Víkurfréttir - 21.08.2014, Síða 10
fimmtudagurinn 21. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
Sandra Valsdóttir ætlar að heiðra minningu Bryndísar
Huldu dóttur sinnar með því að
hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu
þann 23. ágúst næstkomandi.
Sandra ætlar að hlaupa 10 km
ásamt vinkonum sínum en þær
hlaupa fyrir Neistann sem eru
hagsmunafélag hjartveikra barna
og aðstandendur
þeirra.
Sandra hleypur í
minningu dóttur
s i n n ar, Br y n -
d í s a r Hu l d u ,
sem fæddist 26.
nóvember 2012
og lést þann 22.
j anú ar 2 0 1 4 .
Bryndís Hulda
fæddist aðeins
með hálft hjarta. Eftir að Bryndís
fæddist tóku við aðgerðir í Svíþjóð,
sem hefðu átt að vera 3-4 í heildina
á þriggja ára tímabili. Svo fór ekki
og sífellt tóku ný áföll við. Fjórða
aukaaðgerðin gekk ekki sem skyldi
og Bryndísi var haldið sofandi í
þrjár vikur.
Eftir það tóku við rúmlega tveir
mánuðir í viðbót á gjörgæslu í Sví-
þjóð og fjölmargar aðgerðir. „Þetta
var orðið kapphlaup við tímann
og því miður fór það svo að litla
hjartað gafst upp þann 22 janúar.
Í gegnum allar okkar þrekraunir
hafa margir, bæði félög og ein-
staklingar staðið við bakið á okkur.
Bryndísar er sárt saknað af öllum
þeim sem náðu að kynnast henni,“
segir Sandra.
Þeir sem vilja styrkja
Söndru og Neistann
geta lagt málefninu lið
með því að fara á:
www.hlaupastyrkur.
is/einstaklingar/kepp-
andi?cid=20960
Fjölmargir Suðurnesjamenn ætla sér að hlaupa til góðs
þegar Reykjavíkurmaraþonið
fer fram þann 23. ágúst næst-
komandi. Þeirra á meðal er hópur
sem hleypur fyrir Keflvíkinginn
Bjarnheiði Hannesdóttur sem
þjáist af heilaskaða. Frænkur
hennar þær Arna Björg Jónas-
dóttir og Sigrún Halldórsdóttir
ætla að hlaupa fyrir Styrktarhóp
Heiðu ásamt fjölda ættingja og
vina Heiðu. Heiða fékk hjarta-
stopp í lok árs 2012 og í kjölfarið
hlaut hún miklar heilaskemmdir
vegna súrefnisskorts. Heiða var
á gjörgæslu og á hjartadeild og í
kjölfarið dvaldi hún á Grensás-
deild í tæpt ár. Heiða er algjörlega
ósjálfbjarga, bundin við hjóla-
stól og er sjón hennar og mál afar
skert. Eftir að Heiða fór af Grens-
ásdeild hefur fjölskyldan hennar
hugsað um hana en Heiða á þrjú
ung börn og sambýlismann.
„Við stöndum sterk saman“
Tilgangur Hlaupahóps Heiðu er
að safna nægu fjármagni svo að
Heiða komist í stofnfrumumeð-
ferð erlendis og að styðja við bakið
á henni og fjölskyldu hennar.
Sigrún segist vera búin að æfa í
tæpa tvo mánuði fyrir hlaupið nú
þegar. Hún er í hlaupahóp þar sem
nokkrar hressar hlaupaskvísur hitt-
ast snemma á morgnana í Laugar-
dalnum tvisvar í viku. Sigrún segir
að allnokkrir úr fjölskyldunni
ætli sér að hlaupa auk hennar og
Örnu. „Við stöndum sterk saman,
þeir sem hlaupa ekki styrkja með
öðrum hætti svo sem fjárstuðningi
eða öðru slíku. Svo er skemmti-
legt að sjá hvað við stórfjölskyldan
erum dugleg að minna á hlaupa-
hópinn okkar #teamHeiða á öllum
samfélagsmiðlum.“ Unnusti Sig-
rúnar er grínistinn Pétur Jóhann
Sigfússon en hann lét sig hafa það
að hlaupa 21 km í hlaupinu í fyrra.
