Víkurfréttir - 21.08.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 21. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
TIL LEIGU
Stúdíó íbúiðir og bílskúrar til leigu
að Vatnsnesvegi 5, Keflavík. Frá 50
fm. að stærð. Íbúðir á kr. 70.000 pr.
mánuð en bílskúrar frá kr. 50.000.
Studio apartments and garage for
rent. Size from 50 sam. Price from
70.000 for apartment and 50.000
for garage. Fyrirspurnir/requests:
vatnsnesvegur@outlook.com
Til leigu 350 m2 atvinnuhúsnæði
með fiskvinnsluleyfi á Hrannar-
götu.Uppl. í símum 860 8909 og
895 8230.
80 til 130 fm2 Iðnaðarhúsnæði
óskast til leigu í Reykjanesbæ. Lág-
marks lofthæð eru 4 metrar, stór
keyrsluhurð æskileg. Upplýsingar í
síma 895-6641
TIL SÖLU
Allt þarf að seljast til dæmis:
Endúró 80 CC, Gúmmíbátur með
rafmagnsmótor, Iðnaðarriksuga,
Tvær frístigkistur, Þrjár stærðir
stigar, stórt útikrill, ræktunarkerfi,
göngubraut, bekkur og Allskonar
heimilisdóttur. Holtsgata 36. Frá 1
til 5. Laugardaginn Sunnudaginn
Þrjár hliðar (fortjald) þriggja-
metra markisa. Lítið notuð.
Upplýsingar í síma 846-3422.
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
- smáauglýsingar
www.vf.is
83% LESTUR
+
Flottir sigrar hjá ungu Suðurnesjakylfingunum
XuBirkir Orri Viðarsson og Zuzanna Korpak úr Golfklúbbi Suður-
nesja sigruðu í flokki 14 ára og yngri á Íslandsbankamótaröð unglinga
í golfi sem fram fór á Jaðarsvelli á Akureyri um síðustu helgi.
Birkir Orri lék frábært golf báða
dagana og vann með sex högga
mun og lék fyrri 18 holurnar á
einu höggi undir pari við frekar
erfiðar aðstæður. Birkir Orri hefur
verið í toppbaráttunni í sumar og
varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmótinu
í holukeppni. Birkir Orri lék á 70
og 74 eða 144 höggum en Ingvar
A. Magnússon GR varð annar.
Virkilega frábær frammistaða hjá
Birki í sumar.
Zuzanna Korpak sló núna yngri
systur sinni, Kingu, við en sú yngri
hafði sigrað á 3 af 4 mótum sum-
arsins fyrir þetta mót. Zuzanna lék
sitt besta golf í sumar og var á 89
og 87 höggum eða 176 höggum
en Kina systir hennar varð önnur
á 191 höggi.
Suðurnesjakylfingarnir Karen
Guðnadóttir og Guðni F. Carrico
stóðu sig líka vel á Eimskipsmóta-
röðini en Karen varð í 3. sæti og
Guðni í 4.-5. sæti.
Keflavík hefur samið við bak-vörðinn Gunnar Einarsson
um að hann leiki með liðinu í
Domino's deild karla í körfubolta
í vetur. Gunnar lék síðast með
Keflavík tímabilið 2010-2011 en
hann á að baki afar farsælan feril
með liðinu. „Mig langar að taka
þátt í þessu verkefni. Mér líst vel
á þjálfarann og strákana, eins
er Damon að koma aftur og því
held ég að þetta geti orðið rosa-
lega skemmtilegt verkefni,“ segir
Gunnar en viðræður voru hafnar
milli hans og Keflvíkinga áður
en Damon ákvað að taka slaginn.
Damon hafði þó talað um það við
Gunnar að það væri gaman ef þeir
félagar tækju eitt tímabil saman í
viðbót og hlakkar þá báða til að
mæta aftur á heimaslóðir.
Gunnar starfar sem einkaþjálf-
ari þar sem hann þjálfar menn í
fremstu röð líkt og Jón Arnór
Stefánsson og Hauk Helga Pálsson
sem báðir spila með íslenska lands-
liðinu í körfuknattleik. Hann segir
að það hafi kveikt áhugann hjá
honum að æfa og spila smá körfu-
bolta með þessum strákum. „Hvað
varðar líkamlegt atgervi þá sá ég að
hugsanlega hefði ég eitthvað smá
fram að færa. Ég er miklu betur
í stakk búinn núna en þegar ég
hætti,“ segir Gunnar. Bakvörður-
inn reyndi hefur aðeins æft í sumar
með ýmsum góðum köppum, en
þeirra á meðal hafa verið landsliðs-
menn. „Ég varð mér a.m.k. ekki til
skammar á þeim æfingum,“ segir
Gunnar og hlær.
„Ég er ekkert að koma þarna inn
til þess að vera einhver hetja. Ég er
að koma þarna til þess að stækka
hópinn og vonandi fá einhverjar
mínútur ef ég á það skilið. Ég von-
ast til að miðla af reynslu og efla
vonandi þessa stráka sem eru þarna
fyrir.“ Strax er byrjað að ræða um
það að Gunnar sé í betra líkamlegu
ástandi en þegar hann hætti. „Það
verður tíminn að leiða í ljós. Ég hef
auðvitað ekki verið að æfa körfu-
bolta af krafti, en ég kemst þótt ég
hægt fari. Ég ætla ekki að vera með
neinar yfirlýsingar. Fólk talar um
að maður sé í svakalegu formi en
hver dæmir um það, er maður í
formi ef maður er með sixpack?
