Víkurfréttir - 09.10.2014, Qupperneq 11
Samþykkt þrátt fyrir hávær mótmæli
og þvert á vilja heilbrigðiseftirlitsins
XX Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri HES, sagði
í samtali við Víkurfréttir að málið hafi ekki snúist um það
hvort menn hefðu trú á þessum mengunarbúnaði eða ekki.
„Við starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins vildum að fyrir-
tækið fengi leyfi í eitt ár til þess að prófa þennan búnað sem
hreinsa á lykt úr útblæstrinum,“ Það hafi verið samþykkt á
fundi heilbrigðisnefndar Suðurnesja. Þar sitja fimm full-
trúar frá sveitafélögunum á Suðurnesjum.
„Það kemur svo umsókn um áframhaldandi leyfi til fjögurra
ára frá fyrirtækinu áður en þetta eina ár er hálfnað. Það var tekið fyrir á heil-
brigðisnefndarfundi og samþykkt þrátt fyrir hávær mótmæli og þvert á vilja
heilbrigðiseftirlitsins. Við töldum að það væri óábyrgt að gefa út fjögurra
ára leyfi áður en væri búið að reyna á búnaðinn í þetta ár. Þetta var fyrst og
fremst gert vegna óska fulltrúa Grindavíkur í heilbrigðisnefnd Suðurnesja.
Fulltrúi Grindavíkur (Lovísa Hilmarsdóttir) sótti það mjög stíft að fyrirtækið
fengi leyfi fjögur ár til viðbótar. Ég reifst og skammaðist á þessum fundi enda
fannst mér þetta óeðlileg afgreiðsla af þeim ástæðum sem ég nefndi hér áður.
Reynsla Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja er sú að það sé alltaf mengun af fisk-
þurrkunarfyrirtækjum og er stefna okkar að þau eigi ekki heima inni í þéttbýli.
Við ráðum þó engu, það er heilbrigðisnefndin sjálf sem er yfirvaldið.“ Magnús
segir að nefndin og fulltrúi Grindavíkur hafi trúað á búnaðinn án þess að
starfsmenn HES gerðu það.
„Svona starfsemi á ekki heima inni í þéttbýli. Það eru tvær fiskþurrkanir í
Garðinum og þar eru eilífar kvartanir og vandamál í kringum þetta. Fólk ein-
faldlega kærir sig ekki um þessa lykt inni hjá sér. Við viljum að þessi fyrirtæki
færi sig fjarri mannabyggð. Úti á Reykjanesi er kjörinn staður fyrir svona
fyrirtæki,“ sagði Magnús.
meiri gaum. Við fengum líka loforð
um það að þessu yrði lokað ef það
færi að finnast einhver fnykur um
allan bæ.“
Úr tölvupósti Hermanns:
„Stundum gerast óvæntir hlutir,
óvinaherinn kom óvænt baka til
upp á eyjuna, fimm af fulltrúum
Grindavíkur mótmæltu þessu.
Þannig að ekkert varð úr. Þetta
lítum við mjög alvarlegum augum
og mjög mikla vanvirðingu við
hið góða starf sem við í Stakka-
vík höfum unnið hér í bæ, að við
héldum. Að fá svona afgreiðslu frá
bæjarstjórn Grindavíkur virkar
sem þungt högg í okkar andlit. Við
héldum að við værum að dansa
sama dans. Í ljósi þessa höfum við í
Stakkavík ákveðið að loka fyrir alla
styrki til þeirra íþrótta hér í bær,
sem við höfum verið að styrkja.“
Ekki hótun
Hermann segist í samtali við Víkur-
fréttir ekki vera að hóta einu eða
neinu í tölvupóstinum. „Ef ég er að
styrkja íþróttalífið í Grindavík og
bæjarapparatið ætlar að setja fyrir
okkur fótinn, þá er ekki hægt að
styrkja íþróttastarfið. Það er bara
verið að benda á að ef fyrirtækið
lokar þá getur það ekki styrkt íþrótta-
starfið, forsendan væri brostin. Þá
sagði ég bara, þá takið þið bara við.
Bærinn hefur hagsmuni af því að
fyrirtæki styðji við íþróttastarf í
bænum, þá á bærinn að styðja vel
við bakið á okkur líka, en ekki brjóta
okkur niður.“
Eftir að þú sendir póstinn frá
þér, hafði þá einhver fulltrúi frá
bænum eða UMFG samband við
þig?
