Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 9
9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 13. nóvember 2014
Fulltrúi á Fjármálasviði
Airport Associates leitar eftir starfsmanni í fullt starf fulltrúa á fjármálasviði
fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Við leitum af jákvæðum og metnaðar-
fullum einstaklingi sem hefur opinn hug til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Góð enskukunnátta, bæði rituð og töluð, skilyrði
• Bókhaldsþekking skilyrði
• Góð Excel kunnátta s.s. Pivot töflur og fl.
• Þekking á Navision kostur
• Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
Starfssvið:
• Bókhaldsstörf
• Innkaup
• Uppgjörsvinna
• Afstemmingar
• Önnur tilfallandi skrifstofustörf
Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og
annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu. Meðal
viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly
Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon,
MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.
Áhugasamir sæki um starfið á heimasíðu fyrirtækisins,
www.airportassociates.com. Nánari upplýsingar gefur
Telma Guðlaugsdóttir, telma@airportassociates.com.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2014.
-viðtal pósturX olgabjort@vf.is
Guðmundur Garðarsson, eða Bóbi, er fyrrum skipstjóri í
Njarðvík en fæddur og uppalinn í
Garði. Fyrir fjórum árum byrjaði
Bóbi að skera út ýmis líkneski úr
viðardrumbum. Hann segir þetta
skemmtilega sköpun og gott sé að
dunda við eitthvað eftir að hann
hætti á sjónum.
Viðurinn fúavarinn í seltunni
„Ég hafði áður gert 130 skilti með
ýmsum kennileitum í Garði. Eftir
það fór maður að leika sér við þetta
í skúrnum heima,“ segir Bóbi en
hann er að jafnaði eina 40 klukku-
stunda vinnuviku með hverja fí-
gúru. Ferlið gengur þannig fyrir
sig að Bóbi fer í fjörurnar við Raf-
nkelsstaðaberg og suður undir
Grindavík og sækir sér rekavið.
„Ég hef einnig fengið efniviðinn frá
bændunum. Ég hef farið og talað
við þá og beðið þá um viðinn.“
Spurður um hvað sé svona sterkt
og gott við rekaviðinn segir Bóbi
að hann sé fúavarinn af seltunni í
sjónum. Viðurinn sé jafnvel búinn
að vera tíu ár í sjó áður en hann
komi að landi. „Ég tek keðjusögina
með mér til að saga drumbana í
hæfilega búta til að bera og vinna
úr. Síðan mótar maður þetta með
söginni og sporjárni. Svo nota ég
slípirokk á jaðarinn til að fullvinna
viðinn. Að lokum geri ég augun
og hárið,“ segir Bóbi og bætir við
að heilmikið dútl fari í það. Augn-
hárin séu t.a.m. gerð með því að
bora millimeters breið göt og líma
járnvír í götin. Hárið sé oftast gert
með vírgrind með límfyllingu
áður það er málað í svörtum eða
skærum lit.
Býr aðallega til kerlingar
Bóbi hefur útbúið nokkurs konar
gallerí í sólstofunni heima hjá
sér. „Þar er heitur pottur sem við
höfðum ekki notað lengi og til-
valið að koma fígúrunum fyrir
hér. Hér eru kjöraðstæður til að
leyfa viðnum að þorna, springa
og jafna sig. Það er mjög algengt
að þess þurfi.“ Örfáar karlkyns fí-
gúrur eru í galleríinu en fjölmargar
kvenkyns, enda er Bóbi vanur
að vera umkringdur konum því
hann á fimm dætur. „Ég býr aðal-
lega til kerlingar. Ég er klaufi að
gera karlana og hef því lítið gert af
þeim.“ Sumar konurnar eru út frá
fyrirmyndum eins og Marge Simp-
son og Leiu prinsessu í Star Wars.
„Þegar ég geri andlitið byrja ég á
augunum og nefinu og vinn svo út
frá því. Það er þó hárið sem greinir
þær aðallega að.“
Fær hópa í heimsókn
Spurður segir Bóbi að honum þyki
ekki vænna um einhverja fígúru
umfram aðra. „Nei þetta er allt
svona svipað. Sama vinnuferlið í
þessu öllu og ég hef svipað fyrir
þessu. Ég gerði eina með fjögur
andlit. Þetta var bara svo stór
drumbur að ég ákvað að hafa fjögur
andlit til þess að hafa hana dálítið
víðsýna og að hún sjái vel í allar
áttir.“ Bóbi segir að alltaf eitthvað
spurt um fígúrurnar og stundum
taki hann á móti hópum sem vilja
skoða. „Fólk hefur gaman að því að
koma og skoða þetta. Ég býst við að
halda þessu áfram á meðan heilsan
endist. Fínt að vera hér í ellinni og
hafa eitthvað að gera eins og að búa
til kerlingar,“ segir hann brosandi
að endingu.
X■ Fyrrum skipstjóri í Njarðvík býr til kerlingar úr rekavið:
Ein vinnuvika í hverja kerlingu
Ég býr aðallega til kerl-
ingar. Ég er klaufi að gera
karlana og hef því lítið gert af
þeim
ATVINNA
Óskum eftir starfsmanni í fullt starf
á starfstöð okkar í Grindavík.
Gott ef viðkomandi er með
lyftararéttindi/ekki nauðsynlegt.
Áhugasamir hafi samband
við Styrmi í síma 824-2413.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA HF.