það er ótrúlegt hvað
þessi einfalda þjónusta vekur
mikla ánægju og hefur borið góð-
an ávöxt. Svo erum við í fræðslu,
bjóðum upp á gönguferðir um
lónið og tölum út frá jarðfræðinni
og sögunni, segjum álfasögur og
skemmtisögur,“ segir Bjartur, sem
er menntaður er leikari og hann
bætir við að aðrir gestgjafar séu
sviðslistamenn og dansarar. „Aðal
málið er þó að við séum opin og
eigum auðvelt með að eiga sam-
skipti við fólk. Þetta er sennilega
mest gefandi vinna sem ég hef
verið í. Í starfssamningi segir að
ég verði að brosa allan daginn og
það er magnað hvað bros og já-
kvæðni er eitthvað sem er alveg
hægt að æfa sig í. Viðbrögð hafa
verið gríðarlega góð, maður finnur
það í viðmóti fólks og það verður
glaðara og maður hefur bætt dag
viðkomandi á einfaldan hátt,“ segir
Bjartur í viðtali í Sjónvarpi Víkurf-
rétta.
Golfkúlu slegið á milli heimsálfa
Í nýjasta þættinum verður einn-
ig fjallað um ferðaþjónustuna
á Reykjanesi og skoðaðar verðar
nokkrar af náttúruperlum á
svæðinu. Rætt verður við Þuríði
Aradóttur, verkefnastjóra hjá
Markaðsstofu Reykjaness, sem
segir að ferðaþjónusta á svæðinu
sé í miklum blóma en hægt væri
að gera enn betur með samvinnu
ferðaþjónustuaðila. Eggert Sól-
berg Jónsson, verkefnastjóra hjá
Heklunni, fræðir okkur um verk-
efnið Jarðvang, sem miðar að því
að bæta aðgengi, merkja staði og
gefa út efni til upplýsinga fyrir þá
sem vilja ferðast um svæðið. Þá
segir ferðamálafrömuðurinn og
leiðsögumaðurinn Helga Ingi-
mundardóttir okkur frá því að ef
Leifur heppni hefði mætt vingjarn-
legra viðmóti indíána þegar hann
fann Ameríku, þá væri líklega töluð
íslenska um alla Norður-Ameríku
í dag. Einnig mun Steinn Erlings-
son slá golfkúlu á milli heimsálfa
við hina margfrægu og samnefndu
brú.
■■ Ferðamál og þjónusta í nýjasta sjónvarpsþætti Víkurfrétta:
Upplifun gesta í öndvegi