Víkurfréttir - 20.11.2014, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 20. nóvember 2014
TIL LEIGU ÓSKAST
2 herbergja falleg rúmgóð íbúð,
nálagt allri þjónustu í Njarð-
vík fyrir 55 ára + upplisyngar
í síma 8615254 Valborg ,
Til leigu 2 herb íbúð í Njarð-
vík,laus frá og með 1 desember.
Uppl í síma 6918269.
Til leigu frá 1. des. Leiga á mán.90.
þús. og 2 mán. fyrirfram sem
trygging. Dýrahald og reykingar
ekki leyfðar. uppl. 863 0013
2-3-4 herbergja íbúðir til leigu
á góðum stað í hjarta Kefla-
víkur ca75- 85 m2 leiguverð
105.000.-130.000.- 3 mánaða
trygging skilyrði.(leigubætur
fánlegar) Info 6911685
5 manna fjölskylda óskar eftir
leiguhúsnæði í Keflavík, fyrir 1.
janúar nk. Erum reglusöm og ekki
með gæludýr. Frekari upplýsingar
í síma 8464032 og 8630941.
- smáauglýsingar
- ung
Á hvaða braut ertu?
Félagsfræðibraut.
Hvaðan ertu og aldur?
Grindavík og að verða 19 ára í
desember.
Helsti kostur FS?
Grindavíkurborðið.
Hjúskaparstaða?
Á föstu.
Hvað hræðistu mest?
Köngulær, trúða og dauðann.
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur og hvers
vegna?
Egill Birgis og fyrir það að vera DJ.
Hver er fyndnastur í skól-
anum?
Ég ætla að vera combobreaker og
nefna kennara og ég segi Hörður,
hann er algjör meistari.
Hvað sástu síðast í bíó?
Borgríki 2, og hún var svakaleg.
Hvað finnst þér vanta í mötu-
neytið?
Að það séu gerðar flatkökur með
osti á hverjum degi, ekki bara
stundum og stundum.
Hver er þinn helsti galli?
Ég á það til að stressa mig á hlutum
sem skipta sem minnstu máli.
Hvað er heitasta parið í skól-
anum?
Nemó og Hákon eru frekar sætir
saman.
Hverju myndirðu breyta ef þú
værir skólameistari FS?
Að það væri látið nemendur vita
þegar kennari þeirra er fjarver-
andi með sms-um, áður en nem-
andinn leggur af stað í skólann og
svo er hádegið ALLTOF langt. Ég
myndi stytta það svo nemendur
gætu verið fyrr búnir í skólanum!
Áttu þér viðurnefni?
Ingabj. Vegna óheppilegrar
skammstöfunar minnar.
Hvaða frasa eða orð notar þú
oftast?
Er voða gjörn á að segja: true eða,
i know
Hvernig finnst þér félagslífið í
skólanum?
Alltaf eitthvað að gerast, Ásta er
að standa sig mjög vel sem for-
maður!
Áhugamál?
Það helsta er líklega fótbolti (að
spila hann, ekki eins gaman að
horfa á hann að mínu mati).
Hvert er stefnan tekin í fram-
tíðinni?
Pása í ár eftir útskrift svo er
stefnan bara í háskóla að prófa
sálfræðina.
Ertu að vinna með skóla?
Jeees, í Bláa lóninu
Hver er best klædd/ur í FS?
Ivan Jugovic.
Grindvíkingurinn Inga Björk Jónsdóttir er FS-ingur vikunnar að þessu
sinni. Hún stefnir á nám í sálfræði eftir framhaldsskóla. Hún er hrædd
við köngulær og trúða og telur Grindavíkurborðið vera helsta kost FS.
Myndi stytta hádegishléið
-fs-ingur vikunnar
Kennari
Ester
landfræði-
kennari er algjört yndi
Fag í skólanum
Myndlist eins og er, brýtur upp
daginn, fæ frí frá því að glósa og
reikna í klst.
Sjónvarps-
þættir
Friends
Hljómsveit/
tónlistarmaður
Á engan ákveðinn uppáhalds, en
ef ég þyrfti að velja þá segi ég Sam
Smith.
Kvikmynd
Get horft á Pirates of the Carib-
bean endalaust.
Leikari
Jennifer Aniston
uppáhalds leikonan.
Vefsíður
Deildu, Instagram og Youtube
Flíkin
Jakkinn sem ég keypti í Gallery 17
Skyndibiti
Serrano, er það ekki talinn hollur
skyndibiti?
Hvaða tón-
list/lag
fílarðu í
laumi (guilty
pleasure)?
Hljómsveitina
Bee Gees
í augnablikinu,
minnir mig á þegar ég var yngri.
Eftirlætis
Bókin
Verð að segja það að ég er
rosalega latur við það að
rýna í bækur. Ef ég man það
rétt þá var Útkall alfa TF-
SIF bókin sem ég las síðast
fyrir rúmlega ári síðan. Út-
kall alfa TF-SIF fjallar um
mörg mögnuð afrek áhöfn
þyrlunnar TF-SIF m.a. björgun áhafnar Steindórs GK 101 er báturinn
strandaði við Krísuvíkurberg. Þetta er fyrsta Útkalls bókin en hún kom
út árið 1994. Þetta minnir mig á það að ég þarf að fara kíkja á afa og ná
mér í fleirri Útkalls bækur, enda magnað að lesa þetta.
