Víkurfréttir - 14.08.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 14. ágúst 2014 • 31 . tÖLuBLaÐ • 35. árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Alþrif á bifreið að innan sem utan
Allir bílar
sem panta tíma
í ágúst borga
Sími 7827600
TILBOÐ!
4.950 kr.
Makrílbáturinn Siggi Gísla EA 255 strandaði ístórgrýttri fjöru við Keflavíkurhöfn á þriðja
tímanum í gærdag. Hafnsögubáturinn Auðunn
náði bátnum af strandstað skömmu síðar.
Sigga Gísla EA rak frá bryggju í Keflavík og upp í stór-
grýtta fjöruna. Enginn var um borð í bátnum þegar
þetta gerðist. Nokkrir makrílbátar voru á veiðum á
þessum slóðum en engan grunaði að báturinn væri
mannlaus og á leið upp í fjöru.
Lögregla kom fljótlega á staðinn og fór lögreglumaður
um borð í bátinn við annan mann. Línu var skotið
frá nálægum makrílbát og í land og taug dregin yfir í
Sigga Gísla EA.
Auðunn kom nokkru síðar á staðinn og var taug kast-
að þaðan yfir í hinn strandaða bát. Báturinn var svo
dreginn af strandstað en þá slitnaði dráttartaugin og
Sigga Gísla EA rak aftur upp í grýtta fjöruna. Fljótlega
gekk að koma taug að nýju í hafnsögubátinn og náði
hann Sigga Gísla EA aftur í tog. Ljóst er að báturinn er
nokkuð skemmdur og leki kom að honum.
Myndskeið frá björguninni í gærdag má sjá á vef
Víkurfrétta, vf.is.
Mannlausan
makrílbát
rak upp í fjöru
Frá björgunaraðgerðum í stórgrýttri fjörunni um miðjan dag í gær.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Keflvíkingar leika til úrslita í bikar-keppni KSÍ í tíunda skipti síðan
keppnin var sett á fót árið 1960 en
fjórum sinnum hafa þeir fagnað sigri
í keppninni. Það var gullaldarlið Kefl-
víkinga sem reið á vaðið árið 1975 og
landaði fyrsta bikartitlinum til Bítla-
bæjarins eftir sigur á frábæru Skagaliði.
Það var svo 22 árum síðar, árið 1997 að gló-
kollarnir undir stjórn Sigga Björgvins og
Gunna Odds stálu bikarnum af gríðarsterku
liði Eyjamanna eftir maraþon rimmu þar
sem leika þurfti tvisvar, framlengja og klára
dæmið með vítaspyrnukeppni.
Árið 2004 fögnuðu Keflvíkingar aftur sigri í
bikarnum að þessu sinni undir stjórn Milan
Stefáns Jankovic, en þá vannst öruggur 3-0
sigur gegn KA-mönnum.
Það var svo árið 2006 að liðin sem kljást á
laugardaginn, Keflavík og KR, mættust í
spennandi leik. Þar stóðu Keflvíkingar uppi
sem sigurvegarar með tveimur mörkum gegn
engu. Þessi lið eiga sér nokkra sögu og má
segja að sérstakur rígur hafi myndast á milli
félaganna í fótboltanum.
Í veglegri umfjöllun í blaðinu í dag rifjum
við upp sæta sigra Keflvíkinga í bikarnum í
gegnum tíðina og tökum gamlar bikarhetjur
tali. Leikurinn sjálfur er á laugardaginn og
hefst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli.
Kemur sá fimmti
til Keflavíkur
á laugardaginn?
KEFLAVÍK MÆTIR KR Í BIKARNUM