Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2014, Side 10

Víkurfréttir - 09.10.2014, Side 10
fimmtudagurinn 9. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR10 „Ef ég er að styrkja íþróttalífið í Grindavík og bæjarapparatið ætlar að setja fyrir okkur fótinn, þá er ekki hægt að styrkja íþrótta- starfið. Það er bara verið að benda á að ef fyrirtækið lokar þá getur það ekki styrkt íþróttastarfið,“ segir Hermann T. Ólafsson, eig- andi Stakkavíkur, eins stærsta fiskvinnslu- og útgerðarfyrir- tækis í Grindavík en hann sendi í vor hótun í tölvupósti til bæjar- fulltrúa Grindavíkur og forráða- manna Ungmennafélags Grinda- víkur þess efnis að fái hann ekki starfsleyfi til fjögurra ára fyrir fyrirtækið Þurrkaðar fiskafurðir, sem hann á helmingshlut í, þá myndi fyrirtæki hans (Stakkavík) hætta stuðningi við íþróttastarf í bæjarfélaginu. Hermann og fyrir- tæki hans hafa verið einn stærsti stuðningsaðili íþrótta í Grinda- vík um árabil. Þetta hitamál kom upp í að- draganda kosninga í vor. Þurrk- aðar fiskafurðir ehf. sóttust þá eftir starfsleyfi til fjögurra ára en áður hafði leyfi verið veitt til eins árs til reynslu. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafði veitt leyfið til þess að skoða mætti hvort sérstakur hreinsunarbúnaður virkaði sem skyldi. Fulltrúar frá B- og S-lista í Grinda- vík vildu klára þennan umrædda árs-reynslutíma og lögðu t i l skömmu f yr i r kosningar í vor, að málinu yrði frestað fram á haust. Fulltrúar G-lista voru því ekki sam- mála. Í bókun bæjarráðs þann 21. maí s.l. segir að það sé vilji fyrirtækisins að vera með sitt á hreinu enda hafi þeir fjárfest í dýrum búnaði til að koma í veg fyrir ólykt. Full- trúar G-listans vildu veita þeim leyfið og eyða þeirri rekstraróv- issu sem fyrirtækið hafi búið við og svo það gæti haldið áfram sinni uppbyggingu. Fulltrúi D-lista tók undir með fulltrúa G-lista. Leyfið var síðan samþykkt á fundi Heilbrigðisnefndar Suðurnesja en í henni sitja fulltrúar frá öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum, þar af er einn frá Grindavík, sem sótti það stíft að fyrirtækið fengi leyfið til fjögurra ára. Lovísa H. Larsen frá G-lista var fulltrúi Grindavíkur í Heilbrigðis- nefnd Suðurnesja á þessum tíma. „Það er heill flokkur sem tekur þessa ákvörðun. Eftir að hafa skoðað málin ítarlega þá vorum við þeirrar skoðunar að það væri hægt að halda lyktinni í algjöru lágmarki og það á iðnaðarsvæði. Með það í huga að þeir færðu sig út á Reykja- nes í framtíðinni,“ segir Lovísa. Hún segist hafa farið í umrætt fyrirtæki og skoðað aðstæður ásamt Jóni Guðmundi Ottóssyni frá Stakkavík og fleirum. Hún segir svo meirihlutanum í Grindavík að hún gæti ekki neitað þeim um leyfið af engum ástæðum. Þegar hún svo heldur á fund heilbrigðis- nefndar þá hafi bæjarfulltrúar frá Grindavík haft samband við Heil- brigðiseftirlit Suðurnesja. Lovísa biður þá um að afgreiðslu máls- ins verði frestað. Hún segir að við það hafi margir aðilar orðið reiðir. Í þessu ferli öllu saman segist hún ekki hafa rætt neitt við Hermann Ólafsson hjá Stakkavík. „Eftir að málinu var frestað þá sendir hann einhvern tölvupóst. Ég fékk hann ekki en heyrði af honum frá mín- um flokksfélögum,“ sagði Lovísa. Hvernig varð ykkur um við innihald póstsins? „Mér líkar aldrei vel við hótanir, sama hver á í hlut. Ég tók þarna upplýsta ákvörðun áður en ég labba inn á þennan fund sem var svo frestað. Þessi póstur berst svo eftir það.“ Lovísa segir að eftir að Kristín kom af bæjarráðsfundi með bókun frá Sjálfstæðisflokki þá hafi þessi ákvörðun verið tekin innan G-lista. „Við hefðum annars aldrei gert það ein,“ segir Lovísa og ítrek- ar að ákvörðunin hjá G-lista hafi verið tekin í samráði við fulltrúa D-lista. Létu ekki undan þrýstingi frá Hermanni Kristín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar og fulltrúi G-lista, segir að ekki hafi verið samstaða um málið í bæjarstjórninni. „Við fórum hins vegar og kynntum okkur málið mjög vel áður en tekin var ákvörðun um þetta í heil- brigðisnefndinni. Við kynntum okkur hvernig búnaðurinn virkaði, heimsóttum fyrirtækið og ræddum við sérfræðinga hjá Matís. Við vissum líka að það að vera með árs- leyfi setur fyrirtæki í erfiða stöðu þegar þau eru að fjárfesta og byggja upp.“ Kristín viðurkennir að hún kannist við það að Hermann í Stakkavík hafi látið í sér heyra og gert því skóna að hann hygðist hætta að styrkja íþróttastarf í bænum. „Það hafði alls ekki áhrif á okkar ákvarð- anatöku. Ef mönnum sem eiga hagsmuna að gæta finnst að sér vegið, eins og honum fannst þarna, þá skil ég alveg þeirra sjónarmið. Við vorum hins vegar ekki að láta undan þrýstingi frá Hermanni í Stakkavík.“ Finnst þér eitthvað óeðlilegt við þessa yfirlýsingu hans? „Ég ætla ekki að fara að meta hvað er eðlilegt og óeðlilegt í fari Her- manns í Stakkavík. Það verður hver og einn að fá að hafa það eins og hann vill, hvernig hann ætlar að verja sína hagsmuni. Þetta hafði ekki áhrif á okkar ákvörðun.“ Kristín segir að fyrirtækið hafi verið starfrækt í fleiri mánuði án þess að nokkur segði neitt. Það hafi ekki verið fyrr en fyrirtækið sóttist eftir leyfi að umræðan fór í gang. „Það virtist sem svo að þá hafi allir skyndilega byrjað að finna lykt. Kannski fór fólk að gefa því -Einn stærsti styrktaraðili íþrótta í Grindavík hótaði að hætta stuðningi ef hann fengi ekki lengra starfsleyfi fyrir fiskþurrkunarfyrir- tæki í hans eigu. „Þetta var bara hryðjuverk, það átti bara að ráðast á þetta fyrirtæki og loka því,“ segir Hermann Ólafsson, eigandi Stakkavíkur og Þurrkaðra fiskafurða. Titringur og ósamstaða var um málið í bæjarstjórn Grindavíkur. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja segir að fiskþurrkanir eigi ekki heima í þéttbýli og það hafi verið óábyrgt að veita leyfið. HÓTANIR OG HITAMÁL ÚT AF FISKIFÝLU Í GRINDAVÍK -fréttir pósturu eythor@vf.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.