Víkurfréttir - 21.08.2014, Síða 12
fimmtudagurinn 21. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
-aðsent pósturu vf@vf.is
Upphaf félagsverslunar á Suðurnesjum er að öllum líkindum að finna í Garði og Leiru, en á árunum 1890 til 1892 hvatti sr. Jens
Pálsson, prestur í Útskálum, reglulega til þess að stofnað yrði pönt-
unarfélag til að bæta kjör fólks í hreppnum. Þegar til kom var félags-
svæðinu skipt í deildir og voru deildastjórar þeir Benedikt Þorláksson,
Eiríkur Torfason og Þorsteinn Gíslason. Þeir söfnuðu pöntunum í
vörur og loforðum manna um fiskafurðir til greiðslu. Umboðsmaður-
inn var í Newcastle. Vel gekk að skipuleggja og tryggja viðskiptin og
leiddu þau til þess að fólk fékk vörur á lægra verði en áður hafði tíðkast
og sömuleiðis hærra verð fyrir sínar vörur en greitt hafði verið hjá
kaupmönnum í Keflavík. Kaupmenn í Keflavík litu þennan samvinnu-
félagsskap illu auga og reyndu hvað þeir gátu til að hnekkja viðgangi
hans. Þegar Jens flutti úr héraðinu tók Þórður Thoroddsen læknir í
Keflavík við félaginu.
Þann 14. desember 1904 var boðað
til stofnfundar samtaka til að
bæta hag sjómanna og fjölskyldna
þeirra, svipað og sjómannafélagið
Báran í Reykjavík hafði gert 1894.
Alls 27 sjómenn úr Keflavík stofn-
uðu deild sem kölluð var „Báran
nr. 6“. Árið 1906 stofnaði deildin
svo pöntunarfélag sem starfaði
all lengi, líklega til 1920. Það var
svo VSFK sem stofnaði pöntunar-
félag í Keflavík árið 1933 sem 33
félagsmenn stóðu að. Félagið sam-
einaðist síðan Kaupfélagi Reykja-
víkur og nágrennis (KRON) árið
1937 þegar félagið opnaði verslun
við Aðalgötu 10 í Keflavík. Fyrsti
framkvæmdastjóri verslunarinnar
var Ragnar Guðleifsson, vinsæll
og farsæll verkalýðsleiðtogi, en
auk hans störfuðu þar þau Margrét
Arinbjarnardóttir og Sölvi Ólafs-
son. Árið 1951 voru félagsmenn
í deildinni alls 156. Um áramótin
1943/1944 lét Ragnar af störfum
og tók Björn Pétursson við starfinu
í hans stað.
Á vordögum 1945 var samþykkt
á aðalfundi að slíta sig frá KRON
og stofna sjálfstætt kaupfélag og
var stofnfundur Kaupfélags Suður-
nesja haldinn um sumarið, nánar
tiltekið þann 13. ágúst. Félagsmenn
voru í árslok þess árs alls 493. Í
dag eru í Kaupfélagi Suðurnesja
um fimm þúsund félagsmenn og
er kaupfélagið kjölfestueigandi í
Samkaupum hf, sem starfrækir 48
verslanir um land allt. Hjá Sam-
kaupum starfa um 900 manns og
reksturinn gengur vel.
Með félagskveðju,
Skúli Skúlason,
formaður KSK
■■ Skúli Skúlason, formaður KSK, skrifar:
Upphaf samvinnuverslunar á Suðurnesjum
Kronbúðin Aðalgötu 10 Keflavík.
Sölvi Ólarsson verslunarstjóri og
Guðbjörn Þorsteinsson sendill.
Senn líður að Ljósanótt
Hluti af dagskrá Ljósanætur hefur verið að sleppa helíumfylltum
blöðrum og sjá þær stíga til himins. Blöðrurnar hafa lengi verið vin-
sælar við ýmis tilefni s.s. til skreytinga, til skemmtunar fyrir börn og til
að sýna góðum málefnum stuðning. Þó blöðrurnar séu til skemmtunar
til skamms tíma geta þær valdið skaða, skemmst er að minnast útkalli
lögreglu og björgunarsveita þegar vegfarandi taldi sig sjá fallhlíf fara
í sjóinn þegar um var að ræða tvær helíum blöðrur en skaðinn getur
verið enn meiri.
Helíum er sennilega þekktast sem
partýblöðru-gas og óvíst að margir
átti sig á hversu dýrmætt gasið
er. Nú í seinni tíð hefur borið á
helíumskorti. Almenningur hefur
helst orðið var við þann skort þegar
falast er eftir helíum í blöðrur. En
það eru aðrir og veigameiri þættir
sem munu breytast þegar helíum-
skortur verður viðvarandi. Helíum
er léttara en andrúmsloft og er það
létt að þyngdarafl jarðar heldur því
ekki svo það stígur upp og kemst
út úr lofthjúpi jarðar. Helíum er
ekki framleitt heldur finnst það
með jarðgasi þar sem jarðvegur
er nægilega þéttur. Fá svæði hafa
helíum í vinnanlegu magni og er
um 75% af vinnslu alls helíums í
Bandaríkjunum. Suðumark helí-
ums er nálægt alkuli eða -267 °C
og er efnið í fljótandi formi besta
kæliefni heims, og enn er ekki séð
fram á hvernig skipta megi efn-
inu út fyrir aðra kælimiðla. Aðal-
notkun helíums í heiminum er
sem kælivökvi á segulómunartæki
(MRI-skanna) á sjúkrahúsum en
einnig er það notað sem kælimið-
ill við framleiðslu hálfleiðara og í
kjarnaofnum svo dæmi séu tekin.