Tónlist
Ég er rosalega lítið fyrir það að kaupa geisla-
diska eða plötur. Það sem ég kaupi mest eru
DVD tónleikadiskar og finnst mér að hljóm-
sveitir mættu gera meira af því að gefa slíkt
út. Ég hef haft það sem reglu síðustu árin er
ég fer erlendis að sækja mér 2-3 tónleika.
Tónleika safnið er mjög fjölbreytt hjá mér.
Það sem ég keypti síðast var að mig minnir,
Public Enemy Live from House of Blues,
Nirvana Unplugged og svo tónleikar með
Billy Joel og Elton John í Kína. En þegar
ég fer í símann og skoða það sem ég hlusta
mest á þá koma upp lög með Bee Gees, Bill
Withers, Jón Jónsson, Justin, Kaleo, Marvin Gaye og The
Weeknd. Upphálds lagið var Take Me To Church með Hoizer en fékk
ógeð af því þegar ég var farinn að heyra það í útvarpinu á stöðinni sem
amma hlustar á, hef ekki ennþá haft tíma til að henda í nýtt uppáhalds.
Sjónvarpsþátturinn
Ég og góður vinur minn Björn Geir, eða Party eins og ég kalla hann,
erum með ákveðnar reglur þegar það kemur að bíómyndum og hún
nær eiginlega yfir þættina líka. Ef B-in þrjú koma ekki fram þá er ekk-
ert varið í þetta. Bombur, breddur og bílar og ekki gleyma cash, það
verður að vera cash. En einu þættirnir sem hafa slegið í gegn hjá mér er
Suits og Entourage, enda bæði meistaraverk. Svo nánast allt íslenskt, er
mikill áðdáandi íslensks efnis. Hlakka rosalega til að sjá nýjustu þætt-
ina sem Garðar Örn vinur minn er að gera, Goðsagnir held ég að þeir
eigi að heita. Annars hef ég gefið Homeland, Sons of Anarchy, Scandal,
Breaking Bad og fleirri súpum séns, en ekkert hefur heillað mig.
-afþreying
póstur X eythor@vf.is
B-IN ÞRJÚ: BOMBUR,
BREDDUR OG BÍLAR
Keflvíkingurinn Brynjar
Guðlaugsson er ekki
mikið fyrir það að
glugga í bækur. Hann
á myndarlegt safn af
DVD tónleikadiskum þar
sem fjölbreytnin ræður
ríkjum. Þegar kemur
að sjónvarpsþáttum
og kvikmyndum þá vill
Brynjar hafa smá hasar í
spilunum.
ÞJÓNUSTA
Tek að mér að stytta buxur,
skipta um rennilása ofl. þess-
háttar. Vönduð vinnubrögð. Lína
Björk Sigmundsdóttir, klæðskeri,
Njarðvíkurbraut 14, 866 2361
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Harður að utan en
dúnmjúkur að innan
Árni Fannar Guðmundsson er nemandi í 10. bekk í Heiðarskóla.
Hann segir að þátturinn Orðbragð komi stundum til með að hjálpa
honum við tungumálið og að Lífsleikni Gillz sé besta bók sem hann
hefur lesið.
Hvað gerirðu eftir skóla? Fer heim
fæ mér að borða og bruna svo strax
í Hafnafjörðinn, hitti kærustuna og
skelli mér svo á æfingu.
Hver eru áhugamál þín? Handbolti,
tónlist og tala nú ekki um ástarmálin.
Uppáhalds fag í skólanum?
Íþróttir og íslenska
En leiðinlegasta? Stærfræði það er
nú ekki fyrir hvern sem er að leysa.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver
væri það? Paul Walker og Vin Diesel.
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft
hver væri hann? Það yrði nú ekki
amalegt að geta flogið.
Hvað er draumastarfið
í framtíðinni? Atvinnumenska í
handbolta, nú ef það klikkar kemur
flugmaðurinn sterkur inn.
Hver er frægastur í símanum
þínum? Logi Geirsson.
Hver er merkilegastur
sem þú hefur hitt? Það er hún amma
mín hún Guðrún Guðmundsdóttir,
Logi Geirsson, tala svo ekki um þegar
ég og meistari Jón Jónsson setjumst
niður og ræðum málin í Kaplakrika.
Hvað myndirðu gera ef þú mættir
vera ósýnilegur í einn dag? Ég
myndi klárlega hoppa upp í næstu
flugvél og skella mér á Monte Carlo
og leika mér á snekkju í einhverju
góðu rugli þar.
Hvaða app notar þú mest? Ég nota
snapparann mest.
Hvernig myndirðu lýsa þér í einni
setningu? Harður að utan en dún-
mjúkur að innan.
Hvað er skemmtilegast við Heiðar-
skóla? Félagslífið er hvergi betra en
hér.
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
Freedom með DJ Bobo.
Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa
þér best? Orðbragð kemur til með að
hjálpa mér stundum, þyrfti líka helst
að finna enskan orðbragðs þátt, mér
veitir nú ekki af því.
Besta:
Bíómynd? To Fast To Furious
Sjónvarpsþáttur? CSI og NCIS.
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Nickelback og bara flest allt Hip
Hop t.d. Migos, DJ Bobo, DJ
Muscleboy og margir fleiri.
Matur? Nautakjötið hjá tengdó
allan daginn.
Drykkur? Íslenska vatnið alltaf
lang best.
Leikari/Leikkona? Paul Walker.
Fatabúð? H&M.
Vefsíða? Það má vera Facebook.
Bók? Er ekki mikið fyrir bækur en
Lífsleikni Gillz var meistaraverk.
www.vf.is