Þetta er ósköp vítt hugtak,“ segir
Gunnar léttur.
Hvernig metur Gunnar annars
möguleika Keflvíkinga í vetur?
„Maður er ekkert að fara í þetta
til þess að vera bara með og stefnir
á hæstu hæðir með liðinu eins og
alltaf. Þó svo að maður sé orðinn
aðeins eldri þá verður maður bara
að vera klókari upp á það að halda
sér ferskum.“ Gunnar er einmitt að
þjálfa marga af leikmönnum Dom-
ino’s deildarinnar en hann segir
að það komi ekki til með að trufla
hann mikið, enda sé hann fag-
maður fram í fingurgóma. „Maður
umbreytist þegar maður fer inn á
parketið í þessar 40 mínútur. Þá
eru vinir manns ekkert lengur vinir
manns, það er bara þannig. Svo
tölum við bara saman þegar sturtan
er búin,“ segir Gunnar og hlær.
X■ Gunnar Einarsson byrjar aftur að spila með Keflavík
„Maður er ekkert að fara í þetta
til þess að vera bara með“
XuGrindvíkingurinn Marko Valdimar Stefánsson hefur verið fúl-
skeggjaður síðan í vor. Ástæðan er sú að hann ákvað áður en keppnis-
tímabilið í fótboltanum hófst að skerða ekki skegg sitt fyrr en hann
næði að skora mark. Síðan eru liðnir u.þ.b. fjórir mánuðir og skeggið
orðið myndalegt eftir því. Reyndar er Marko á því að það hafi ekkert
verið svo myndarlegt. „Þetta var orðið frekar ljótt og mikill léttir
þegar það fékk að fjúka, “ segir Grindvíkingurinn sem skoraði loks
í 2-0 sigri gegn KV á dögunum. „Kærastan sagði mér að henni hafi
verið alveg sama um skeggvöxtinn, en ég held að það hafi ekki alveg
verið satt,“ bætir hann við.
„Ég ákvað að setja smá pressu á
mig og safna þessu skeggi þangað
til ég myndi setja hann, “ segir
varnarmaðurinn Marko sem er
ekki þekktur fyrir að skora mikið,
en hann hafði ekki ennþá náð að
skora fyrir Grindavík í meistara-
flokki. Hann lék með Njarðvík
árið 2008 og 2010 þar sem honum
tókst þó að skora. „Ég fagnaði
eins og óður maður í svona 30-40
sekúndur þar sem ég þóttist vera
að raka mig. Strákarnir glöddust
fyrir mína hönd þar sem þeir vildu
losna við skeggið, það var ekki sjón
að sjá mig,“ segir miðvörðurinn í
léttum tón. Marko er fæddur árið
1990 en hann getur spilað sem
miðvörður og miðjumaður.
Sumarið hefur ekki verið eins og
búist var við hjá Grindvíkingum
en margir bjuggust við því að liðið
færi upp í efstu deild eftir að hafa
verið ansi nærri því í fyrra. „Við
erum að fara allt of seint í gang í
sumar, en við erum á réttri braut
með þrjá sigra í röð þar sem
við höfum haldið hreinu,“ segir
Marko en Grindvíkingar töpuðu
svo reyndar á þriðjudag gegn
Þrótturum 2-1. Markmið Grind-
víkinga var að sjálfsögðu að berjast
um sæti í efstu deild en það virðist
ennþá raunhæfur möguleiki. „Ég
tel að menn hafi áttað sig á því að
markmiðin hafi breyst eftir því
sem leið á tímabilið. Við erum að
taka einn leik í einu og reyna að
hafa gaman af þessu. Ég get alveg
viðurkennt að það var ekki gaman
í byrjun sumars, en smátt og smátt
er þetta að verða skemmtilegt
aftur,“ segir hinn nýrakaði Marko
að lokum.
Skeggið fékk að fjúka
eftir langþráð mark
- Grindvíkingar að rétta úr kútnum
X■ Útlitið svart hjá Suðurnesjaliðunum
Njarðvíkingar og Sandgerðingar á botninum í 2. deild
Staðan er fremur slæm hjá Suðurnesjaliðunum Njarðvík
og Reyni sem leika í 2. deild karla
í knattspyrnu. Liðin sitja á botni
deildarinnar og útlit fyrir að annað,
eða bæði lið muni falla í 3. deild í
haust. Bæði lið töpuðu leikjum sín-
um um helgina. Njarðvíkingar töp-
uðu fyrir toppliðinu Fjarðarbyggð
fyrir austan 3-0, á meðan töpuðu
Sandgerðingar líka 0-3 á heimavelli
sínum gegn Sindramönnum.
Næstu leikir eru skiljanlega mikil-
vægir en Njarðvíkingar taka á móti
Völsungum, sem er sæti fyrir ofan
Suðurnesjaliðin, á laugardag. Sand-
gerðingar leika hins vegar gegn Aftur-
eldingu á útivelli í kvöld, fimmtudag.