Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.09.2014, Side 1

Víkurfréttir - 18.09.2014, Side 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 18. SEPTEMBER 2014 • 36. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Bls 10 Bls 13 Bls 15 „Að ákveðnu leyti eru þetta vonbrigði fyrir mig“ Útibúi Landsbankans í Sandgerði lokað: ■■ Ný revía í undibúningi hjá Leikfélagi Keflavíkur: „Með ryk í auga“ Sigri Suðurnesjaliðin tolla þau uppi Gunnuhver laðar að fjölda gesta Páll Valur Björnsson þing-maður Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi bar upp spurn- ingar um verkefnið Nám er vinn- andi vegur á Alþingi í gær. Þar furðar hann sig á vinnubrögðum ríkisstjórnar við styrkveitingar í verkefninu. Keilir á Ásbrú sendi inn umsókn samkvæmt auglýsingu. Skólinn átti svo að mæta á fund hjá menntamála- ráðuneytinu, en þeim fundi var frestað. Þetta var í nóvember á síðasta ári. Leið og beið í málinu og Keilismenn heyrðu ekkert. Síðan kemur það upp úr krafsinu í nýju fjárlögunum að Bifröst hafði hlotið styrkinn upp á 160 milljónir. Bifröst ekki á lista umsækjenda „Niðurstaðan í fjárlögunum er síðan sú að Háskólinn á Bifröst fær alla úthlutunina, 160 millj. kr. Mig langar bara til að vita hvers vegna það er. Hvers vegna fer þetta allt á einn stað og hvers vegna var ekki haft samband við aðrar stofnanir? Eftir því sem mínar heimildir segja var Bifröst ekki einu sinni á lista þeirra sem voru að sækja um eða sendu inn hugmyndir,“ segir þing- maðurinn í fyrirspurn til ráðherra um fjárlögin. Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra svaraði Páli á þá leið að skipaður hafi verið starfshópur um verkefnið sem hafi svo ákveðið hvernig fjármununum skyldi varið. „Ég var reyndar ekki sáttur við þá aðferðafræði sem þar var lögð til grundvallar og tel að þessir fjár- munir hafi ekki nýst nægilega vel. Síðan var skipaður starfshópur þar sem komu að aðilar frá atvinnulíf- inu, verkalýðshreyfingunni o.s.frv. sem unnu að því að útfæra það hvernig þessum fjármunum var varið. Ég get ekki á þessari stundu tjáð mig nákvæmar um þetta en ef þingmaðurinn óskar þess þá get ég skoðað það alveg sérstaklega,“ sagði ráðherra við spurningum Páls. Nám er vinnandi vegur er sam- starfsverkefni fyrri ríkisstjórnar við aðila vinnumarkaðarins um átak á sviði vinnumarkaðsaðgerða og eflingu menntunar í samræmi við tillögur samráðshóps um vinnumarkaðsmál. Vinnu- málastofnun sá um framkvæmd verkefnisins gagnvart atvinnuleit- endum. Í tölum frá Menntamála- ráðuneytinu kemur fram að af þeim atvinnuleitendum sem gert hafa námssamning eru 242 manns búsettir á landsbyggðinni. Tæplega helmingur af þeim, eða 103 manns eru með lögheimili á Suðurnesj- unum. „Svæðið er lifandi þessa dagana og við höfum orðið vör við meiri áhuga á því. Við erum að sjá hérna mikinn fjölda ferðamanna og gesta sem eru að koma til að sjá og upplifa hvað er að gerast,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, verkefna- stjóri hjá Heklunni. Í tengslum við ferðaþjónustu á Reykjanesi sé Gunnuhver er hluti af heildinni sem verið er að skapa með Reykjanes Jarðvang. „Það er mjög góð yfirsýn yfir svæðið af pöllunum sem eru nú báðir opnir eftir að lögreglan lokaði öðrum tímabundið,“ segir Eggert. Sjónvarp Víkurfrétta Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN Keilir í kuldanum í nýjum fjárlögum Bifröst fékk 160 milljónir vegna „Nám er vinnandi vegur“

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.