Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 8
fimmtudagurinn 4. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR8
Fimmtánda Ljósanótt í Reykjanesbæ er gengin í garð. Fyrsta hátíðin
var haldin á aldamótaárinu 2000 og var svona eins og sýnishorn
af hátíð í samanburði við Ljósanæturhátíðir undanfarinna ára.
Í viðtali við Valgerði Guðmundsdóttur, menningarfulltrúa Reykja-
nesbæjar, segir hún megináhersluna á Ljósanótt jafnan vera á tónlist
og myndlist. Það er vel við hæfi í bítlabænum og áhugi á myndlist
hefur svo sannarlega aukist mikið með tilkomu hátíðarinnar. Eins
og alltaf er mikill metnaður lagður í dagskrána og lögð áhersla á að
sem flestir taki þátt á einn eða annan hátt. Það kemur svo skemmti-
lega fram í blöðrusleppingum hundruða skólabarna við Myllu-
bakkaskóla á setningu Ljósanætur. Það er frábært að fylgjast með
því þegar krakkarnir sleppa blöðrunum. Á Ljósanótt sameinast svo
margt; fyrirtæki, verslanir, listafólk og íþróttahópar nýta tækifærið
og bjóða vörur til sölu og margir kaupa og njóta. Sem er bara gott.
Upphafið að Ljósanótt var hugmynd Steinþórs Jónssonar, hótel-
stjóra, að lýsa upp Keflavíkurbergið. „Þessi svarti klettaveggur
sem lýstur var upp um aldamótin skilaði mikilli útgeislun til sam-
félagsins sem við búum nú við í dag,“ segir Steinþór í viðtali við
VF en hann segist ákaflega þakklátur bæjarbúum sem tóku hug-
myndinni svona vel og tóku þátt í sjálfboðastarfi fyrstu árin.
Án efa er þetta viðamesta helgi á Suðurnesjum á árinu. Nokkrir
tugir þúsunda manna mæta í Reykjanesbæ, njóta dagskrárinnar
og samveru með ættingjum og vinum. Samvera er að margra
mati stærsti viðburðurinn og auk heimamanna, sem alla tíð
hafa sótt hátíðina gríðarlega vel, hafa gestir verið duglegir að
mæta. Njótum samverunnar á fimmtándu Ljósanóttinni.
Gleðilega Ljósanótt!
Upplýstur kletta-
veggur upphafið
að stórri bæjar-
hátíð
-ritstjórnarbréf
Páll Ketilsson skrifar
DAGLEGAR
FRÉTTIR
Á VF.IS
-viðtal pósturu pop@vf.is
vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is,
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur
Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn
sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
SÍMI 421 0000
15%
afsláttur*
Af öllum pa
kkningum
* Gildir í sep
tember
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI
HRAFNISTA
Reykjavík I Hafnarörður
Kópavogur I Reykjanes
Viltu ganga til liðs við góðan hóp
hjúkrunarfræðinga og starfsfólks
Hrafnistu í Hafnarrði?
Í boði eru:
Næturvaktir, 50% staða
Hjúkrunarvist, 80% staða
Þá vantar hjúkrunarfræðinga í kvöld- og helgarvinnu.
Hjúkrunarnemar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Upplýsingar veitir
Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður
sími 693 9502
ardishulda@hrafnista.is
Hjúkrunarfræðingar, viljið þið ganga til
liðs við góðan hóp hjúkrunarfræðinga
og starfsfólks Hrafnistu í Reykjanesbæ?
Vaktir og vinnuhlutfall er samkomulagsatriði.
Hjúkrunarnemar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Upplýsingar veitir
Hrönn Ljótsdóttir forstöðumaður
sími 664-9550
hronn@hrafnista.is
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI
HRAFNISTA
Reykjavík I Hafnarörður
Kópavogur I Reykjanes
Viltu ganga til liðs við góðan hóp
hjúkrunarfræðinga og starfsfólks
Hrafnistu í Hafnarrði?