„Fyrst hann kláraði það með sóma
þá vænti ég þess að ég komist einn-
ig í mark! Mér fannst ekkert annað
koma til greina en að hlaupa 21
km í ár til stuðnings elsku Heiðu
frænku minnar og er hún mér
ávallt efst í huga á erfiðum hlaupa-
æfingum,“ segir Sigrún sem aldrei
hafði hlaupið lengri vegalengd en
3 km áður en hún ákvað að slá til
núna.
Arna hafði e inungis
farið í Latabæjarhlaupið
með dóttur sinni áður
en ákvörðunin var tekin
um að taka þátt í ár. Hún
ætlaði sér upphaflega að
hlaupa hálft maraþon
enda taldi hún það lítið
mál. „Ég hef aldrei verið
mikill hlaupagarpur og
ætlaði sko aldeilis að
skella mér í hálft mara-
þon, en sá f ljótlega
að það væri kannski
heldur mikil bjartsýni
miðað við skamman
undirbúning, þann-
ig að ég ætla að hlusta
á líkamann og fara 10
km,“ segir Arna. Hún
segist stundum fá lán-
aðan hund þegar hún
er að æfa. „Henni
finnst mjög gaman
að hlaupa og vefja
bandinu í kringum
mig þegar ég stoppa
sem olli því t.d. að ég
flaug yfir gangbraut
um daginn. Kannski
er bara málið að vera ekk-
ert að stoppa?,“ segir Arna hress í
bragði. Hún vonast til þess að sem
flestir verði með í hlaupinu. „Ég
treysti svo á að hinir verði duglegir
á hliðarlínunni og í áheitunum.“
Þær frænkur biðla til allra Suður-
nesjamanna að standa saman og
leggja málefninu lið. „Margt smátt
gerir eitt stórt. Allir eru svo hjartan-
lega velkomnir í að hlaupa með
okkur fyrir Heiðu og fjölskyldu.
Það verður mikið húllumhæ í
kringum hlaupahópinn okkar.
Bæði verður gaman fyrir
alla að taka þátt sem og það skilur
eftir svo gott í hjartanu,“ segir Sig-
rún að lokum.
Hlaupahópur Heiðu, eða Team
Heiða, hefur nú safnað mestu
af öllum þeim hópum sem ætla
að láta gott af sér leiða. Alls hafa
safnast um 2,2 milljón krónur
þegar þetta er skrifað en leggja má
málefninu lið á heimasíðu hlaup-
astyrks: Hlaupastyrkur Team
Heiða.
Fjölskyldan stendur þétt við bakið á Heiðu
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Mæðgurnar Helga Sigurðardóttir og
Sigrún Halldórs hlaupa fyrir Heiðu.
Arna með hlaupafélaga sínum.
Heiðrar minningu
dóttur sinnar
Gildi Sporthússins eru meðal annars snyrtimennska, hreinlæti og hátt þjónustustig.
Starfið felst meðal annars í ræstingum, t.a.m. karlaklefa, og samstarfi við kvenkyns
samstarfsmann við ýmsar ræstingar í stöðinni ásamt daglegu eftirliti með tækjabúnaði og
húsnæði stöðvarinnar. Auk þess þarf að sjá til þess að stöðin sé ávallt hrein og snyrtileg.
Þá kemur viðkomandi skilaboðum til viðgerðarmanna á tækjabúnaði þegar við á.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafa metnað fyrir
að halda umhverfi sínu snyrtilegu og vel viðhöldnu.
Við leitum að handlögnum einstaklingi sem getur leyst ýmis smáverk sem upp geta komið
á viðhaldi inninhúss. Unnið er í nánu samstarfi við stjórnendur Sporthússins og starfsmann
sem er í fullu starfi við ræstingar.
Tilvalið fyrir karlmann á besta aldri (55 ára og eldri) sem vill vinna fjölbreytt og
skemmtilegt starf á traustum og góðum vinnustað þar sem alltaf er líf og fjör.
Vinnutími virka daga frá kl. 8-16 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Ari í síma 896-5006 og með tölvupósti á netfanginu
ari@sporthusid.is.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst nk. og verður farið með umsóknir sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað.
Umsóknum skal skilað á netfangið ari@sporthusid.is
Sporthúsið – Flugvallarbraut 701 – 235 Reykjanesbær – 421 8070 – www.sporthusid.is
REYKJANESBÆR
Sporthúsið Reykjanesbæ óskar
eftir karlmanni í 70-100% starf sem fyrst.
Um framtíðarstarf er að ræða.