Víkurfréttir - 06.11.2014, Blaðsíða 10
10 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
„Þetta er búið að einkennast af
mikilli von frá því að Snorri tók
málið að sér. Þá sá maður fram
á að það væri kannski einhver
glæta. Jólin í fyrra voru aðeins
betri en jólin þar á undan,“ segir
Hallfríður Hólmgrímsdóttir, sem
tók lán í Sparisjóðnum í Keflavík
árið 2006 til þess að fjármagna
byggingu húss sjö manna fjöl-
skyldu sinnar í Grindavík. Lánið
hækkaði úr 23 milljónum í 49 á
einni nóttu í kjölfar efnahags-
hrunsins árið 2008. Svo var það
endurreiknað og lækkað í 34
milljónir árið 2011. Lánasamn-
ingurinn var dæmdur ólögmætur
í héraðsdómi í síðustu viku.
„Engu að síður kostaði okkur
blóð, svita og tár að koma þaki
yfir okkur. Afborgunin hækkaði
svo gríðarlega við það að færa
lánið yfir í íslenskar krónur með
íslenska vexti. Staðan á mánuði
var í raun verri við að gera það.“
Afborganir fóru í kvartmilljón
Hallfríður segist hafa séð fram á
ofboðslega erfiða tíma, sem urðu
svo sannarlega. „Það komu þarna
greiðslustopp og það má segja að
þau hafi kannski bjargað manni
um tíma og maður hafði a.m.k.
þó þá skynsemi að bera að spara
peninginn í greiðslustoppunum til
að eiga upp í það sem vantaði um
hver mánaðamót. Ég sótti um allar
þessar frystingar sem hægt var að
fá til þess að eiga upp í næstu af-
borganir. Öðruvísi hefði þetta ekki
gengið.“ Afborganir af láninu fóru
úr 70-80 þúsund í 250.000 krónur
á mánuði. Hallfríður hafði fram að
því alltaf staðið í skilum með lánið
og nánast aldrei greitt dráttarvexti.
Það hefði ekki verið sjálfgefin staða
í framtíðinni ef málið hefði ekki
farið eins og það fór.
Svipt frelsi á einni nóttu
Eiginmaður Hallfríðar var einn úti-
vinnandi þegar þau fengu skellinn
og fjölskyldan þurfti að skipuleggja
líf sitt upp á nýtt. „Það þurfti að
skera niður alla aðstoð við elstu
börnin og þau þurftu að fara út á
vinnumarkaðinn samhliða námi
og bjarga sér meira sjálf,“ segir
Hallfríður. Lánið stendur í rúmri
31 milljón og síðasta afborgun var
256 þúsund um síðustu mánaða-
mót. „Við hefðum sennilega reynt
að fá láninu skilmálabreytt eða
eitthvað þessháttar, s.s. breytt því í
verðtryggt lán sem hefði ekki verið
ákjósanlegur kostur. Lánið hefði
fljótlega farið upp fyrir verðmæti
eignarinnar. Eða við hefðum reynt
að selja húsið en við hefðum senni-
lega ekki getað keypt annað hús
því afgangurinn hefði ekki verið
mikill. Ég hefði líklega gefist upp á
þessari afborgun snemma á næsta
ári og þannig þurft að bregðast við
með einhverjum hætti. Þrátt fyrir
að hafa varið ævinni í að vera skyn-
söm til að geta á einhverjum tíma-
punkti um frjálst höfuð strokið
þá var ég svipt þessu frelsi á einni
nóttu.“ Hallfríður viðurkennir að
láninu hafi ekki verið prangað upp
á hana en hvorki hún né neinn
annar venjulegur neytandi gat
ímyndað sér að lánið færi úr 23
milljónum í 49 nánast á einni nóttu.
„Því miður þá hafði ég bara ekki
meira vit á gengistryggingunni en
þetta. Veðsetningarhlutfall eignar
okkar var um 60% á sínum tíma
og þó að eignfjárstaðan sé jákvæð
um örfá prósent þá getur enginn
staðið undir þessum afborgunum
til lengdar og að því leytinu erum
við föst.“
Fólk er að missa húsin sín
Lögmaðurinn Snorri bætir þarna
inn í að hann hafi aðstoðað fólk
sem sé með svona lán sem er að
missa húsnæði sín. „Það eru fjöl-
margar eignir hérna fjármagnaðar á
grundvelli gengistryggðra lána sem
verið er eða búið er að bjóða upp.
