Víkurfréttir - 28.08.2014, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 28. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
NASKEF REUNION 6. september 2014.
Glæsilegt kvöldverðarhlaðborð í Ocera klúbbnum,
laugardaginn 6. september.
Húsið opnar kl. 17:00 og dagskrá hefst kl. 17:30.
Fyrrum starfsmenn og verktakar varnarliðsins boðnir
sérstaklega velkomnir.
Rútuferðir fyrir þá sem óska frá Ocera klúbbnum á Ljósanótt
í Reykjanesbæ til að njóta ugeldasýningarinnar um kvöldið.
Allir þátttakendur fá happadrættismiða
þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.
Bókanir fara fram á www.keanding.com
Nánari upplýsingar á heimasíðu, á info@keanding.com
og í síma 865-9893.
Lausn á flugöskumálum var stærsta einstaka málið í rekstri Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, á síðasta ári. Flugaskan hefur
verið vandamál stöðvarinnar í heilan áratug en lausn hefur nú verið
fundin á förgun öskunnar með samningi við norska fyrirtækið Noah.
Aðalfundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja var haldinn í síðustu
viku. Þar kom fram að mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri fyrir-
tækisins til betri vegar.
Flugaskan til Noregs
Kostnaður við að farga öskunni
sem hefur safnast upp sl. 10 ár er
á bilinu 140-150 milljónir króna,
sem þýðir um 14-15 milljónir
króna á ári. Flugöskunni er safnað
saman í reykhreinsibúnaði sorp-
eyðingarstöðvarinnar en notaður
er sérstakur sóti, ekki ósvipaður
matarsóda, en árlegur kostnaður
við hann er nærri þrjátíu millj-
ónum króna. Samtals höfðu um
4000 tonn af flugösku safnast upp
hjá fyrirtækinu á síðustu 10 árum
en askan var geymd á sekkjum í
geymsluhúsnæði í Garði, Sand-
gerði, á athafnasvæði gömlu sorp-
eyðingarstöðvarinnar við Hafna-
veg og einnig í Helguvík. Fyrr í
sumar kom skip frá Noah og sótti
stærstan hluta öskunnar. Skipið er
svo væntanlegt aftur um miðjan
september til að sækja restina.
Askan er meðhöndluð þar og síðan
komið fyrir ofan í gömlum kalk-
steinsnámum á eyju í firði inn af
Oslóarfirði í Noregi. Nú standa
yfir samningaviðræður við norska
fyrirtækið um að taka við þeirri
ösku sem fellur til í framtíðinni.
Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja,
segir að þær viðræður gangi vel.
Eina sorpbrennslustöð lands-
ins
Kalka er eina sorpbrennslustöðin á
landinu en Jón vill þó ekki meina
að sorpbrennslustöðin sé tíma-
skekkja því stefnan í landinu sé
að auka flokkun og endurvinnslu,
draga úr urðun og auka brennslu.
Jón segir þó að á næstu árum muni
rekstur Kölku örugglega breyt-
ast. Hugsanlega komi nýir aðilar
að rekstri stöðvarinnar og þá úr
hópi þeirra sem þurfa að nýta sér
brennslu sorps. Yfirvöld í landinu
segja að það þurfi að vera a.m.k. ein
sorpbrennsla í landinu til að eyða
úrgangi sem krafa er um að brenna,
eins og spilliefni og sóttmengaður
úrgangur. Jón sér því jafnvel fyrir
sér aðkomu ríkisins og fleiri aðila
að sorpbrennslunni.
Jón segir jafnframt að í dag sé
kallað eftir aukinni endurvinnslu
og þá búa heimili á Suðurnesjum
við þá staðreynd að íbúar höfuð-
borgarsvæðisins borga helmingi
minna fyrir sorphirðu og sorpeyð-
ingu. Menn geti velt upp spurn-
ingum um hvort skynsamlegt sé að
breyta rekstrarformi Kölku í hluta-
félag, hvort sameinast eigi Sorpu.
Framtíðin gæti orðið sú að íbúar á
Suðurnesjum flokki sitt sorp. Það
sem ekki fari til endurvinnslu yrði
hins vegar baggað á Suðurnesjum
og urðað á höfuðborgarsvæðinu.
Kalka fengi þá annað hlutverk. Hún
gæti stækkað og séð um brennslu á
öllu því sorpi sem þarf að brenna
hér á landi.
