Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.10.2014, Page 13

Víkurfréttir - 02.10.2014, Page 13
ÞETTA ER EKKI RÉTTLÁTT! Hækkun á matvælum Hækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum. Heilbrigðismál Með meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðis­ þjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Menntamál Fyrirheit um eflingu starfs­, verk­ og tæknimenntunar eru svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla form­ lega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega. Starfsendurhæfing Niðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Skattalækkanir Ríkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu. Atvinnuleysistryggingar Stytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnu­ lausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu. Húsnæðismál Ekki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta miklum vanda í húsnæðismálum. Jafnræði í lífeyrismálum Skert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyris­ sjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ. Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi. Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana. E N N E M M / S ÍA / N M 6 4 5 8 0

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.