Víkurfréttir - 02.10.2014, Side 2
fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
Menningarráð Reykjanesbæjar
óskar eftir tilnefningum vegna
menningarverðlauna Reykjanes-
bæjar. Tilnefna skal einstakling,
hóp og/eða fyrirtæki sem unnið
hafa vel að menningarmálum í
bænum. Tilnefningum skal skilað á
skrifstofu menningarsviðs,
Tjarnargötu 12 eða á netfangið:
sulan@reykjanesbaer.is fyrir
8. október næstkomandi.
Upplýsingar um verðlaunahafa
fyrri ára og nánari reglur má finna
á vef Reykjanesbæjar.
Menningarráð Reykjanesbæjar
SÚLAN
MENNINGARVERÐLAUN
REYKJANESBÆJAR 2014
NESVELLIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR
HEILSU- OG
FORVARNARVIKA
Í REYKJANESBÆ
Heilsu- og forvarnarvikan er í fullum
gangi til sunnudags.
Fullt af fróðlegum og skemmtilegum viðburðum.
Kynnið ykkur dagskrána á reykjanesbaer.is
og á facebooksíðu Reykjanesbæjar.
DAGSKRÁ FRAMUNDAN Í
HLJÓMAHÖLL
SNJÓMOKSTUR OG
HÁLKUEYÐING
MIÐ-ÍSLAND - 9. október í Stapa - Örfáir miðar lausir
KK - 10. október í Bergi - Örfáir miðar lausir
ÁRSTÍÐIR - 23. október í Bergi - Miðasala hafin
MIÐASALA Á HLJOMAHOLL.IS
Reykjanesbær óskar eftir verktökum til að taka þátt í
snjómokstri og hálkueyðingu á götum og gangstígum
í Reykjanesbæ.
Verktími 1. nóvember 2014 til 1. maí 2018.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar um þann tækjakost
sem þeir ætla að nota við verkið á netfangið bjarni.
karlsson(hja)reykjanesber.is fyrir 20. október 2014.
3. október kl. 14.
Slagkraftar
Nemendur úr tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Spilabingó
Allir velkomnir
-fréttir pósturu vf@vf.is
Reykjanesbær hefur frestað framkvæmdum upp á 70
milljónir króna í sem áttu að fara
fram í Helguvík á þessu ári. Fram-
kvæmdunum er frestað til næsta
árs. Siglingastofnun vinnur nú
að hönnun á 150 metra löngum
viðlegukanti í Helguvíkurhöfn.
Gert er ráð fyrir að ráðast verði í
þá framkvæmd á næsta ári. Ekki
eru til peningar til að fara í þá
framkvæmd sem er nauðsynleg
vegna uppbyggingar kísilvera í
Helguvík.
„Þegar hafa verið teknar ákvarð-
anir um að fresta framkvæmdum
sem voru fyrirhugaðar á þessu ári
yfir til næsta árs. Viðlegukanturinn
sem um ræðir er nauðsynlegur
vegna uppbyggingar á kísilver-
unum tveim en það er ljóst að við
munum fresta þessari vinnu eins
lengi og við getum og þar til pen-
ingar koma inn. Við höfum ekki
fjármagn sem stendur til að fara
í framkvæmdir,“ sagði Friðjón
Einarsson, formaður bæjarráðs
Reykjanesbæjar, á fundi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar í síðustu
viku.
„Við vitum það að við höfum
skyldum að gegna við þessi kísilver
sem eru að koma. Við munum ekki
fara út í neinar framkvæmdir nema
þær séu virkilega bráðnauðsyn-
legar. Það er alveg ljóst“.
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurf-rétta, hlaut Lundann 2014 en
það er viðurkenning sem Kiw-
anisklúbburinn Keilir í Reykja-
nesbæ veitir á hverju ári og hefur
gert frá árinu 2002. Verðlauna-
gripurinn er uppstoppaður lundi
sem er afhentur þeim einstaklingi
sem þykir hafa látið gott að sér
leiða eða unnið óeigingjarnt starf
í þágu samfélagsins, bæjarbúa eða
bæjarfélagsins. Kiwanisfélagar
efna á hverju hausti til Lunda-
fagnaðar í KK-salnum í Reykja-
nesbæ þegar viðurkenningin er
veitt og var nú sl. föstudagskvöld.
Ragnar Örn Pétursson, formaður
fræðslunefndar Keilis sagði að
nefndinni hefðu borist fjölmargar
tillögur um einstaklinga sem voru
vel að því komnir að fá þessi verð-
laun.
Páll er eigandi Víkurfrétta en fyrir-
tækið fagnaði þrjátíu ára afmæli í
fyrra. Hjá VF starfa um tíu manns
og það gefur út samnefnt vikublað
á Suðurnesjum, heldur úti frétta-
vefnum vf.is og golfvefnum kylf-
ingur.is sem og vikulegum sjón-
varpsþætti. Þá hefur Páll ritstýrt
tímariti Golfsambands Íslands,
Golf á Íslandi, í rúman áratug.
Páll sagði í stuttri ræðu eftir af-
hendinguna að lykill að velgengi
fyrirtækisins lægi í mannauði þess
en sagði líka að góð tenging við
íbúa og samstarf við lesendur og
áhorfendur hefði mikið að segja.
Hann þakkaði Kiwanismönnum
fyrir viðurkenninguna og sagði þá
vinna ómetanlegt starf í félags- og
líknarmálum en klúbburinn hefur
m.a. í langan tíma selt jólatré og
nýtt afraksturinn til líknarmála á
hverju ári.
Páll Ketilsson hlaut
Lundann 2014
Saga Lundans
XuLundinn var fyrst afhentur
árið 2002 og þá hlutu hann
þeir Vilhjálmur Þorleifsson
og Óskar Ívarsson, starfsmenn
áhaldahúss Reykjanesbæjar, en
þeir höfðu unnið í áratugi við að
fegra bæinn.
Árið 2003 hlaut Lundann Ólafur
Oddur Jónsson heitinn, sóknar-
prestur í Keflavíkursókn sem í
mörg ár hélt uppi umræðum og
fræðslu gegn sjálfsvígum.
Tómas Knútsson hlaut Lundann
árið 2004 en Tómas setti á fót Bláa
herinn sem hefur unnið ötullega
við að hreinsa strandlengjuna og
þá hefur hann stjórnað Sportköf-
unarskóla Íslands.
Steinþór Jónsson hótelstjóri á
Hótel Keflavík og bæjarfulltrúi
hlaut Lundann fyrir árið 2005.
Steinþór var upphafsmaður að
lýsingu Bergsins og síðan hátíð-
inni Ljósanótt sem fylgdi í kjöl-
farið.
Árið 2006 hlaut Sigfús B. Ingva-
son prestur í Keflavík Lundann.
Árið 2007 hlaut Erlingur Jónsson
Lundann. Erlingur hefur látið til
sín taka í forvarnarstarfi í Reykja-
nesbæ og hefur ritað ófáar greinar
um skaðsemi eiturlyfja.
Árið 2008 hlaut Lundann Ragn-
heiður Sif Gunnarsdóttir for-
stöðumaður í Björginni – Geð-
ræktarmiðstöð Suðurnesja.
Árið 2009 hlaut Karen J. Stur-
laugsson aðstoðarskólastjóri
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Lundann.
Lundann 2010 hlutu Halldór
Halldórsson og Haraldur Har-
aldsson úr rústabjörgunarsveit
Landsbjargar og félagar í Björg-
unarsveit Suðurnesja.
Hjálmar Árnason, framkvæmda-
stjóri Keilis hlaut Lundann
árið 2011. Keilir miðstöð vís-
inda,fræða og atvinnulífs er eitt
af óskabörnum Suðurnesjamanna
sem varð til við brotthvarf varnar-
liðsins árið 2006.
Árið 2012 hlaut Þórarinn Ingi
Ingason f lugstjóri hjá
L a n d h e l g i s g æ s lu n n i
Lundann.
Árið 2013 hlaut Arnór
Vilbergsson, organisti
og kórstjóri við Kefla-
víkurkirkju Lund-
a n n . A r n ó r
hefur verið
d r i f -
f jöðrin
í m j ö g
öflugu kóra-og
tónlistarstarfi.
Reykjanesbær frestar framkvæmdum í Helguvík
Verður „Slökkvilið Suðurnesja“ að veruleika?
Grindavíkurbæ hefur verið boðið til viðræðna um stofnun byggðasamlags um Brunavarnir Suðurnesja. Aðildarsveitar-
félög Brunavarna Suðurnesja eru Reykjanesbær, Sveitarfélagið
Garður og Sveitarfélagið Vogar.
Sandgerðisbæ hefur einnig verið boðið til viðræðna um aðild að
stofnun byggðasamlags um brunavarnir á Suðurnesjum. Bæjarráð
Grindavíkur afgreiddi málið með því að fresta því til næsta fundar.