Víkurfréttir - 28.08.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 28. ágúst 2014 • 33. tÖLuBLaÐ • 35. árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Nánar á vf.is og í
Sjónvarpi Víkurfrétta
Skóflustunga að nýrri kísilmálmverksmiðju United Silicon íHelguvík á Suðurnesjum var tekin í gær við hátíðlega athöfn.
„Þetta er stór dagur fyrir Suðurnesin í atvinnulegu tilliti, dagur sem
við höfum beðið eftir og vonandi bara byrjunin á frekari rekstri í
Helguvík,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra en hún tók ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætis-
ráðherra og fleirum, skóflustungu að nýrri kísilverksmiðju á lóð
félagsins í Helguvík.
Framkvæmdir við byggingu
fyrsta áfanga verksmiðjunnar
munu nú hefjast af fullum krafti
en jarðvegsframkvæmdir eru
þegar hafnar á svæðinu. Verk-
smiðjuhúsið verður 41 metra hátt
og um 5.000 fermetrar að stærð.
Þar inni verður risastór ljósboga-
ofn sem framleiðir kísilmálminn.
Gert er ráð fyrir að starfsemi
verksmiðjunnar hefjist á fyrri
hluta ársins 2016.
„Allir lykilsamningar verkefnisins
eru í höfn. Verkefnið er afar um-
fangsmikið og mun á uppbygg-
ingartíma skapa allt að 300 störf og
um 60 störf eftir að verksmiðjan
hefur starfsemi. United Silicon
verður mikilvæg stoð í íslensku at-
vinnulífi sem skapar þjóðarbúinu
auknar gjaldeyristekjur til fram-
tíðar. Við komum til Reykjanes-
bæjar fyrst fyrir sjö árum en með
þolinmæði og þrautseigju, velvild
og aðstoð margra aðila hefur þetta
tekist og er að verða að veruleika,“
segir Magnús Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri United Silicon.
Áætlað er að framleiðsla hefjist á
vormánuðum árið 2016 og nemi
21.300 tonnum á ári. Stefnt er að
því að reisa alls fjóra ofna í verk-
smiðjunni ef næg orka fæst til þess
og þá verður verksmiðjan stærsta
kísilverksmiðja í heimi.
„Það er búið að tryggja raforku
fyrir einn ofn en það eru 35 mega-
vött. Miðað við fjóra ofna þarf
kísilverksmiðjan 140 megavött.
Við erum búnir að sækja um og
fá starfsleyfi fyrir þrjá ofna í við-
bót og höfum fengið jákvæð við-
brögð við ofni númer tvö nú þegar.
Verksmiðjan er hönnuð með þessa
stækkun í huga. Miðað við fjóra
ofna verður framleiðslugetan
85.000 tonn á ári. Við stefnum að
því að ná þessari framleiðslu á tíu
árum,“ segir Magnús.
Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri
í Reykjanesbæ segir að tilkoma
verksmiðjunnar hafi mikil áhrif á
tekjur hafnarinnar og miðað við
áhuga margra fyrirtækja, sem sum
hver séu komin vel á leið til Helgu-
víkur megi áætla að höfnin sem
er stórskuldug í dag, verði orðin
skuldlaus innan áratugar.
Heildarfjárfesting kísi lverk-
smiðjunnar, miðað við fjóra ofna í
rekstri, er um 35 milljarðar króna.
Fjármögnun verkefnisins er sam-
vinna danskra og hollenskra fjár-
festa frá Fondel Group, en lánsfjár-
mögnun verkefnisins og ráðgjöf er
í höndum Arion banka.
Helguvík úr hægagangi
-hundruð starfa við uppbyggingu verksmiðjunnar og 60 bein störf eftir opnun.
■■ Skóflustunga tekin að nýrri kísilmálmverksmiðju í Helguvík: Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, Mark Giese, Ragnheiður Elín Árna-dóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra,
Anna Lóa Ólafsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Doron Sanders, stjórnarfor-
maður United Silicon og Karl Þráinsson frá ÍAV tóku fyrstu skóflustungurnar að verksmiðunni.
VF-myndir/Eyþór.
Magnús Garðarsson, stofnandi verk-
smiðjunnar með Ragheiði Elínu og Sigmundi
Davíð í Helguvík.