Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.09.2014, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 18.09.2014, Blaðsíða 2
fimmtudagurinn 18. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR2 UMÖNNUNARGREIÐSLUR Ný staðsetning á umönnunargreiðslukynningum. Nú í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1, 230 Reykjanesbæ, kl.20:00. Næstu kynningar 23. og 25. september 21. og 23. október 18. og 20. nóvember Umönnunargreiðslur eru fyrir foreldra barna á aldrinum 9-15 mánaða. Sækja þarf kynningu á vegum Reykjanesbæjar innan þriggja mánaða frá því að greiðslur he‰ast, þar sem ‰allað verður um grundvallaratriði í uppeldi barna og þjónusta Reykjanesbæjar kynnt. NESVELLIR Föstudaginn 19. september kl. 14:00. Kynning á vetrarstarfi FEBS og Reykjanesbæjar. Allir hjartanlega velkomnir HEILSU- OG FORVARNARVIKA  REYKJANESBÆJAR Verður haldin í sjöunda sinn dagana 29. sept. - 5. okt nk. Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sem vilja taka þᗠeru vinsamlega beðin um senda viðburðinn sinn á netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is eigi síðar en 21. september nk. Íþróa- og tómstundasvið. FORFALLAKENNARAR Forfallakennarar óskast til að leysa af við grunnskóla Reykjanesbæjar. Upplýsingar gefa skólastjórar grunnskólanna í Reykjanesbæ. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Umsóknarfrestur er til 22. október nk. STJÚPFJÖLSKYLDUR Sterkari stjúpölskyldur í Hljómahöll - Fyrirlestur Félag stjúp‰ölskyldna býður bæjarbúum á námskeið. Á námskeiðinu er farið yfir helstu áskoranir stjúp- ‰ölskyldna.  Tími: 22. sept. nk. kl. 17.00 til 19.00 í Bergi í Hljómahöll. Skráning er ástjuptengsl@stjuptengsl.is. Allir velkomnir! EKUR ÞÚ VARLEGA? 30 km hámarkshraði er í íbúðahverfum. Hvetjum íbúa til að aka varlega Sýnum tillitssemi – ökum varlega. 30 -fréttir pósturu vf@vf.is ■■ Tekist á um rekstur og skuldir Reykjanesbæjar: „Komið að skulda- dögum hjá okkur“ - „Þegar gripið til aðhaldsaðgerða og væntanlega munum við kynna fleiri aðgerðir fljótlega,“ segir Friðjón Einarsson. Tekist var á um rekstur og skuldir Reykjanesbæjar á bæjarstjórnarfundi á þriðju- dagskvöld. Nýr meirihluti hefur áhyggjur af stöðu sveitarsjóðs í kjölfar uppgjörs fyrir rekstur Reykjanesbæjar fyrir fyrri hluta ársins. „Í upphafi árs var gert ráð fyrir 23 milljóna króna hagnaði á sveitar- sjóði á árinu og að samstæðan myndi skila 95 milljónum króna í mínus. Nú þegar erum við komin 648 milljónir í mínus með sveitar- sjóðinn og í 1.132 milljón króna með samstæðuna. Þetta vekur ugg í mínu brjósti, þetta eru stórar tölur,“ sagði Guðbrandur Einars- son, bæjarfulltrúi Beinar leiðar, á fundinum. „Þessi staða upp á 648 milljónir króna núna og til að fara í 23 milljóna króna hagnað eins og áætlanir gerðu ráð fyrir, þá þurfum við að ná í 670 milljónir króna á seinni hluta ársins til viðbótar við þennan skóla. Þá erum við að tala um að vandamálið hjá bæjarsjóði sé yfir milljarð króna. Verkefnið er stórt og við þurfum að samein- ast um að leysa það,“ sagði Guð- brandur á fundinum. Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði á bæjar- stjórnarfundinum að helsta vanda- mál sveitarfélagsins um þessar mundir hafi verið gríðarleg fjölgun fólks. „Fjölgun hér hefur verið það mikil að útgjöld hafa verið að vaxa og vaxa á ýmsum sviðum. Kostnaður vegna fjárhagsaðstoðar er mikið hærri en við gerum ráð fyrir, það eru fræðslumálin. Svo eru það málefni fatlaðra sem eru miklu dýrari en við höfum verið að gera ráð fyrir og eru stór hluti af því sem við þurfum að ræða við ríkið. Kostnaðurinn er miklu meiri en við gerðum ráð fyrir þegar við tókum yfir þennan málaflokk og við fáum ekki tekjur af því fyrr en eftir væntanlega tvö ár,“ sagði Böðvar. Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar og óháðra, svaraði Böðvari að það hafi verið stefna fyrrverandi meirihluta til margra ára að fjölga íbúum í sveitarfélag- inu því stoðirnar væru svo sterkar og tilbúnar að taka á móti fjölgun- inni. „Nú erum við að sjá fjárhags- leg vandamál sem fylgja þessari miklu fjölgun,“ sagði Friðjón. „Við höfum selt eignir og tekið lán upp á 25 milljarða á síðustu tólf árum til að bjarga rekstrinum. Núna höfum við ekki eignir til að selja. Það er komið að skuldadögum hjá okkur. Við þurfum að greiða niður skuldir á næstu sjö árum upp á allt að tvo milljarða á ári, samtals fimmtán milljarða króna af rekstri, þannig að ebitda þarf að vera ansi góð til að standa undir því, sem hún hefur ekki gert síðustu tólf ár. Við sjáum það að vegna fjárfestinga og þungs reksturs til margar ára þá er staðan svona í dag. Það er ekkert sem felur það,“ sagði Friðjón. Árni Sigfússon, bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, sagði það rétt hjá Friðjóni að það hafi verið stefna fyrrverandi meirihluta að fjölga íbúum, enda sýni rannsóknir að hagstæðasta stærð sveitarfélags sé með 28-30.000 íbúum. „Fjórtán- þúsund manna samfélag á vel að standa undir þeirri grunnþjónustu sem það þarf að veita. Ég vona að það sé ekki einhver breyting hér á og vildi eiginlega spyrja Frið- jón með hvaða hætti ætla menn að stöðva þessa fjölgun. Er það þá stefna nýs meirihluta að stöðva þessa fjölgun og með hvaða hætti verður það gert,“ spurði Árni á fundinum. Ekki stóð á svari frá Friðjóni Ein- arssyni: „Það er gaman að fyrrum bæjarstjóri getur komið upp hérna og verið grínisti ef að hann hefur haldið það að ég ætli að fara að stöðva þessa fjölgun. Svona er ekki svaravert“. Nánar er fjallað um rekstrarniður- stöðu Reykjanesbæjar á síðu 2 í blaðinu í dag. Frá bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ á þriðjudagskvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.