Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.11.2014, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 06.11.2014, Blaðsíða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGURINN 6. NÓVEMBER 2014 • 43. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Sonur með Downs heil- kenni gjörbreytti lífi Grindvíkingsins Sólnýjar Pálsdóttur bls 12-13 Hringbraut 99 - 577 1150 25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk. GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457 Heildarkostnaður vegna stækkunar Bláa lónsins og byggingar lúxushótels nemur 6 milljörðum króna en mannvirki staðarins munu tvöfaldast í stærð. Heildar- stækkun á núverandi- og nýju upplifunarsvæði ásamt hóteli nemur um 10.000 fm. Á fram- kvæmdatíma sem áætlað er að verði tvö ár munu 150 starfs- menn starfa við verkefnið. Nýtt upplifunarsvæði verður byggt inn í hraunið vestur af núverandi lóni og mun svæðið tengja núverandi lón og lúxus- hótel. Með tilkomu hótelsins verður fyrsta flokks gisting hluti af upplifun í Bláa Lóninu. Í hótelinu er gert ráð fyrir 60 her- bergjum, veitingastað og fjöl- nota fundarsal. Stækkun og endurhönnun nú- verandi upplifunarsvæðis er mikilvægur þáttur í uppbygg- ingunni, en lónið sjálft verður stækkað um helming. Ný og glæsileg aðstaða fyrir spa með- ferðir sem boðið er upp á ofan í Lóninu er hluti stækkunarinnar. Hluti endurhönnunar felst einnig í enn betri hitastýringu á lóninu sjálfu auk þess sem að- gengi að hreinlætisaðstöðu á lónsvæðinu verður aukið. Verk- efnið er í takt við þróun Bláa Lónsins undanfarin ár þar sem jafnt og þétt hefur verið unnið að því að auka úrval og gæði þjónustu. Jarðvegsframkvæmdir munu hefjast í árslok 2014 og áætlað er að uppbyggingunni verði lokið vorið 2017. „Uppbyggingin er táknræn fyrir áherslu Bláa Lónsins um að styrkja stöðu sína sem ein- stakur viðkomustaður ferða- manna á heimsvísu. Ísland þarf í auknum mæli að horfa til þess að höfða til fólks sem leitar eftir miklum gæðum í þjónustu og aðbúnaði. Bláa Lónið vill halda áfram að sinna forystu í því að leiða íslenska ferðaþjónustu enn frekar á þær brautir og stuðla þannig að aukinni samkeppnis- hæfni Íslands á alþjóðlegum ferðamannamarkaði,“ segir“ Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins. Sigríður Sigþórsdóttir, hjá Bas- alt arkitektum, er aðalhönnuður verkefnisins, en hún er arkitekt allra mannvirkja Bláa Lónsins. Sigríður hefur starfað með Bláa Lóninu í tæplega tvo áratugi eða allt frá því að undirbúningur að núverandi mannvirkjum hófst um miðjan tíunda áratuginn. Hönnun Sigríðar fyrir Bláa Lónið hefur vakið athygli hér heima og erlendis, ekki hvað síst fyrir samspil hins manngerða og náttúrulega umhverfis. Upplifunarhönnun er órjúfan- legur þáttur af hönnun Bláa Lónsins og hefur teymi starfs- fólks Bláa Lónsins ásamt Sigurði Þorsteinssyni og fyrirtæki hans Design Group Italia, unnið að þeim þætti hönnunarinnar. Sigurður, sem er búsettur í Milano á Ítalíu hefur unnið með Bláa Lóninu undanfarin tuttugu ár og stýrt þróun vöru- merkis, ímyndar og upplifunar í samvinnu við stjórnendur Bláa Lónsins. Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum í tengslum við stækkun upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og mun hluti starfsfólks hefja störf á f ramkvæmdatíma. Störfin verða fjölbreytt, en eins og önnur störf hjá fyrirtækinu munu þau miða að því að veita gestum Bláa Lónsins góða og fágaða þjónustu. Hluti starfanna sem verða til við stækkunina munu kalla á háskólamenntað fólk og starfsmenn með sér- þekkingu á sviði heilsu og vel- líðunar. Hjá Bláa Lóninu starfa um 300 starfsmenn á ársgrunni. Að framkvæmdum loknum er gert ráð fyrir því að heildar- starfsmannafjöldi verði 400. ■■ Bláa Lónið hefur framkvæmdir við stækkun upplifunarsvæðis og byggingu lúxushótels. Starfsmenn verða 400 að loknum framkvæmdum: Framkvæmdir fyrir 6 milljarða bls 10 Unnu mál í hér- aðsdómi vegna fasteignaláns hjá Sparisjóðnum í Keflavík

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.