Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.10.2014, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 23.10.2014, Blaðsíða 18
18 fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR -íþróttir pósturu eythor@vf.is Tveir Suðurnesjamenn hafa hlotið sömu nafnbót áður. Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson var kjörinn bestur árið 2008 og Gunnar Oddson frá Keflavík árið 1996, en hann lék þá með Leiftri. Aðeins tvisvar áður hafa markmenn hlotið nafnbót- ina frá árinu 1984, þeir Hannes Halldórsson (2011) og Bjarni Sig- urðsson árið (1984). Það er mikill heiður fyrir Ingvar að verða að- eins þriðji markvörðurinn til þess að vera valinn bestur á þessum 30 árum. „Ef markmaður gerir ein mistök þá er hann dæmdur út frá því. Ef sóknarmaður gerir 10 mistök þá man enginn eftir því ef hann skorar svo nokkur mörk,“ segir Ingvar. Hann segir engan leyndardóm liggja að baki árangri sem þessum. Hann hafi þó gefið sér meiri tíma til þess að æfa í sumar. „Ég hef frá unga aldri þurft að hafa mikið fyrir hlutunum og þurft að æfa mikið. Ég var ekki að vinna eins mikið í sumar og meira að einbeita mér bara að fótboltanum. Það hefur eflaust hjálpað mér helling. Ég æfði nánast eins og atvinnumaður í sumar,“ segir Ingvar sem starfar sem sjálfstæður einkaþjálfari. Ingvar, sem er 25 ára gamall, hefur undanfarin fjögur ár leikið með Stjörnunni í Garðabæ við góðan orðstír. Hann hóf að æfa knatt- spyrnu sex ára gamall og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Njarðvíkur tíu árum síðar, þá að- eins 16 ára. „Sævar (Júlíusson) markmannsþjálfari hafði gríðar- lega trú á mér og taldi að ég gæti náð langt. Hann pressaði á þjálfar- ann að gefa mér tækifæri. Hann á mikinn þátt í því hversu langt ég hef náð. Hann vann mikið með mig í yngri flokkum og einnig fyrstu árin í meistaraflokki. Hann er stoltur af mér í dag og fékk alveg gæsahúð þegar ég fékk verðlaunin frá KSÍ,“ segir Ingvar um fyrsta tækifærið. „Fólk hefði haldið að ég væri hálf klikkaður ef ég hefði sett mér þessi markmið fyrir tímabilið“ „Þetta var nánast fullkomið tíma- bil fyrir mig og ég átti jafna og góða leiki í allt sumar. Ég gerði ekki mörg mistök og er gríðarlega stoltur af því að vinna þetta. Sér- staklega að vera kosinn af öllum mótherjum mínum. Ég hefði aldr- ei getað ímyndað mér þetta fyrir tímabilið, að verða Íslandsmeistari og komst í fjórðu umferð í Evr- ópukeppninni. Fólk hefði haldið að ég væri hálf klikkaður ef ég hefði sett mér þessi markmið fyrir tímabilið.“ Ingvar lét sér það ekki nægja heldur vann hann sér sæti í A-landsliði Íslands. Eftir að hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum eftir sögufrægan leik gegn FH, var Ingvar nokkru síðar kominn upp í flugvél á leið til Lettlands með landsliðinu. „Ég var eiginlega ekki alveg búinn að átta mig á þessu öllu fyrr en ég kom heim úr landsliðs- ferðinni,“ segir hann. Treystu á 18 ára gutta Ingvar var 18 ára þegar Njarðvík- ingar ákváðu að treysta á hann og láta honum eftir stöðu aðalmark- varðar, en þá lék liðið í 1. deild. „Ég var alveg óskrifað blað á þeim tíma og er Njarðvíkingum mjög þakklátur að hafa gefið mér tæki- færi.“ Ingvar viðurkennir að Kefl- víkingar hafi borið í hann vígjurnar á sínum tíma en hann sá hag sínum betur borgið hjá uppeldisfélaginu. „Albert Sævarsson var þá mark- vörður hjá Njarðvík og Ómar Jó- hanns hjá Keflavík. Ég sá að það yrði styttra í það að Albert legði hanskana á hilluna en Ómar,“ segir Ingvar léttur í bragði. Einnig taldi hann að réttast væri að byrja í neðri deildum og vinna sig upp í úrvals- deild smá saman með reynslunni. „Hefði ég verið í stærri klúbb og ekki fengið sénsinn svona snemma þá hefði ég ekki verið búinn að ná jafn langt og ég hef gert í dag. Ég fékk t.d. tækifæri með unglinga- landsliðinu þar sem ég var eini markvörðurinn á þeim aldri sem spilaði með meistaraflokki,“ segir Ingvar sem að baki leiki með U19 og U21 liði Íslands. Ingvar hefur þrátt fyrir unga aldur spilað sem aðalmarkvörður liða sinna í átta ár. Sú reynsla hefur reynst honum ansi dýrmæt. „Ég byrjaði að spila kannski nokkuð fyrr en margir aðrir en það er vonandi að ég eigi mín bestu ár eftir og verði bara betri.