Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGURINN 13. NÓVEMBER 2014 • 44. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk. GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457 Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ www.lyfja.is Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16 Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum 16% afsláttur 12% afsláttur Við stefnum að vellíðan. Kom að óboðnum gesti í baði XX Íbúa í umdæmi lögregl- unnar á Suðurnesjum brá heldur en ekki í brún þegar hann kom heim til sín í vik- unni sem leið. Í íbúð hans var þá staddur ókunnugur maður og það sem meira var - hann var í baði. Íbúinn hafði skilið íbúð sína eftir opna og mannlausa og því fór sem fór. Hinn óvænti gestur reyndist hafa ruglast á íbúðum í við- komandi fjölbýlishúsi auk þess sem hann hafði innbyrt vímuefni og var þar af leiðandi ruglaður í ríminu. Var tekin ákvörðun um að flytja hann á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til rannsóknar. Það hefur verið ys og þys í Hljómahöllinni og Stapa í gær og í dag þegar sjö ráðherrar Norðurlandanna og fylgdarlið hafa setið tveggja daga fund en ráðherranefndinni (MR-NER) fylgir 200 manna hópur sem sækir ráðstefnu um nýsköpun í lífhagkerfinu og byggðamál. Stór hluti hópsins gistir á hótelum í Reykja- nesbæ. Keflavíkurmærin Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, stýrði upphafi fundarins í gær sem var um orkumál. Meðal þess sem er til umræðu er norræni raforkumarkaður- inn, orkuskipti í samgöngum og á skipum og ný stefna Evrópusambandsins í orku- og loftslags- málum. Málefni nýsköpunar og frumkvöðla- starfsemi eru veigamikil í umræðunni sem og einföldun regluverks, ferðaþjónusta og þróun norræns samstarfs til að auka útflutning. „Það er auðvitað skemmtilegt að geta hýst þessa ráðstefnu og fund hér í Reykjanesbæ. Hér var öll aðstaða til staðar, gisting, fundaraðstaða af bestu gerð og veitingaþjónusta,“ sagði Ragnheiður við VF en hún segir nánar frá þessu í sjónvarpsþætti vikunnar hjá Sjónvarpi Víkurfrétta. Samþykkt var á fundi bæjar-stjórnar Sandgerðis á dög- unum að kaupa upp þær eignir í Sandgerði sem eftir voru í Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Kaupin eru að stærstum hluta fjármögnuð með láni frá Ís- landsbanka að upphæð einn milljarð króna. Þegar kaupin ganga í gegn síðar í mánuðinum verður Sandgerðisbær ekki lengur aðili að Fasteign, þar sem allar eignir í Sandgerði sem voru í eigu félagsins komast nú í eigu bæjarfélagsins. Eignirnar sem um ræðir eru Íþróttamiðstöð Sandgerðisbæjar og eldri bygging Grunnskóla Sandgerðis. Bæjar- stjórn Sandgerðisbæjar fagnar því að Íþróttamiðstöðin og eldri hluti Grunnskólans séu á ný í eigu bæjarfélagsins. Þar með sé loka- áfanga markmiða sem sett voru um endurskipulagningu skulda og skuldbindinga náð. „Það má segja að þetta sé skuld- breyting. Þannig að í stað þess að skulda Fasteign þessa fjárhæð, þá erum við að færa eignirnar yfir til okkar og vera með lán í okkar nafni. Þetta er tilfærsla á skuldbindingu, þannig að ekki er verið að auka skuldirnar. Það var mikill pólitískur vilji fyrir því að þessar eignir kæmust aftur í eigu sveitafélagsins,“ segir Sig- rún Árnadóttir, bæjarstjóri Sand- gerðis. Hún segir að það hafi verið á stefnuskrá undanfarin ár að eignast aftur þær eignir af Fast- eign sem bærinn átti. „Ég held að þetta hafi heilmikla þýðingu fyrir bæinn. Þetta eru nú eignir bæjar- ins, í stað þess að vera fasteignir sem við leigjum af öðrum aðila.“ Sigrún segir Sandgerðisbæ vera að á góðri leið þrátt fyrir tölu- verðar skuldir. „Við stefnum á að ná skuldaviðmiði niður fyrir 150% árið 2019. Það má segja að þetta sé stór áfangi í þeim málum. Það er búið að fara í gegnum það að borga upp gjaldeyrislán og óhagstæð lán. Nú er allt að kom- ast í þann farveg sem við viljum og nú er stefnan að lækka skuld- irnar sem hraðast og mest,“ segir bæjarstjórinn en skuldaviðmið Sandgerðisbæjar er nú um 220%. X■ Sandgerðisbær endurheimtir Íþróttamiðstöð og skólabyggingu Kaupa eignir af Fasteign fyrir milljarð Norrænn ráðherrafundur og 200 manna ráðstefna í Reykjanesbæ Ragnheiður Elín var í eldlínunni við upphaf ráðherrafundarins. VF-mynd/pket. Fulltrúar Suðurnesjamanna úr atvinnu- og þróunarfélaginu Heklunni voru á ráðstefnunni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.