Víkurfréttir - 09.10.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 9. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
Keflavíkurflugvöllur mun stækka ört á næsta áratug.
Árið 2023, eftir níu ár, verður
fjöldi farþega sem fer um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar kominn yfir
sjö milljónir. Störfum í tengslum
við flugvöllinn mun fjölga hratt
á næstu árum en þumalputt-
areglan er að til verði 900 ný störf
fyrir hverja milljón farþega sem
fjölgar um. Samkvæmt áætlunum
Isavia mun störfum fjölga jafnt
og þétt eða um yfir 200 ár ári.
Þannig mætti segja að ígildi ál-
vers verði til í tengslum við flugið
á Keflavíkurflugvelli á tveggja ára
fresti næsta áratuginn.
Þröstur V. Söring er framkvæmda-
stjóri flugvallarsviðs Keflavíkur-
flugvallar. Það er meðal annars á
hans borði að fylgja eftir þeim vexti
sem er að verða á Keflavíkurflug-
velli.
Vöxtur sem við erum ekki vön
„Þessi vöxtur er eitthvað sem menn
eru ekki vanir að fást við. Fjölgun
farþega um eina miljón á áratug
er ekki svo mikið. Það er því meiri
áskorun fyrir okkur að fara úr
þremur milljónum farþega upp í
sex til sjö milljónir á tíu árum. Það
er gríðarleg áskorun,“ segir Þröstur
í samtali við Víkurfréttir. Helsti
vandinn við þessa fjölgun farþega
um Keflavíkurflugvöll er sá að
fjölgunin á sér nær öll stað á sömu
klukkustundum sólarhringsins.
„Við erum að búa til rými sem nýt-
ist í sex klukkustundir yfir sólar-
hringinn. Hinar átján stundirnar
eru rólegri á flugvellinum. Okkar
stærsti viðskiptavinur er búinn
að byggja upp sitt leiðakerfi með
þessum hætti og virkar það vel fyrir
þá sem eru að ferðast á milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna. Icelandair
er að byggja upp sitt leiðakerfi á
milli Bandaríkjanna og Evrópu
með viðkomu á Íslandi og Wow
air ætlar sér að byggja upp svipað
kerfi“
Eldgosin kynna Ísland
Þröstur segir að fulltrúar Isavia fari
reglulega á ferðakaupstefnur er-
lendis til að sækja nýja viðskipta-
vini en öll vinna sé lögð í það að fá
inn viðskiptavini til að nýta rólegan
tíma í flugstöðinni. „Það hefur
tekist rosalega vel en við viljum fá
meira. Þegar við stækkum flug-
hlöðin og fjölgum stæðum fyrir
flugvélar þá verðum við líka að
fá flugfélög til að nýta „dauðu“
tímana. Við erum með mjög flott
fólk sem fer erlendis og sækir þessi
viðskipti. Eldgosin hafa verið að
hjálpa þeim við þessa vinnu. Í dag
þurfa þau ekki að tala í 15 mínútur
og segja frá Íslandi. Þeir sem eru á
þessum kaupstefnum vita hvað Ís-
land er. Okkar fólk getur farið beint
í að selja vöruna sem það eru að
bjóða og þannig hafa gosin hjálpað
okkur“.
Þröstur segir að þýsk flugfélög
séu dugleg að nota afgreiðslutíma
seint á kvöldin yfir sumarið. Þá
er easyJet dæmi um flugfélag sem
byrjaði smátt á Íslandi en er alltaf
að stækka. „Við heyrum að þeir eru
mjög ánægðir. Þeir eru með góða
sætanýtingu og hafa sífellt verið að
bæta í. Við höfum heyrt að easyJet
noti innanhúss hjá sér að Ísland sé
verkefni sem hafi gengið upp og
módel sem þeir vilji nýta annars-
staðar“.
Velta Keflavíkurflugvallar árið
2013 var rétt um 20 milljarðar
króna og eignir 34,5 milljarðar og
starfsmenn 850. Yfir sumartímann
eru starfsmenn Isavia rétt um 1100
talsins. Tekjurnar eru áætlaðar 21,2
milljarðar á þessu ári. Rekstrar-
kostnaður hækkar einnig en ekki
eins mikið. Fjárfestingar eru einnig
að aukast mjög mikið.
85% starfsmanna
búa á Suðurnesjum
85% starfsmanna Isavia á Kefla-
víkurflugvelli eru búsett á Suður-
nesjum. Ég held að ég geti fullyrt
að 85% starfsmanna á Keflavíkur-
flugvelli séu búsett á Suðurnesjum.
Það eru helst flugvirkjar, flugmenn
og áhafnir sem ekki búa á Suður-
nesjum.
Nú eru 3 stór verkefni í gangi hjá
Isavia. Verið er að hefja stækkun
flugstjórnarmiðstöðvarinnar í
Reykjavík upp á um milljarð króna,
breytingar verða gerðar á versl-
unarsvæði Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar og stækkun suðurbygg-
ingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
sem kostar um þrjá milljarða. Þá
voru framkvæmdir á flugbrautum
í Keflavík í sumar upp á um 340
milljónir króna. Keflavíkurflug-
völlur er 25 ferkílómetrar innan
girðingar.
