Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.11.2014, Page 1

Víkurfréttir - 27.11.2014, Page 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2014 • 46. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk. GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457 Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ www.lyfja.is Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16 Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum 16% afsláttur 12% afsláttur Við stefnum að vellíðan. Verkfalli tónlistarkennara er nú lokið eftir fimm vikna kjarabaráttu. Har- aldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tón- listarskóla Reykjanesbæjar, segir að verk- fallið eigi líklega eftir að draga verulegan dilk á eftir sér. Nú þegar hafi nokkrir nemendur hætt námi og eins hefur riðlast verulega nám hjá eldri nemendum skól- ans sem ljúka áttu námi eða mikilvægum stigsprófum. Hann telur að hætta sé á frekara brottfalli, bæði hjá nemendum sem og kennurum. „Þetta er bara búið að vera alveg svakalegt og alveg með ólíkindum að sveitafélögin hafi ekki samið fyrr en eftir fimm vikna verkfall,“ segir Haraldur. Hann segir tjónið gríðarlegt af völdum verkfallsins. Mikið hafi verið rætt um stöðu barna sem stunda nám við skólann, en Haraldur segir stór- an hóp nemenda gleymast í umræðunni. Í skólanum séu nemendur á öllum aldri sem margir hverjir nýti sér tónlistarnám til stúdentsprófs eða munu sækja tónlistarnám á háskólastigi á næstunni. „Afleiðingarnar eiga eftir að koma í ljós. Það er ekki víst að allir þeir nemendur sem ætluðu sér að útskrifast nái því núna.Prófin sem fyrirhuguð voru í haust falla öll niður.“ Foreldar barna í tónlistarnámi hafi margir hverjir tjáð skólastjóranum að börnin þeirra hafi gengið þungum skrefum að hljóð- færum sínum á meðan verkfallinu stóð. Flestir þeir nemendur standi hreinlega á núllpunkti þegar nám er hafið að nýju. Haraldur segir að komið hafi verið fram við tónlistarkennara af gríðarmikilli vanvirð- ingu í þessum samningaviðræðum. Kenn- arar hafi því hreinlega hugsað með sér hvort þeir vilji hreinlega tilheyra þessari stétt áfram eða vinna fyrir þessa vinnuveitendur sem sýni slíka vanvirðingu. Kennsla er hafin á ný og segir skólastjóri að jafnt kennarar og nemendur hafi brosað út að eyrum á mánu- dag þegar endurfundir voru. Haraldur telur að það muni taka tíma að ná áttum en stefnt er að því að koma nemendum á rétt ról á næstu dögum. Svo stendur til að halda jólatónleika á næstunni. „Eftir áramót þarf svo að bretta upp ermarnar því mikið starf er fyrir höndum,“ sagði skólastjórinn að endingu. Tónlistarskólakennarar áttu í fimm vikna viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga án árangurs. Kennarar sem tilheyra Félagi Tónlistarskólakennara (FT) voru í verkfalli. Annar hópur tónlistarskólakennara eru fé- lagar í Félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) en þeir sömdu í lok síðasta mánaðar. Í Tónlistarskóla Reykjanebæjar starfa 44 tónlistarkennarar, þar af voru 28 í verkfalli en 16 í störfum (félagar í FÍH). Verkfall tónlistarkennara hefur gríðarlegar afleiðingar Skólastjóri óttast brottfall nemenda og kennara Ketkrókur snemma á ferðinni? XXKjötþjófnaður var nýverið tilkynntur til lög- reglunnar á Suðurnesjum. Karlmaður stakk inn á sig kjötvörum, að verðmæti rúmlega 13 þúsund krónur, í Nettó og borgaði svo fyrir eina pepsí- dós við kassann. Hann ætlaði síðan að yfirgefa verslunina, en var stöðvaður af starfsfólki. Þá framvísaði hann níu pakkningum af kjöti sem hann hafði stungið inn á sig. Bestu leikararnir koma héðan bls 16

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.