Heimilissorp úr Vestmanna-
eyjum í Kölku
Nýir viðskiptavinir hafa komið til
sögunnar og auk þess að brenna
öllu heimilissorpi á Suðurnesjum,
þá brennir stöðin í Helguvík einn-
ig nær öllu heimilissorpi frá Vest-
mannaeyjum. Einnig kemur mikið
af sorpi til eyðingar frá gáma-
þjónustufyrirtækjum af höfuð-
borgarsvæðinu. Þá kemur allur
sóttmengaður úrgangur, t.d. frá
sjúkrahúsum og spilliefni til eyð-
ingar í Kölku. Afkastageta Kölku er
brennsla á 12.500 tonnum á ári en
á síðasta ári brenndi stöðin tæpum
11.000 tonnum.
Tekið á skuldavanda
Árið 2010 skuldaði Sorpeyðingar-
stöð Suðurnesja 1.350 milljónir
króna og staða eigin fjár var nei-
kvæð um 600 milljónir króna.
Sameiginleg ábyrgð sveitarfélag-
anna kom í veg fyrir gjaldþrot
fyrirtækisins.Eftir yfirgripsmiklar
samningaviðræður við Íslands-
banka, sem er viðskiptabanki fyrir-
tækisins, hafa langtímalán fyrir-
tækisins lækkað um 500 milljónir
króna á síðustu fjórum árum og
segir Jón Norðfjörð að sannarlega
munu þessar lækkanir á lánastöð-
unni skipta sköpum hvað varðar
rekstrarhæfi fyrirtækisins til fram-
tíðar. Þá hefur fyrirtækið einnig
greitt upp yfirdrátt upp á 178 millj-
ónir króna þannig að rekstur fyrir-
tækisins er allt annar í dag en hann
var fyrir aðeins fáeinum árum.
Fyrirbyggjandi viðhald
Kalka er 10 ára um þessar mundir.
Það mæðir mikið á búnaði stöðvar-
innar við sorpbrennsluna. Þannig
er hitinn í brennsluofninum um
600 gráður og þær gufur og gas-
tegundir sem koma frá ofninum
fara í gegnum eftirbrennslu sem
er um 1100 gráðu heit. Að sögn
Jóns er nú lögð áhersla á fyrir-
byggjandi viðhald við brennslu-
línuna, enda er hún hjartað í sorp-
eyðingarstöðinni. Þannig er fylgst
vel með brennslulínunni, steypt er
í brennsluofninn á hverju ári og
allt tölvukerfi brennslunnar var
endurnýjað á síðasta ári en það var
orðið um 10 ára gamalt. Brunakerfi
í brennslustöðinni var endurnýjað
og einnig öryggismyndavélakerfið.
Gjaldtaka skiptir sköpum fyrir
Kölku
Jón segir að gjaldtaka á gáma-
plönum skipti sköpum fyrir
rekstur Kölku og hann segist hafa
orðið undrandi á þeirri tillögu sem
kom fram í Reykjanesbæ á sínum
tíma þar sem lagt var til að gjald-
tökunni yrði hætt. Á aðalfundi
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
á dögunum tók Jón umræðu um
hvert fyrirtækið vildi stefna í gjald-
tökumálum. Hann fór yfir hvernig
gjaldtökumálum var háttað áður og
sagði frá hverju hefur verið breytt
og af hverju.
Sorpgjöld sem lögð eru á íbúðaeig-
endur á Suðurnesjum hafa þróast
í að verða með þeim hæstu hér
á landi. Núverandi stjórnendur
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
hafa talið þetta algjörlega óá-
sættanlegt og lagt mikla áherslu á
að breyta þessu.
„Við skoðun á rekstri fyrirtækisins
aftur í tímann kemur í ljós að þegar
rekstrarvandinn jókst voru sorp-
gjöldin hækkuð. Það var hin auð-
velda leið að fara. Viðskiptaaðilum
fyrirtækisins var verulega mis-
munað með verðlagningu á þann
■■ Kalka orðin tíu ára:
Flugaskan til Noregs
og umtalsverð lækkun skulda
- gjaldfrjálsir umhverfisdagar kostuðu 8-10 milljónir
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Jón Norðfjörð, fram-
kvæmdastjóri Sorpeyð-
ingarstöðvar Suðurnesja.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Frá útskipun á flugöskunni
frá Njarðvíkurhöfn í sumar.
Flutningaskipið með flugöskuna siglir
fyrir Garðskaga á fallegu sumarkvöldi.