„Nei, það held ég ekki, ég man ekki
til þess sérstaklega. Ég held að eng-
inn hafi tekið mark á þessu. Ég held
að það hafi allir verið á því að við
fengjum að starfa þarna áfram og allt
yrði í góðu lagi. Ég held að það hafi
enginn trúað því að við myndum
hætta að styrkja íþróttirnar eða að
þessu yrði lokað. Menn túlka þetta
bara eins og þeir vilja, ef þeir túlka
þetta sem hótun þá bara gera þeir
það,“ segir Hermann og bætti því
að hann skyldi ekki af hverju enginn
hefði komið og rætt málin, t.d. varð-
andi vonda lykt.
„Af hverju hefur enginn komið og
rætt við okkur ef það er svona mikið
lykt af starfseminni? Það er komið
aftan að okkur allan tímann. Það er
einhver hulduher sem vinnur þarna
á bak við tjöldin. Þetta var bara
hryðjuverk, það átti bara að ráðast
á þetta fyrirtæki og loka því. Ef þetta
hefði haft eðlilegan aðdraganda þá
hefði verið búið að áminna okkur
og ræða við okkur.“ Hermann segir
að tölvupósturinn hafi verið settur
fram til þess að minna á það sem
fyrirtækið er að gera, frekar en að
um hótun væri að ræða.„Ég var orð-
inn pínu þreyttur á þessu þegar ég
sendi þetta. Menn eru ekki að vinna
í takt. Þegar maður telur sig hafa
verið að vinna gott starf í bænum og
fá svo svona viðbrögð, þá kannski
fýkur í mann. Stundum þarf bara
að láta vita af sér. Maður lætur ekki
vaða yfir sig á skítugum skónum án
þess að segja eitt einasta orð.“ Her-
mann segir að fyrirtækið vilji starfa
í sátt og samlyndi við alla aðila og
reyna að byggja starfsemina upp á
þessum fjórum árum.
Við erum að stækka forritunarteymið og huga að næstu kynslóð hugbúnaðarkerfis okkar.
Ef þú ert leiðtogi í hugbúnaðargerð með mikla starfsreynslu, þá skaltu endilega kynna þér
þetta tækifæri!
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 21. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja
ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Við bjóðum þér:
• Að taka þátt í að leiða og móta gerð næstu kynslóðar hugbúnaðarkerfis okkar. Sem þróunarstjóri færðu það
hlutverk að útbúa tæknilegan vegvísi, miðla tæknilegri framtíðarsýn, leiða hönnun nýrra kerfiseininga, koma á
fót viðeigandi leikkerfum á vinnustað og taka þátt í forritun og samskiptum við viðskiptavini
• Vel skipulagðan, krefjandi og ljúfan vinnustað. Unnið er í anda Agile Scrum aðferðafræðinnar
• Góða vinnuaðstöðu á einkar huggulegum stað með fallegu útsýni
Það sem sem þú þarft að hafa fram að færa:
• Að lágmarki B.Sc. gráða í tölvunarfræði eða
hugbúnaðarverkfræði
• Afburða hæfileiki til að hanna og leiða þróun
hugbúnaðarkerfis
• Þörf fyrir að vinna að stöðugum endurbótum
og framförum fyrir þig sjálfa(n), teymið og
hugbúnaðarkerfið
• Reynsla af Microsoft .NET Framework
Þróunarstjóri í hugbúnaðargerð
DMM Lausnir er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki. DMM Lausnir eru framleiðendur hugbúnaðarkerfisins DMM, sem er notað á vettvangi
viðhaldsstjórnunar, verkefnisstjórnunar, eftirlits og gæðastjórnunar. Meðal þeirra sem nota DMM eru öll stærstu orkufyrirtæki landsins.
DMM er notað í flestum aflstöðvum og í flestum dreifikerfum landsins. DMM hefur verið þróað samfellt í um 20 ár, mjög mikið er lagt upp
úr áreiðanleika kerfisins og síþróun þess. DMM Lausnir er vel staðsett að Hafnargötu 91 í Reykjanesbæ. Á bak við DMM Lausnir eru sterkir
eigendur. Aðbúnaður starfsmanna er til fyrirmyndar sem og vinnuandinn. DMM Lausnir hafa skilað jákvæðri rekstrarafkomu í 10 ár í röð og
er í hópi framúrskarandi fyrirtækja ársins 2013 valið af Creditinfo.
• Reynsla af „service oriented architecture“ með SOAP
og/eða REST vefþjónustum
• Yfirgripsmikil þekking á líftímaþróun hugbúnaðarkerfa
og reynsla á sviði samfelldrar þróunar og afhendingar
hugbúnaðarkerfis til viðskiptavina
• Hæfileiki til að vera allt í senn leiðtogi, liðsmaður og
einstaklingur sem hvern einasta dag vinnur að því að ná
hámarksárangri á vettvangi hugbúnaðargerðar
Þurrkaðar fiskafurðir eru
í þessu húsi í Grindavík