Helíum er einnig notað í loftbelgi
til mælinga svo sem við hálofta-
veðurmælingar, það er notað við
framleiðslu á ljósleiðara, á rann-
sóknarstofum, í eldsneytistönkum
geimflauga og í innöndunargasi
t.d. í súrefnistönkum kafara. Við
notum helíum í margvíslegum
tilgangi til að styðja við lífsmáta
okkar og afleiðingar af skorti efnis-
ins mun valda verulegum vand-
ræðum. Í ljósi ofangreindra stað-
reynda er vert að velta því fyrir sér
hversu nauðsynlegt það er fyrir
okkur að velja rétta notkun á auð-
lindinni og leggja af helíumnotkun
okkur til skemmtunar.
Óþarfa umbúðanotkun og of-
notkun plastpoka hefur verið
mikið í umræðunni. Blöðrur eru
flestar búnar til úr latexblöndu eða
úr þunnri pólýesterfilmu (BoPET)
sem er m.a. nýtt í iðnaði t.d. við
framleiðslu málmbands, í lok á
jógúrtdósir og í geimbúningum
NASA. Plast í hafinu ógnar líf-
verum aðallega á tvo vegu: líkam-
legar hættur, þ.e. þegar lífverur
flækjast í því og kafna (sjá t.d. á
www.balloonsblow.org) og svo
efnafræðilegar hættur, þ.e. lífupp-
söfnun á plastögnum inni í líkama
lífvera sem gerist t.d. með öndun
neðansjávar eða með fæðu (fuglar,
fiskar og sjávarspendýr). Flestar
sjávarlífverur sem taka inn í sig
plast eiga í erfiðleikum með að losa
sig við það og margar hverjar geta
það ekki sem getur valdið kvalar-
fullum dauðdaga. Þegar helíum-
fylltum blöðrum er sleppt lausum
þá enda þær flestar lífdaga sína í
hafinu. Þó blöðrur í hafinu séu ekki
uppistaðan í plastmengun hafsins
eru þær eitt af þeim plastefnum
sem við getum auðveldlega komið í
veg fyrir að berist þangað.
Helíum er þrjótandi auðlind sem er
okkur nauðsynleg til framleiðslu á
vörum sem við viljum alls ekki vera
án t.d. innan heilbrigðisgeirans. Að
spara helíum er því eitthvað sem
við ættum öll að kappkosta. Eins
og allir vita þá er plast umhverfis-
spillir sem veldur miklum skaða
í umhverfinu. Afleiðingin af því
að sleppa helíumfylltum blöðrum
verður að vera okkur öllum kunn,
þær eru vissulega fallegar og
tignarlegar á leið til himins – en er
það þess virði?
Undirritaðar hvetja Reykjanesbæ
til þess að snúa setningarathöfn
Ljósanætur í langlífari og umhverf-
isvænni skemmtun.
Góða skemmtun á Ljósanótt,
Ásdís Ólafsdóttir líffræðingur
Snjólaug Ólafsdóttir um-
hverfisverkfræðingur
Bókin
Síðasta bók sem ég las var í byrjun sumars
og var það bókin Sandmaðurinn eftir Kepler.
Móðir mín hafði nýlokið við að lesa hana og
fannst hún svo góð að ég ákvað að lesa hana
líka. Bókin var virkilega góð og gat ég varla lagt
hana frá mér. Sandmaðurinn er glæpasaga og
fjallar um systkini sem hverfa á barnsaldri og eru svo lýst látin stuttu
seinna. Sjö árum seinna finnst bróðirinn svo á lífi og hefst lögreglan þá
við að rannsaka málið upp á nýtt. Mæli eindregið með að fólk lesi hana.
Tónlistin
Ég myndi segja að smekkur
minn á tónlist sé mjög víð-
tækur. Mér finnst ótrúlega
gaman að hlusta á hip hop
tónlist og kemur hún mér
ávallt í gírinn. Atmosp-
here er í miklu uppáhaldi
hjá mér og Kanye West.
Drottningin Beyonce er
náttúrulega æðisleg líka.
Ég er lítið fyrir rokk og
hlusta ekki mikið á þannig
tónlist.
Sjónvarpsþátturinn
Ég verð að viðurkenna að þættir eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Nýlega
hef ég verið að horfa á Teen Wolf með vinkonu minni og sitjum við
límdar við skjáinn þessa dagana að horfa. Annars hef ég verið að fylgj-
ast með Gossip girl, Desperate Housewives, Scandal, Mistresses, Greys
Anatomy, Mentalist, Castle, Arrow og Blacklist (já ég elska spennu og
dramaþætti). Ég gæti reyndar talið upp fleiri þætti sem ég er að fylgjast
með en læt þetta gott heita.
-afþreying
póstur u eythor@vf.is
Elskar
spennu
og drama
Íþróttafræðingurinn
Guðrún Bentína Frí-
mannsdóttir er 26
ára gömul, uppalinn
Grindvíkingur. Hún er
fyrirliði meistaraflokks
kvenna í Grindavík í
knattspyrnu en hún
þjálfar einnig yngri
flokka hjá félaginu.
Hún elskar spennu og
dramaþætti og segir
að hip-hop tónlist komi
sér alltaf í gírinn.
Guðrún Bentína á eins árs
gamlan son, Eið Aron, með
Marteini Guðbjartssyni.
Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Jóhannsson
Vallarbraut 6,
Reykjanesbæ
lést á heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 18. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. ágúst kl. 14.00.
Elísabet Vigfúsdóttir,
Vignir Guðmundsson, Jadvyga Usvaltiene,
Ásthildur Guðmundsdóttir, Hafsteinn Benediktsson,
Ingvar Guðmundsson, Sólveig Þorsteinsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn