Víkurfréttir - 27.11.2014, Qupperneq 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2014 • 46. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
25%
AFLSÁTTUR
á Nutrilenk 180 stk.
GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA
ALLIR
VELKOMNIR Á
NÝJAN STAÐ
HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457
Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ
www.lyfja.is
Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16
Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.
af lyfjum utan
greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum
og öðrum vörum
16%
afsláttur
12%
afsláttur
Við stefnum að vellíðan.
Verkfalli tónlistarkennara er nú lokið eftir fimm vikna kjarabaráttu. Har-
aldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar, segir að verk-
fallið eigi líklega eftir að draga verulegan
dilk á eftir sér. Nú þegar hafi nokkrir
nemendur hætt námi og eins hefur riðlast
verulega nám hjá eldri nemendum skól-
ans sem ljúka áttu námi eða mikilvægum
stigsprófum. Hann telur að hætta sé á
frekara brottfalli, bæði hjá nemendum
sem og kennurum.
„Þetta er bara búið að vera alveg svakalegt
og alveg með ólíkindum að sveitafélögin
hafi ekki samið fyrr en eftir fimm vikna
verkfall,“ segir Haraldur. Hann segir tjónið
gríðarlegt af völdum verkfallsins. Mikið
hafi verið rætt um stöðu barna sem stunda
nám við skólann, en Haraldur segir stór-
an hóp nemenda gleymast í umræðunni.
Í skólanum séu nemendur á öllum aldri
sem margir hverjir nýti sér tónlistarnám til
stúdentsprófs eða munu sækja tónlistarnám
á háskólastigi á næstunni.
„Afleiðingarnar eiga eftir að koma í ljós.
Það er ekki víst að allir þeir nemendur sem
ætluðu sér að útskrifast nái því núna.Prófin
sem fyrirhuguð voru í haust falla öll niður.“
Foreldar barna í tónlistarnámi hafi margir
hverjir tjáð skólastjóranum að börnin þeirra
hafi gengið þungum skrefum að hljóð-
færum sínum á meðan verkfallinu stóð.
Flestir þeir nemendur standi hreinlega á
núllpunkti þegar nám er hafið að nýju.
Haraldur segir að komið hafi verið fram við
tónlistarkennara af gríðarmikilli vanvirð-
ingu í þessum samningaviðræðum. Kenn-
arar hafi því hreinlega hugsað með sér hvort
þeir vilji hreinlega tilheyra þessari stétt
áfram eða vinna fyrir þessa vinnuveitendur
sem sýni slíka vanvirðingu. Kennsla er hafin
á ný og segir skólastjóri að jafnt kennarar og
nemendur hafi brosað út að eyrum á mánu-
dag þegar endurfundir voru. Haraldur telur
að það muni taka tíma að ná áttum en stefnt
er að því að koma nemendum á rétt ról
á næstu dögum. Svo stendur til að halda
jólatónleika á næstunni. „Eftir áramót þarf
svo að bretta upp ermarnar því mikið starf
er fyrir höndum,“ sagði skólastjórinn að
endingu.
Tónlistarskólakennarar áttu í fimm vikna
viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga
án árangurs. Kennarar sem tilheyra Félagi
Tónlistarskólakennara (FT) voru í verkfalli.
Annar hópur tónlistarskólakennara eru fé-
lagar í Félagi íslenskra hljómlistarmanna
(FÍH) en þeir sömdu í lok síðasta mánaðar.
Í Tónlistarskóla Reykjanebæjar starfa 44
tónlistarkennarar, þar af voru 28 í verkfalli
en 16 í störfum (félagar í FÍH).
Verkfall tónlistarkennara
hefur gríðarlegar afleiðingar
Skólastjóri óttast brottfall nemenda og kennara
Ketkrókur snemma á ferðinni?
XXKjötþjófnaður var nýverið tilkynntur til lög-
reglunnar á Suðurnesjum. Karlmaður stakk inn
á sig kjötvörum, að verðmæti rúmlega 13 þúsund
krónur, í Nettó og borgaði svo fyrir eina pepsí-
dós við kassann. Hann ætlaði síðan að yfirgefa
verslunina, en var stöðvaður af starfsfólki. Þá
framvísaði hann níu pakkningum af kjöti sem
hann hafði stungið inn á sig.
Bestu leikararnir
koma héðan bls 16