Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.09.2014, Side 1

Víkurfréttir - 25.09.2014, Side 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 25. SEPTEMBER 2014 • 37. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Hrökklaðist hræddur aftur inn í skápinn bls 10 -í eldhúsinu bls 13 Enginn ætti að elda nema að hafa hvítvín við hönd 20 - 30 grunnskóla- kennara vantar í Reykjanesbæ Grafalvarlegt mál segir fræðslustjóri RNB. „Við vorum nánast með kennara í öllum stöðum fyrir ári síðan. Á milli 20 og 30 kenn- ara vantar núna til að manna allar stöður í grunnskólum í Reykjanesbæ, segir Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar. Landlægt vandamál sé að ekki útskrifist nógu margir kennarar til að halda í við eðlilega endurnýjun í stéttinni. Vandamálið að ekki útskrifist nógu margir kennarar til að halda í við eðlilega endurnýjun í stéttinni sé þó á landsvísu, kennara vanti víða um land. „Við lengingu á náminu höfðu kennarar og kenn- aranemar væntingar um meiri launahækkanir er raunin var. Námið þarf auðvitað að borga sig til að ungt fólk sæki í það. Önnur skýring er á kennaraskortinum er að að námið var lengt og lengri tíma tekur að útskrifa nýja kennara.“ Gylfi Jón segir að hjólin í atvinnulífinu séu að- eins byrjuð að snúast aftur og þá leiti kennarar í betur launuð störf. Um 220 kennarar starfa í Reykjanesbæ en á þriðja tug leiðbeinenda eru í kennarastöðum á undanþágum. „Þetta er grafal- varlegt mál hjá okkur. Leiðbeinendur eru gott og oft hámenntað fólk sem stendur sig vel og er stýrt af góðum stjórnendum í samstarfi við kennara. Við höfum bara sett markið hátt í Reykjanesbæ að okkar skólar séu með þeim bestu á landinu og hluti af því er að við viljum hafa menntaða kennara í þessum stöðum.“ Þá segir Gylfi Jón að kennarar í Reykjanesbæ séu í fararbroddi vegna góðs árangurs í skólamálum og hann vonar að sá árangur laði að hæft fólk. „Við þurfum að tryggja okkar grunnmenntun þannig að megin- þorri okkar nemenda fari í framhaldsnám og starfi síðan í sinni heimabyggð, hvort sem það er kennsla eða eitthvað annað.“ Myndarlegur hópur skólabarna úr 4. bekk Háaleitisskóla ásamt stjórn og starfsmönnum Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. VF-mynd: Hilmar Bragi Yfir þrjúþúsund störf á leynilista - listinn „trúnaðarmál af hinu góða“ og á bara heima á skrifstofu hafnarstjóra Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúiFramsóknarflokksins, sagði á síð- asta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að góðar fréttir væru í fundargögnum Atvinnu- og hafnarráðs Reykjanes- bæjar. Vísaði Kristinn þar til lista sem ráðið lumar á og inniheldur 3166 at- vinnutækifæri. Kristinn sagðist á bæjar- stjórnarfundinum í fullum rétti til að ræða málið, þar sem hann eða fulltrúar Framsóknarflokksins ættu ekki sæti í Atvinnu- og hafnarráði Reykjanesbæjar. „Verkefnalisti atvinnutækifæra í Reykja- nesbæ“ er plagg sem Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnaráðs hefur umsjón með. Listinn var lagður fram á síðasta fundi ráðsins þar sem farið var yfir hann með stjórnarmönnum. Þá kemur fram að listinn verði uppfærður sam- kvæmt upplýsingum frá stjórnarmönnum. Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og bæjarfulltrúi Samfylk- ingar og óháðra, sagði á bæjarstjórnar- fundinum í Reykjanesbæ í síðustu viku að verkefnalistinn yfir atvinnutækifæri í Reykjanesbæ væri í endurskoðun. Hann sagði að listinn væri umdeildur og ýmis- legt á honum þarfnist endurskoðunar. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði listann vera vinnu- plagg hafnarstjórans og mjög gróf áætlun um hugsanlega mannaflaþörf þeirra fyrir- tækja sem eru að koma eða hafa í hyggju að koma. Hann sagði listann vera vinnuplagg sem ætti heima inni á skrifstofu hafnar- stjórans og vinnuplagg fyrir atvinnu- og hafnarráð „en ekki gagn sem við eigum að taka sem heilagan sannleika hér á bæjar- stjórnarfundi“. Jóhann Snorri Sigurbergsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði á bæjarstjórnar- fundinum að á listinn væri skrá yfir þá aðila sem hafa rætt við bæjaryfirvöld eða sóst eftir aðstöðu við höfnina. Verkefnin á listanum væru flokkaskipt eftir því hversu langt þau væru komin. Hann sagði gott að geta fylgst með verkefnunum á þennan hátt en listinn „væri trúnaðarmál af hinu góða“ enda var ekki upplýst á bæjar- stjórnarfundinum um hvaða atvinnutæki- færi væri að ræða. XXÁ næstu þremur árum verða gróðursett 20.000 tré innan íbúða- byggðarinnar á Ásbrú. Nemendur í 4. bekk Háaleitisskóla settu niður fyrstu trén með aðstoð stjórnar og starfsmanna Þróunar- félags Keflavíkurflugvallar, KADECO, á degi Íslenskrar náttúru í síðustu viku og marka þar með upphaf nýs kafla í umhverfisendur- bótum fyrrum varnarsvæðisins. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur á undanförnum þremur árum unnið að aukinni trjárækt á Ásbrú. Gróðursetningin hefur verið unnin í samstarfi við Reykja- nesbæ og Skógræktarfélag Suðurnesja. Alls hafa, á þessum þremur árum, verið gróðursett yfir 15.000 tré flest í jaðri byggðar Ásbrúar meðfram Reykjanesbrautinni en einnig á svæðum innan Ásbrúar. - Sjá nánar á vf.is. 35.000 tré gróðursett á Ásbrú

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.