Fyrir þá sem eru að missa húsið
sitt gæti þetta orðið til þess að þau
fái mögulega lánin endurreiknuð
og jafnvel staðið undir þeim. Þegar
kveðið var á um viðurkenningu á
ólögmæti lánsins fyrir héraðsdómi
þá gerði ég mér strax grein fyrir
því hvað það þýddi fyrir allt þetta
fólk. Þess vegna er svo mikið atriði
að þessi mál fái réttan endi á æðsta
dómstigi.“ Hallfríður segist einmitt
einnig hafa hugsað líka að hún væri
ekki ein í þessari stöðu. „Fólk er
jafnvel búið að missa húsin sín eða
er við það að gera það. Hugsaðu
þér hvernig jólin verða hjá þessu
fólki? Ég get ekki hugsað það til
enda. Ég varð fangi á eigin heimili,
við komumst ekkert. Það yrði ekki
ákjósanleg staða að fara á leigu-
markaðinn með sjö manna fjöl-
skyldu. Mér dugir ekki lítil blokk-
aríbúð með börnin á breiðum aldri.
Við reistum húsið okkar sjálf og
lögðum allt sem við gátum í það.“
Von um staðfestingu
í hæstarétti
Snorri segir að svona mál geri starf
sitt þess virði. „Ég tel þennan dóm
vera frekari staðfestingu á þeirri
reglu í gengismálum sem kalla
mætti misræmisregluna.“ Hún
felst í því að ef tilgreining fjár-
hæðar er í ósamræmi við önnur
ákvæði samningsins, þá verði að
skoða hann heildstætt. Sé fjár-
hæðin tildæmis tilgreind í erlendri
mynt eins og í samningi Hallfríðar
en kveðið á um gengistryggingu í
öðrum ákvæðum, verði að skoða
samningin heildstætt. Í 7. og 8.
grein lánasamnings Hallfríðar er
kveðið á um að ef vanefndir verði
á samningnum skuli gengistrygg-
ingin haldast eftir að búið að gjald-
fella lánið. „Það væri engin þörf
að kveða á um gengistryggingu í
þessum ákvæðum samningsins ef
lánið væri ekki gengistryggt. Þegar
maður skoðar greiðslukvittanir
og annað, þá er hægt að reikna
sig í gegnum hvernig erlenda fjár-
hæðin var aðeins til viðmiðunar.
Erlendir vextir og afborganir voru
alltaf gengistryggðar með marg-
földun við hið íslenska gengi við
hver mánaðarmót. Alltaf fengust
færri og færri erlendar myntir fyrir
hverja íslenska krónu og þannig
gengistrygging.“
Rétt er að leyfa dómaranum sem
kvað um dóminn að eiga loka-
orðin: „Þótt þessi ákvæði þyki
ekki samrýmast efni lánssamnings
málsaðila að öðru leyti verður ekki
framhjá því litið að í þeim er kveðið
á um að gengistrygging skuli hald-
ast við vannefndir á samningnum,
en engin þörf var að kveða á um
slíkt ef lánið var í raun í erlendum
gjaldmiðli.“
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
Hallfríður Hólmgrímsdóttir tók fasteignalán árið 2006 til að fjármagna byggingu húss fyrir 7 manna fjölskyldu sína í Grindavík. Lánið stökkbreyttist í kjölfar hrunsins og
var lánasamningurinn dæmdur ólögmætur í héraðsdómi í síðustu viku. Snorri Snorrason hdl flutti málið fyrir dómnum. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Snorra og Hallfríði og
ræddi við þau um styrk vonarinnar og mikilvægi réttlætis í sambærilegum málum. Mál Hallfríðar er fyrsta mál vegna einstaklingsláns vegna svona lánagerðar sem fær
þessa meðferð fyrir héraðsdómi.
■■ Unnu mál í héraðsdómi vegna fasteigna-
láns hjá Sparisjóðnum í Keflavík:
AUKIN VON FYRIR
MARGA LÁNTAKA
Ég er með
tugi slíkra
mála á mínu borði
og um er að ræða
húsnæði víða á
Suðurnesjum,
einnig í eigu fyrir-
tækja
AÐALFUNDUR
MÁNA
Aðalfundur hestamannafélagsins Mána verður haldinn
þriðjudaginn 25. nóvember í félagsheimili Mána
og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Skýrslur stjórna og nefnda
2. Viðurkenningar
3. Kosning í stjórn og nefndir
4. Önnur mál
Stjórn Mána
Sólný Pálsdóttir í Grindavík segir frá gjörbreyttu lífi sínu í einlægu viðtali
Þátturinn verður einnig aðgengilegur á vef Víkurfrétta í háskerpu
Sjón Víkuréa á Í
ö tudagskvöld kl. 21:30
Orkubolti
Hilmir og líð
með Downs
Saga Lögreglunnar í Keflavík verður haldið
í bókasafni Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12,
föstudaginn 7. nóvember, kl. 16:00 - 18:00.
Lesnir verða valdir kaflar úr bókinni, boðið verður upp á
kaffi og tónlist og ritnefnd mun árita bókina fyrir þá sem
þess óska. Lögreglan mun verða áberandi í bókasafninu af
þessu tilefni.
Allir velkomnir.
ÚTGÁFUHÓF
BÓKARINNAR