“ Helvíti töff að vera úr Njarðvík „Það er varla annað hægt en að vera Stjörnumaður eftir þessi fjögur ár. Sérstaklega eftir að hafa hjálpað til við að skrifa sögu fé- lagsins. Maður finnur að þetta eru langbestu stuðningsmenn landsins. Þrátt fyrir að FH-ingar hafi reynt að hringja út mannskap og boðið þeim bjór þá gekk það illa hjá þeim, maður var ekkert var við þá,“ segir markvörðurinn glettinn. Hann er þó alltaf grænn í gegn og stoltur af því að vera Njarðvíkingur. „Ég held að það viti flestir að ég er Njarðvíkingur. Þegar það er skrifað um mig eða Óskar Hauksson í fjölmiðlum þá er alltaf talað um okkur sem Njarðvíkinga, það er helvíti töff. Maður er stoltur af því að vera úr Njarðvík.“ Ingvar fylgist með Njarðvíkurliðinu og segir að það hafi verið ánægjulegt að sjá þá bjarga sér frá falli í sumar. Helst vill hann þó sjá Njarðvíkinga í 1. deild, þar eigi þeir heima. Ingvar er alinn upp hjá Frey Sverrissyni ef svo má segja, en sá síðarnefndi var um ára- bil þjálfari yngri flokka hjá Njarð- vík, þar sem hann náði frábærum árangri. Freyr fékk Ingvar og Al- exander Magnússon, sem leikur með Grindavík, til þess að mæta á æfingu á sínum tíma. „Hann er klárlega besti yngri flokka þjálfari á landinu, þannig að maður fékk gott fótboltauppeldi,“ segir Ingvar um Frey Sverris. Landsliðið og atvinnu- mennska næst á dagskrá? Eins og fyrr segir hefur nánast allt gengið upp hjá Ingvari þetta sum- arið. Hann segist vart vera kominn á jörðina eftir atburði undanfar- inna vikna. Hann mun nú ein- beita sér að landsliðinu sem hefur átt ævintýralegu gengi að fagna. „Markmiðið er að veita Hannesi (Halldórssyni) alvöru samkeppni, en hann hefur verið frábær í síð- ustu leikjum. Ég á vonandi nokkuð mörg ár eftir með liðinu en það er gaman að taka þátt í þessu og æfa með þessum strákum. Það að taka þátt í þessi ævintýri sem er í gangi er alveg ótrúlegt. Vonandi gerist það einn daginn að maður fái leik og geti þá sannað sig.“ Ingvar er á leið til Svíþjóðar þar sem hann mun æfa með úrvals- deildarfélagi við toppaðstæður. Það er fyrst og fremst til þess að halda sér í formi fyrir landsliðið en þó er aldrei að vita nema at- vinnumennskan sé handan við hornið. „Þessi klúbbur er í mark- manns-hugleiðingum þannig að það er aldrei að vita hvað gerist. Þetta yrði frábær tími til þess að taka næsta stökk og fara í atvinnu- mennsku, en þá verður að bjóðast rétta tækifærið. Ef það kemur ekki upp í ár þá eru mjög spennandi tímabil framundan hjá Stjörnunni, að verja titilinn og spila í meistara- deildinni,“ segir Ingvar að lokum. Stoltur af því að vera úr Njarðvík Markvörðurinn Ingvar Jónsson átti nánast fullkomið sumar - Kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins Markvörðurinn Ingvar Jónsson var á dögunum kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu. Eflaust vita ekki margir að Ingvar ól manninn við Grundarveginn í Njarðvík, en knattspyrnulegt uppeldi hlaut hann hjá Frey Sverrissyni og fleiri góðum í knattspyrnudeild Njarðvíkur. Nú er Ingvar Íslandsmeistari með Stjörnunni, lék gegn stórliði Inter Milan í sumar í Evrópukeppninni og vann sér inn sæti í A-landsliði Íslands. Það er því óhætt að segja að sumarið hafi nánast verið fullkomið hjá Ingvari. Dreymdi um að komast í stórt lið og verða Íslandsmeistari einn daginn Þegar Njarðvíkingar féllu í 2. deild sýndu nokkur félög úr efstu deild áhuga á Ingvari. Nokkuð þekkt er orðin sagan af því að Bjarni Jóhannsson, þá þjálfari Stjörnunnar, hafi búið um 50 metrum frá Njarðtaks- vellinum og verið tíður gestur á leikjum Njarðvíkinga. Hann vissi því upp á hár hvers Ing- var var megnugur. „Það var heillandi að fara í Stjörnuna vegna þess að Bjarni Jó vissi alveg hvað ég gæti og hafði séð mig margsinnis. Það var í raun eina liðið sem kom til greina. Einnig leist mér vel á mark- mannsþjálfara Stjörnunnar, Henrik Bödker, og höfum við náð frábærlega saman öll fjögur árin og hef ég bætt mig mikið undir hans stjórn.“ Þá strax var Ingvar hugsaður sem aðalmark- vörður liðsins sem var ungt að árum. „Mig dreymdi um að komast í stórt lið og verða Ís- landsmeistari einn daginn, það er alveg mögnuð tilfinning að sá draumur hafi orðið að veru- leika,“ segir Íslandsmeistarinn nýbakaði. Á æskuslóðum: Ingvar var tíður gestur á sparkvellinum við Njarðvíkurskóla Stjarnan frá Njarðvík, í sögufrægum leik gegn FH.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.