Víkurfréttir - 25.09.2014, Blaðsíða 6
fimmtudagurinn 25. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR6
-mannlíf pósturu vf@vf.is
vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is,
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur
Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn
sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
SÍMI 421 0000
Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is
SÖLUSÝNING
HÚSBÍLA
HELGINA 27. - 28. SEPTEMBER
KL. 11:00 – 16:00
Vegna endurnýjunar bílaflota Touring
Cars Iceland bjóðum valda húsbíla til
sölu á frábærum kjörum.
Komdu, reynsluaktu og þiggðu léttar
veitingar í húsnæði okkar að
Klettatröð 6, 235 Ásbrú, Reykjanesbæ.
Kaupauki fylgir hverjum seldum bíl svo ekki
láta þetta tækifæri framhjá þér fara.
783 4722 (IS) 783 0722 (ENG)
AÐALFUNDUR
SMÁBÁTAFÉLAGS
REYKJANESS
verður haldin í Salthúsinu í Grindavík
sunnudaginn 28. september kl. 17:00.
Trillukarlar fjölmennið á fundinn.
Einar Ingimundarson hefur tek ið saman s ögu L ög-
reglunnar í Keflavík. Til stóð að
bókin kæmi út á 70 ára starfsaf-
mæli lögreglunnar í Keflavík
árið 2005, en síðar var ákveðið að
sögunni lyki 31. desember 2006,
en þá var lögreglan í Keflavík
lögð niður og við tók lögreglan á
Suðurnesjum. Ritnefnd sögu lög-
reglunnar í Keflavík skipuðu, auk
Einars Ingimundarsonar, sem
féll frá árið 2012, þeir Jóhannes
Jensson, Karl Hermannsson, Jón
Eysteinsson og Ásgeir Eiríksson.
Í umsögn um bókina, segir Jón
M. Ívarsson sagnfræðingur:
„Saga lögreglunnar í Keflavík er
stórvirki þar sem rakin er saga
löggæslu á Suðurnesjum allt frá
upphafi. Höfundur verksins, Einar
Ingimundarson, var sjálfur lög-
reglumaður í Keflavík um miðja
öldina og því vel kunnugur að-
stæðum lögreglumanna frá þeim
tíma og til nútímans. Einar vann að
þessu verki árum saman og lagði í
það ómældar vinnustundir. Mörg
eru atriðin sem skoða þarf í ævi-
skrám og hann var óþreytandi við
að draga þau fram úr ættfræði-
bókum, stéttartölum, dagblöðum
og frásögnum manna hvar sem þau
var að finna. Þegar Einar féll frá,
árið 2012, hafði verkið tekið á sig
endanlega mynd en aðstandendur
verksins hafa lagt á það lokahönd.
Í sögu lögreglunnar er að finna
æviskrár sjö lögreglustjóra og 260
lögreglumanna sem starfað hafa
um lengri eða skemmri tíma í
Keflavík, Njarðvík, Sandgerði og
Grindavík. Mikill fróðleikur er í
stórmerkum frásagnaþáttum
tólf lögreglumanna sem spanna
tímann frá upphafi seinni heims-
styrjaldar til dagsins í dag. Þar er
sagt frá hinu fjölbreytta lífi og starfi
lögreglunnar þar sem enginn dagur
er öðrum líkur. Litríkar frásagnir
af ballvöktum, brotamönnum, bú-
fjársmölun, björgunarstörfum,
sjúkraflutningum, umferðarstjórn,
friðarstillingu og fangavörslu, gefa
einstaka innsýn í líf lögreglumanna
sem oft þurftu að starfa við það
sem telja mætti ómögulegar að-
stæður.
Bókin er fallega innbundin, 200
blaðsíður að stærð, prýdd fjölda
sögulegra ljósmynda frá starf-
semi lögreglunnar ásamt andlits-
myndum allflestra þeirra er þar
koma við sögu“.
Forsala er hafin á bókinni og opnuð
hefur verið Facebook síða með
nafni bókarinnar til frekari upplýs-
ingar, sem heitir Saga lögreglunnar
í Keflavík. Aðstandendur Einars
sjá um að gefa út bókina, því er
fyrirtæki tengdasonar Einars og
dóttur hans útgefandi, fyrirtækið
S. Stefánsson & Co. Bókin verður
ekki seld á almennum markaði en
Lögreglufélag Suðurnesja sér um
kynningu og dreifingu á henni.
Bókin er væntanleg úr prentun í
lok október og fyrstu eintök fara
í dreifingu vonandi strax þann 1.
nóvember næstkomandi.
Áhugasamir um að kaupa
bókina á tilboðsverði á kr.
6000 í forsölu geta haft sam-
band á heimasíðu S.Stefánsson
& Co fyrir 20. Október. www.
sstefansson.com/Panta.html
Saga Lögreglunnar í Keflavík í prentun
-instagram #vikurfrettir
Farin að pína þessar þrisvar í viku #massaðar Mynd:berglindBjork
Þegar Ísland rís úr kreppunni þá verða tækifærin á Suðurnesjum. Ýmis
merki eru um það að landið sé að rísa og við sjáum stöðuna batna á
Suðurnesjum. Tækifærin í ferðaþjónustu eru gríðarleg á Suðurnesjum
og á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum nýverið var flutt
erindi um framtíðarhorfur á Keflavíkurflugvelli. Þar kom m.a. fram
að árið 2023, eftir níu ár, verði fjöldi ferðamanna til Íslands kominn í
tvær milljónir. Í dag eru þeir ein milljón. Þessi fjölgun um eina milljón
ferðamanna kallar á yfir 6000 ný störf í tengslum við flugið. Keflavíkur-
flugvöllur er stóriðja okkar Suðurnesjamanna og ígildi margra álvera.
Suðurnesjamenn þurfa að hlúa vel að flugvellinum og stjórnendur flug-
vallarins þurfa einnig að hlúa vel að Suðurnesjum.Á forsíðu Víkurfrétta
í dag er greint frá lista sem atvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar vinnur
með á fundum sínum. Á þessum lista, sem er leynilegur, er haldið saman
öllum þeim atvinnutækifærum sem kynnt hafa verið fyrir yfirvöldum í
Reykjanesbæ. Á listanum eru atvinnuverkefni sem komin eru að komast
á koppinn og önnur sem eru til skoðunar. Listinn, sem í dag stendur í at-
vinnutækifærum fyrir 3166 manns, er gagn eða vísbending um að mögu-
leikar Reykjanesbæjar sem og Suðurnesja séu miklir í atvinnumálum.
Innan um öll þessi jákvæðu teikn í atvinnumálum er hins vegar sorgleg
þróun þar sem fjölmargar fasteignir á Suðurnesjum eru komnar í eigu
Íbúðalánasjóðs en samtals er um 40% eignasafns sjóðsins á Suður-
nesjum. Fjölmargar eignir sjóðsins standa einnig auðar og fólki gengur
illa að fá þessar eignir keyptar eða leigðar. Eftir hverju er Íbúðalána-
sjóður að bíða? Er beðið eftir þenslu á Suðurnesjum þannig að þessar
eignir fari þá á uppsprengdu verði?
Landshluti
tækifæranna
-ritstjórnarbréf
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar