Víkurfréttir - 02.10.2014, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
„Fjölsmiðjan hefur meiri þýð-
ingu fyrir samfélagið en nokkurn
tímann áður. Einn skjólstæðinga
okkar sagði að ef hann væri ekki
hér þá væri hann heima í tölvu-
leik. Við krefjum krakkana um
virkni, hringjum í þau ef þau eru
ekki mætt og sækjum þau jafn-
vel,“ segir Þorvarður Guðmunds-
son, forstöðumaður Fjölsmiðj-
unnar á Suðurnesjum.
Skjólstæðingum fjölgar
18-19 krakkar nýta sér úrræði Fjöl-
smiðjunnar og stefnt er á að þeim
fjölgi í 30. Þeir koma í gegnum fé-
lagsþjónustur sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og frá Vinnumála-
stofnun. „Við aðstoðum þá í virkri
atvinnuleit. Þetta er mjög einstakl-
ingssniðið hjá okkur úr frá því hvar
hver er staddur. Stundum er gerður
vinnustaðasamningur. Þá eru þau
kannski þrjá daga á vinnustað og
tvo hjá okkur. Þá sleppum við þeim
ekki alveg frá okkur og þau eru þá
tilbúnari og geta tekið upp þráðinn
aftur. Sum koma aftur því að fyrir-
komulagið hentaði ekki. Allir ná í
reynslu og sumir jafnvel meðmæli.
Þetta verður markvissara núna
með aðkomu atvinnuráðgjafans,“
segir Þorvaldur.
Efla styrk og sjálfsöryggi
Atvinnuráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni
er Helga María Finnbjörnsdóttir.
„Ég fylgi krökkunum eftir því
markmiðið er að krakkarnir fari
héðan og komist í starf eða nám
annars staðar. Ég skoða með þeim
hvað vantar upp á til þess að þeir
geti farið á almennan vinnumarkað
eða í nám. Í því felst markmið-
asetning, fræðsla á okkar vegum
og annarra, t.d. innhverf íhugun,
hamingjufyrirlestur og skyndi-
hjálp. Einnig fræðum við þá um
réttindi og skyldur á vinnumarkaði
og upplýsingatækni. Við eflum
þau svo að þau finni styrk hjá sér
og sjálfsöryggi til að fara eitthvað
annað,“ segir Helga María og bætir
við að ungmennin fái ákveðinn
tíma með sér þar sem þau setjist
niður og ræði málin, hvort sem
það er eitthvað sem þau glíma við
í persónulegu lífi sínu eða hjá Fjöl-
smiðjunni. „Þau ráða því hvernig
þau nýta tímann hjá mér. Þau geta
t.d. sett sér markmið eins og að
fara í ræktina, hætta að reykja eða
annað.“ Helga María er viðskipta-
fræðingur með kennsluréttindi
og kláraði meistaranám í stjórnun
og eflingu mannauðs. „Starfið er
í senn krefjandi og gefandi. Mér
finnst rosalega gaman að sjá ein-
staklingana þroskast og eflast og
þegar þau finna að þeim líður vel
hér og vilja koma hingað.“
Brettasmíði nýjasta verkefnið
Rekstur Fjölsmiðjunnar snýst
mik ið um star fsemi Nytja-
markaðarins við Smiðjuvelli í
Reykjanesbæ. Markaðurinn hefur
að sögn Þorvarðar gengið mjög
vel í sumar og opnunartíminn
verið lengdur á fimmtudögum til
klukkan sex. „Við lokuðum bíla-
þvottadeildinni í sumar en vorum
í staðinn með útimarkað þar sem
fjöldi fólks kom og keypti hús-
gögn. Við sækjum einnig vörur til
fólks og í Kölku og slíkt.“ Einnig er
fyrirhugað að leigja stærri hluta af
húsinu og fara í brettasmíði. „Við
munum tilsníða nýjar pallettur úr
efni úr gömlum brettum. Þær eru
fyrir fyrirtæki í fiskútflutningi. Til
þess þurfum við að stækka hús-
næðið því Fjölsmiðjan er að stækka
og við erum aðþrengd með pláss
þótt við séum í 600 fermetrum.“
Vildarvinir velkomnir
Fjölsmiðjan byggist á fjárfram-
lögum frá sveitarfélögunum,
Vinnumálastofnun og ríkinu. „Það
nægir ekki og því reynum við að
sjálfsafla fé og okkur vantar verk-
efni sem krakkarnir geta unnið.
Einnig vantar okkur vildarvini
Fjölsmiðjunnar - einstaklinga sem
vilja láta gott af sér leiða. Margir
þeirra vilja gefa vörur í Nytja-
markaðinn, aðrir koma að versla.
Sumir velja að taka ekki við afgangi
þegar þeir kaupa og vilja heldur láta
hann renna til krakkanna. Ef ein-
hverjir gerast vildarvinir þá getur
það runnið til þessarar fræðslu og
afþreyingar fyrir krakkana.“ segir
Þorvarður.
Dúkkuhúsið var farið um leið
Lykilorð Fjölsmiðjunnar eru virð-
ing og umburðarlyndi og unnið
er úr frá þeim. „Einnig er rými
fyrir alla og við erum öll ólík. Hér
er og hefur verið gott starf unnið.
Mér finnst ég gera samfélaginu gott
með því að veita þessu forstöðu, læt
mig málin varða og er hluti af ein-
hverju góðu. Það er svo hvetjandi.
Það eru nefnilega einnig margir á
bak við okkur sem vilja okkur vel.
Það er rými fyrir okkur öll,“ segir
Þorvarður og minnir á Facebook
síðuna Fjölsmiðjan á Suðurnesjum.
„Þar seljum við grimmt. Allt sem
glepur augað vekur athygli. Það
kom dúkkuhús um daginn og það
var farið um leið. Kona ein kom
úr Reykjavík því hún sagði að það
væri ódýrara að aka suðureftir og
kaupa vöruna hjá okkur en í Góða
hirðinum,“ segir hann brosandi að
lokum.
■■ Rými fyrir alla hjá Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum.
Hefur meiri þýðingu fyrir samfélagið en nokkru sinni fyrr:
Velja Fjölsmiðjuna
framyfir tölvuleiki
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
Þorvarður Guðmundsson, Helga María Finnbjörnsdóttir og Sigurgeir Tómasson.
Það kom dúkku-
hús um daginn og
það var farið um leið