Víkurfréttir - 09.10.2014, Blaðsíða 4
fimmtudagurinn 9. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
Peningastefnunefnd Seðla-banka Íslands fundaði á
Suðurnesjum sl. föstudag. Þetta
er fyrsti fundur nefndarinnar
utan Seðlabankans, en nefndin
hóf fyrst störf árið 2009.
Nefndin hélt fund á Northern Light
Inn fyrir hádegi sl. föstudag en
eftir hádegið var rætt við fulltrúa
Reykjanesbæjar og Grindavíkur,
farið í skoðunarferðir um bæina og
fyrirtæki og stofnanir heimsóttar.
Tilgangur þess að peningastefnu-
nefnd er að funda með þessu móti
er meðal annars að kynna sér
sjónarmið heimafólks bæði í at-
vinnulífi og opinberri starfsemi,
en upplýsingar af þessu tagi nýt-
ast peningastefnunefndinni við
ákvörðunartöku.
Peningastefnunefnd
Seðlabankans til Suðurnesja
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar nefndin heimsótti höfuðstöðvar
Reykjanesbæjar. Á myndinni er Seðalabankafólkið ásamt Hirti Zakarías-
syni, staðgengli bæjarstjóra Reykjanesbæjar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Allt hreint hlaut nýlega Svan-inn sem er opinbert um-
hverfismerki Norðurlandanna.
Allt hreint er annað fyrirtækið á
Suðurnesjum sem er Svansvottað
en Umhverfisstofnun hefur um-
sjón með útgáfu Svansmerkisins.
Fram kom þegar Allt hreint tók
við vottuninni að miklar kröfur
eru gerðar til þeirra fyrirtækja
sem hljóta Svansmerkið. Hins
vegar sé einnig til mikils að vinna
fyrir þau fyrirtæki sem hljóta
vottunina.
Svanurinn er opinbert umhverfis-
merki Norðurlandanna sem bygg-
ist á óháðri vottun og viðmiðum
sem taka tillit til alls lífsferils vöru
og þjónustu. Tilgangur Svansins er
að ýta undir sjálfbæra þróun sam-
félagsins svo að komandi kynslóðir
hafi jafna möguleika og við til að
mæta þörfum sínum.
Allt hreint þjónustar fjölda fyrir-
tækja og stofnana í Reykjanesbæ
sem og á höfuðborgarsvæðinu og
hjá því starfa um þrjátíu manns.
Fyrirtækið býður bæði einstakling-
um og fyrirtækjum upp á ræstingar,
hreingerningar, gluggahreinsun,
rimlagardínuhreinsun, teppa-
hreinsun, steinteppahreinsun,
bónhreinsun, bónun gólfa og dúka
ásamt því að sjá um þrif á flísum og
þrif á loftræstikerfum.
Allt hreint hefur á bak við sig
ræstingarfólk sem hefur áratuga
reynslu af ræstingum en lögð er
sérstök áhersla á persónuleg sam-
skipti við verkkaupa. Einnig er veitt
öll sú aðstoð sem þörf er á hvað
varðar ráðgjöf og fleira.
-fréttir pósturu vf@vf.is
Allt hreint fær Svansvottun
Fengu risaþorsk á
Austfjarðamiðum
Áhöfnin á Ágústi GK 95 fékk heldur
betur vænan þorsk á lín-
una á Austfjarðamiðum
þann 3. október.
Þorskurinn á myndinni
var 165 sm langur en
þyngdin á honum er eitt-
hvað óljós en þorskurinn
var talinn vera 45-50 kílóa
þungur.
„Aflinn þennan dag var
mjög góður og kaldas-
kítur á miðunum,“ segir
í fréttaskeyti frá áhöfninni
til Víkurfrétta. Ágúst GK
landar á Djúpavogi um
þessar mundir.
Eigendur Allt hreint, þau Halldór Guðmundsson, Hilmar R. Sölvason
og Inga Rut Ingvarsdóttir ásamt hluta starfsfólksins. VF-mynd: Hilmar Bragi
Smart Watch
Nú erum við að tala saman !
Heildsalan - Ludviksson ehf - Ledljós
Njarðarbraut 3i - Innri Njarðvík - S: 8678911
Þetta er jólagjöfin í ár.
Margmiðlunarúr með öllu.
Verðin okkar eru frá 16.560 .-
Breytingar hjá lögfræðisviði
lögreglustjórans á Suðunesjum
XuAlda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglustjór-
anum á Suðurnesjum, hefur verið sett sem varalögreglustjóri hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu í eitt ár frá 1. október s.l. Vilhjálmur
Reyr Þórhallsson, yfirmaður lögfræðisviðs, tekur við af Öldu. Einnig
er Óli Ásgeir Hermannsson fulltrúi í ársleyfi en hann fór til starfa
sem lögfræðingur hjá Landhelgisgæslu Íslands. Tveir nýir starfsmenn
hjá sviðinu eru Súsanna Fróðadóttir, sem hóf störf um síðastliðin
mánaðamót og Guðmundur Þórir Steinþórsson, sem hefur störf um
þau næstu.
Grindvíkingar vilja taka yfir hjúkrun í Grindavík:
Ekki tímabært að taka
þátt í stofnun Öldungaráðs
XuÓskað var eftir því að félagsmálanefnd Grindavíkur að hún til-
nefndi tvo fulltrúa í undirbúningshóp um stofnun Öldungaráðs á
Suðurnesjum.
Félagsmálanefnd Grindavíkur hefur bókað að í ljósi þess að stefna
Grindavíkurbæjar er að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð
og heimahjúkrun, telur félagsmálanefnd rétt að Grindavíkurbær einbeiti
sér að því að koma á fót Öldungaráði í Grindavík sem geti verið bæjar-
stjórn til samráðs um það verkefni.
Félagsmálanefnd telur eftir sem áður mikilvægt að halda góðu samstarfi
við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum um uppbyggingu þjónustu við eldri
borgara á Suðurnesjum, en telur ekki tímabært að taka þátt í stofnun
Öldungaráðs á Suðurnesjum að svo stöddu.
Bæjarráð Grindavíkur tekur undir tillögu félagsmálanefndar um að ekki
sé tímabært að taka þátt í stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum.
Eysteinn Örn Garðarsson, 1.
vélstjóri, með þorskinn væna.
Eigendurnir með Svansvottunina