Í boði eru:
Næturvaktir, 50% staða
Hjúkrunarvist, 80% staða
Þá vantar hjúkrunarfræðinga í kvöld- og helgarvinnu.
Hjúkrunarnemar eru sérstakl ga boðnir velkomnir.
Upplýsingar veitir
Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður
sími 693 9502
ardishulda@hrafnista.is
HRAFNISTA Í REYKJANESBÆ
Árni Þór Guðjónsson er 12 ára „frisbí-kappi“ úr Keflavík.
Hann hefur mikinn áhuga á fris-
bee og kvikmyndum. Hann hefur
verið iðinn við að gera stutt-
myndir og frisbee myndbönd, þar
sem hann og vinir hans gera svo-
kölluð „trickshot" af löngu færi.
„Ég uppgötvaði frisbee á Youtube,
horfði á myndbönd þar sem verið
var að gera flókin og virkilega flott
skot en þau kallast „trickshot“,"
segir Árni. Hann segir að Brodie
Smith og síða sem kallast „Fris-
beesshots 27“ séu fyrirmyndir hans
í frisbee heiminum. Sá fyrrnefndi
er með rúmlega 700 þúsund fylgj-
endur á Youtube.
Árni og félagar eru stundum
lengi að ná skotunum, en ekki
alltaf.
„Það er mismundandi hvað við
erum lengi að hitta skotunum,
stundum erum við mjög lengi en
það kemur fyrir að við náum því
í fyrsta skoti." Árni er með tvær
frisbee Instagram síður sem hann
notar með vinum sínum Bergþóri
og Kristjáni, „Frisbeeshots15“ og
„A.K.trick_shots“. Frisbeeshots15
er „sponsorað“ af Discstore.com.
Árni og Bergþór vinur hans höfðu
samband við Discstore, en þú þarft
að hafa 500 fylgjendur á Instagram
og að hafa keypt einu sinni fris-
beedisk af Discstore. „Þeir sögðu
að þeir dýrkuðu skotin okkar, við
fengum nokkra diska frá þeim, það
var gaman“, sagði Árni.
„Frisbee er orðið mjög vinsælt á
meðal krakka á mínum aldri í dag.
Ég er nokkuð viss um það að við
bjuggum til fyrstu frisbee síðuna
á einhverjum samskiptamiðli á Ís-
landi. Um daginn hélt ég afmæli
og fór í frisbee með vinum mínum.
Ég leigði íþróttasalinn í Akurskóla
og við vorum með myndavélarnar
og diskana og við náðum flottum
skotum, það var skemmtilegt.“
Hægt er að skoða myndböndin á
Instagram síðum þeirra „Frisbees-
hots15“ og „A.K.trick_shots“ en
einnig á Youtube.com með því að
skrifa Random Films Trick Shots.
Árni er einnig mikill áhugamaður
um kvikmyndagerð, en hann hefur
verið að gera stuttmyndir og sett
þær á Facebook síðu mömmu
sinnar, Ragnheiðar Elínar Árna-
dóttur. Árni hefur horft á kvik-
myndir frá því hann var lítill og
hann segist horfa á að jafnaði fimm
bíómyndir á viku. Hann horfir þó
öðruvísi á myndir eftir að áhug-
inn kviknaði á kvikmyndagerð. „Ég
pæli meira í myndunum og ég sé
mjög oft villur í þeim. Stundum
eyðilegg ég bíómyndirnar fyrir
vinum mínum“, sagði Árni. Uppá-
halds bíómyndirnar hans eru Kick
Ass og Guardians Of The Galaxy
en Neil Patrick Harris er einn af
uppáhalds leikurum hans.
Ultimate Frisbee vinsælt á meðal vinanna
-Árni Þór Guðjónsson er 12 ára „frisbí-kappi“ úr Keflavík