„Þetta er gríðarlega stórt svæði
fyrir flugvöll að hafa og mikil
gæði. Við þurfum á þessu landi að
halda. Flugvellir erlendis hafa yfir-
leitt ekki svona mikið svæði. Það er
líka nægt rými til uppbyggingar við
sjálfan flugvöllinn. Á svokölluðu
austursvæði er mikið af gömlum
húsum sem Varnarliðið byggði á
árunum uppúr 1943 til 50 og hafa
fengið lágmarksviðhald. Nú er
unnið að svokölluðu Masterplani
fyrir framtíðaruppbyggingu Kefla-
víkurflugvallar og segir Þröstur þá
vinnu vera mjög spennandi.
Sóknarfæri fyrir
Suðurnesjamenn
Áætlanir Keflavíkurflugvallar gera
ráð fyrir að fjöldi farþega um Kefla-
víkurflugvöll verði 3,8 milljónir á
þessu ári. Árið 2023, eftir níu ár,
er gert ráð fyrir að heildarfjöldi
farþega um Keflavíkurflugvöll
verði kominn yfir 7 milljónir. Þar
af verða þeir farþegar sem aðeins
millilenda á Íslandi orðnir um 2,5
milljónir.
„Talsverð sóknarfæri eru á Suður-
nesjum í að sækja í farþega sem
koma til Keflavíkurflugvallar að
morgni og fara aftur af landinu að
kvöldi áfram til Evrópu. Þetta fólk
er með takmarkaðan tíma en þarf
einhverja afþreyingu og væri til-
búið að kaupa þjónustu eða veit-
ingar niðri í bæ,“ segir Þröstur.
Hann segir þær spár sem gerðar
hafa verið til þessa hafi staðist.
„Upplýsingum er safnað víða að.
Við notum spár frá öðrum inn í
okkar spár til að gera þetta sem
raunsannast“.
2616 með passa í dag
- verða 5200 eftir áratug
Á Keflavíkurflugvelli fær enginn
aðgangspassa nema að hann þurfi
þess starfs síns vegna að hafa að-
gang inn í flugstöðina eða inn á
flugvöllinn. Í dag eru þessir passar
2616 talsins. Þessum aðgangs-
heimildum hefur fjölgað um 1000
talsins frá árinu 2009. Starfsmenn
sem þurfa aðgangsheimildir verða
orðnir yfir 5200 árið 2023. Þá eru
ekki talin þau störf sem tengjast
fluginu og eiga sér stað utan flug-
vallarins, eins og hjá bílaleigum og
í ýmis konar flugtengdri þjónustu.
„Þumalputtareglan er að hver
milljón farþega geti af sér 900 störf.
Þetta er reynslan og til að þjóna
þessum fjölda farþega þá þarf þetta
mörg störf. Flugvellir eru þannig
til einsleitir og við erum ekkert að
gera hlutina öðruvísi hér heldur
en í öðrum löndum. Við þurfum
að vera hóflegir þegar kemur að
væntingum en við þurfum líka að
búa okkur undir þennan fjölda.
Það þarf að ráðast í framkvæmdir
og stækka flugvöllinn. Það þarf
að þjálfa fólk. Við þurfum að hafa
aðgengi að menntuðu fólki til að
vinna fjölbreytt störf. Við höfum
m.a. verið að reyna að finna leiðir
til að eiga samstarf við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja varðandi verk-
menntabrautirnar þar því það eru
alltaf færri og færri sem sækja í
verknám, því miður, en það er svo
sannarlega fólk sem við þurfum á
að halda. Við sækjumst eftir fólki
með menntun í vélstjórn, vél-
virkjun og rafvirkjun, sem dæmi.
Allir innviðir samfélagsins þurfa
að búa sig undir að taka við þessu
fólki, hvort sem það eru hótel, veit-
ingastaðir eða bara að undirbúa þá
náttúru sem fólkið er að sækja,“
segir Þröstur.
■■ Störfum á Keflavíkurflugvelli fjölgar hratt á næstu árum:
Yfir 200 ný störf á hverju ári
- Sóknarfæri fyrir Suðurnes, segir Þröstur V. Söring framkvæmdastjóri flugvallarsviðs KEF
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Hér rís viðbygging við suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Þröstur V. Söring er framkvæmdastjóri flugvallarsviðs Keflavíkurflugvallar.
PIPA
R
\TBW
A
•
SÍA
•
14
335
0
Nú er Domino’s-deildin að hefjast og þá mætast stálin stinn í körfunni.
Hvernig koma þessi bestu lið landsins undan sumri? Ekki missa af
leik með þínu liði í Domino’s-deildinni.
Fimmtudagskvöld 9. okt. kl. 19:15
Fimmtudagskvöld 9. okt. kl. 19:15
Föstudagskvöld 10. okt. kl. 19:15
SKALLAGRÍMUR–KEFLAVÍK
KR–NJARÐVÍK
HAUKAR–GRINDAVÍK
DOMINO’S-DEILD KARLA
Sunnudagskvöld 12. okt. kl. 19:15
HAUKAR–KEFLAVÍK
DOMINO’S-DEILD KVENNA
SJÁUMST Á VELLINUM!