Víkurfréttir - 17.07.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 17. júlí 2014 • 28. tÖluBlaÐ • 35. Árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Tómas segir að hátíðin hafi heppnastmun betur en í fyrra, þó svo að allt hafi
nánast gengið upp þá líka. „Nú var bara
mun meira af fólki og tónlistardagskráin
var stærri.“
Tómas segir tónleika Portishead hafa verið
hápunkt hátíðarinnar, en hann og starfs-
fólk ATP fengu sérstakar þakkir frá hljóm-
sveitinni fyrir faglega umgjörð.
„Portishead hélt hérna ótrúlega tónleika,
þannig að eftir var tekið. Þau voru í miklu
stuði og það er gaman að segja frá því að við
fengum þakkarbréf frá þeim. Stjórnendur
ATP á Englandi segja að aldrei hafi borist
þakkarbréf frá Portishead áður þrátt fyrir
að sveitin hafi spilað fjórum sinnum á ATP.
Við hoppuðum upp úr sætum okkar þegar
bréfið barst.“
Tómas ætlar að halda hátíðina aftur að ári
og vonast hann til þess að ATP verði hér
áfram um ókomna tíð. „Þetta verður a.m.k.
á næsta ári en við höldum bara áfram eins
lengi og þetta gengur vel,“ sagði tónleika-
haldarinn að lokum.
„Maður getur hreinlega labbað heim til sín af
hátíðinni,“ sagði Brynjar Leifsson gítarleikari
Of Monsters And Men þegar blaðamaður
hitti hann við Atlantic Studios. „Ég hef aldrei
komist á þessa hátíð áður en alltaf fundist
hún spennandi. Það er snilld að komast núna.
Ég held að þetta sé bara veisla fyrir unnendur
góðrar tónlistar á Suðurnesjum. Það er geð-
veikt að koma inn í hús eins og þetta (Atlantic
Studios) og bara gaman að vera hérna uppi
á velli.“
Veisla fyrir unnendur góðrar tónlistar
Það var rífandi stemning á Ásbrú um helgina þar sem ATP tónlistarhátíðin fór fram. Mikill fjöldi tónlistarunnenda var samankominn á gamla
varnarsvæðinu til þess að hlýða á um 30 innlend og erlend tónlistaratriði. Tónleikar bresku hljómsveitarinnar Portishead þóttu einstaklega
vel heppnaðir og höfðu tónleikagestir á orði að erfitt yrði að slá bresku hljómsveitinni við á komandi hátíðum. Einnig vakti bandaríska hljóm-
sveitin Interpol mikla lukku. Tómas Young hafði yfirumsjón yfir hátíðinni sem haldin var annað árið í röð á Ásbrú. Hann segist afar sáttur við
hátíðina enda hafi nánast ekkert komið upp sem kallast geti neikvætt. Allir hafi skemmt sér vel og allt farið vel fram. „Ég er mjög sáttur en
þetta gekk nánast eins og í sögu,“ segir Tómas en um 4000 manns voru á hátíðinni þegar mest lét.
Spila fram á
sjötugsaldur
Í Víkurfréttum vikunnar er m.a. veg-
legt viðtal við Suðurnesjamennina Sig-
urð Guðmundsson og Guðm. Kristinn
Jónsson, sem jafnan eru kenndir við
hljómsveitina Hjálma. Í viðtalinu fara
þeir félagar yfir tíu ára feril hljóm-
sveitarinnar og rifja m.a. upp hvernig
Hljómar urðu til yfir Villa-borgara í
hljóðveri Geimsteins. Hjálmar ætla að
halda vel upp á afmælið í ár og blása til
glæsilegra tónleika í haust. Eins verða
þeir Siggi og Kiddi í aðalhlutverki í
Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld en þar
taka þeir lagið ásamt Þorsteini söngv-
ara Hjálma ásamt góðu spjalli. Þeir
hafa átt farsælt samstarf með hinum
ýmsu hljómsveitum og sjá jafnvel
fram á það að vera enn að sjötugsaldri
líkt og Rolling Stones.