Víkurfréttir - 06.11.2014, Qupperneq 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGURINN 6. NÓVEMBER 2014 • 43. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Sonur með Downs heil-
kenni gjörbreytti lífi
Grindvíkingsins
Sólnýjar Pálsdóttur
bls 12-13
Hringbraut 99 - 577 1150
25%
AFLSÁTTUR
á Nutrilenk 180 stk.
GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA
ALLIR
VELKOMNIR Á
NÝJAN STAÐ
HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457
Heildarkostnaður vegna stækkunar Bláa lónsins
og byggingar lúxushótels
nemur 6 milljörðum króna
en mannvirki staðarins munu
tvöfaldast í stærð. Heildar-
stækkun á núverandi- og nýju
upplifunarsvæði ásamt hóteli
nemur um 10.000 fm. Á fram-
kvæmdatíma sem áætlað er að
verði tvö ár munu 150 starfs-
menn starfa við verkefnið.
Nýtt upplifunarsvæði verður
byggt inn í hraunið vestur af
núverandi lóni og mun svæðið
tengja núverandi lón og lúxus-
hótel. Með tilkomu hótelsins
verður fyrsta flokks gisting hluti
af upplifun í Bláa Lóninu. Í
hótelinu er gert ráð fyrir 60 her-
bergjum, veitingastað og fjöl-
nota fundarsal.
Stækkun og endurhönnun nú-
verandi upplifunarsvæðis er
mikilvægur þáttur í uppbygg-
ingunni, en lónið sjálft verður
stækkað um helming. Ný og
glæsileg aðstaða fyrir spa með-
ferðir sem boðið er upp á ofan í
Lóninu er hluti stækkunarinnar.
Hluti endurhönnunar felst
einnig í enn betri hitastýringu
á lóninu sjálfu auk þess sem að-
gengi að hreinlætisaðstöðu á
lónsvæðinu verður aukið. Verk-
efnið er í takt við þróun Bláa
Lónsins undanfarin ár þar sem
jafnt og þétt hefur verið unnið
að því að auka úrval og gæði
þjónustu.
Jarðvegsframkvæmdir munu
hefjast í árslok 2014 og áætlað
er að uppbyggingunni verði
lokið vorið 2017.
„Uppbyggingin er táknræn
fyrir áherslu Bláa Lónsins um
að styrkja stöðu sína sem ein-
stakur viðkomustaður ferða-
manna á heimsvísu. Ísland þarf
í auknum mæli að horfa til þess
að höfða til fólks sem leitar eftir
miklum gæðum í þjónustu og
aðbúnaði. Bláa Lónið vill halda
áfram að sinna forystu í því að
leiða íslenska ferðaþjónustu enn
frekar á þær brautir og stuðla
þannig að aukinni samkeppnis-
hæfni Íslands á alþjóðlegum
ferðamannamarkaði,“ segir“
Grímur Sæmundsen, forstjóri
Bláa Lónsins.
Sigríður Sigþórsdóttir, hjá Bas-
alt arkitektum, er aðalhönnuður
verkefnisins, en hún er arkitekt
allra mannvirkja Bláa Lónsins.
Sigríður hefur starfað með Bláa
Lóninu í tæplega tvo áratugi eða
allt frá því að undirbúningur að
núverandi mannvirkjum hófst
um miðjan tíunda áratuginn.
Hönnun Sigríðar fyrir Bláa
Lónið hefur vakið athygli hér
heima og erlendis, ekki hvað síst
fyrir samspil hins manngerða
og náttúrulega umhverfis.
Upplifunarhönnun er órjúfan-
legur þáttur af hönnun Bláa
Lónsins og hefur teymi starfs-
fólks Bláa Lónsins ásamt Sigurði
Þorsteinssyni og fyrirtæki hans
Design Group Italia, unnið að
þeim þætti hönnunarinnar.
Sigurður, sem er búsettur
í Milano á Ítalíu hefur unnið
með Bláa Lóninu undanfarin
tuttugu ár og stýrt þróun vöru-
merkis, ímyndar og upplifunar í
samvinnu við stjórnendur Bláa
Lónsins.
Gert er ráð fyrir 100 nýjum
störfum í tengslum við stækkun
upplifunarsvæðis Bláa Lónsins
og mun hluti starfsfólks hefja
störf á f ramkvæmdatíma.
Störfin verða fjölbreytt, en eins
og önnur störf hjá fyrirtækinu
munu þau miða að því að veita
gestum Bláa Lónsins góða og
fágaða þjónustu. Hluti starfanna
sem verða til við stækkunina
munu kalla á háskólamenntað
fólk og starfsmenn með sér-
þekkingu á sviði heilsu og vel-
líðunar. Hjá Bláa Lóninu starfa
um 300 starfsmenn á ársgrunni.
Að framkvæmdum loknum er
gert ráð fyrir því að heildar-
starfsmannafjöldi verði 400.
■■ Bláa Lónið hefur framkvæmdir við stækkun upplifunarsvæðis og
byggingu lúxushótels. Starfsmenn verða 400 að loknum framkvæmdum:
Framkvæmdir fyrir 6 milljarða
bls 10
Unnu mál í hér-
aðsdómi vegna
fasteignaláns
hjá Sparisjóðnum
í Keflavík