Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.12.2014, Page 1

Víkurfréttir - 04.12.2014, Page 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGURINN 4. DESEMBER 2014 • 47. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk. GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457 Lífsstíll er heimilisleg líkamsrækt fyrir ÞIG! ALLTAF með BESTU verðin. Það er ALLTAF SÓL í Lífsstíl *mv. 18 mánaða binditíma FYRSTU MÁNUÐURNIR FRÍTT ÞEGAR ÞÚ GENGUR Í LÍFSSTÍLSKLÚBBINN* Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ www.lyfja.is Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16 Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum 16% afsláttur 12% afsláttur Við stefnum að vellíðan. Allir sálfræðingar á fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar hafa sagt störfum sínum lausum. Fræðsluráð Reykjanes- bæjar lýsir yfir áhyggjum yfir ástandinu á síðasta fundi sínum og þykir mikilvægt að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir en sálfræðingarnir eru fjórir talsins. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að staðan sé mjög slæm. Hann segir að lítið annað hafi verið gert en að ræða starfsmannamálin á skrif- stofum Reykjanesbæjar undanfarnar vikur. „Þetta er ekki góð staða, í rauninni mjög slæm. Það er alltaf viðbúið að þeir aðilar sem eiga auðvelt með að fá vinnu annars staðar, segi upp og fari. Við munum aug- lýsa þessar stöður til umsóknar og vonandi sækja einhverjir um,“ sagði Kjartan í sam- tali við Víkurfréttir. Þeir fjórir sálfræðingar sem starfa hjá bænum munu starfa þar til 1. mars. „Þetta er allt í góðu og engin leiðindi. Þeir telja sig geta fengið betri laun annars staðar og við keppum ekki við það eins og fjárhagsstaðan er, því miður. Þetta er há- skólamenntað fólk sem vill vinna annars staðar og hef ég fullan skilning á því. Þetta er reynslumikið og hæft fólk sem menn vilja hafa í vinnu og það verður eftirsjá af því fyrir okkur,“ bætti bæjarstjórinn við. Kjartan segist ekki efast um að einhverjir starfsmenn hugsi sér til hreyfings en auk sálfræðinganna hafa þrír starfsmenn á fé- lagssviði Reykjanesbæjar sagt upp störfum. Fjárhagsstaða bæjarfélagsins var enn til umræðu á bæjarstjórnarfundi í vikunni og gustaði þar verulega á milli manna. Bæjar- stjórinn sagði að ekkert sveitarfélag af þess- ari stærðargráðu hafi verið í þessari stöðu sem Reykjanesbær er í núna. „Það er vel fylgst með því sem við erum að gera. Við erum örugglega að gera einhver mistök og við eigum örugglega eftir að gera einhver mistök á leiðinni. Það breytir því ekki að stóra myndin er að koma Reykjanesbæ fyrir vind úr þessari stöðu sem við erum í. Við megum ekki missa sjónar af stóra verk- efninu. Það er bara ekki hægt að takast á við svona stórt verkefni án þess að einhverjum líki eitthvað illa, “ sagði bæjarstjórinn. Það stefnir í Öskubuskuævintýri í Garð- inum. Nú er hins vegar ekki leitað að þeirri sem passar í skó, heldur í eldrauð undirföt sem komu fjúkandi í suðvestan ofsaveðri á sunnudag og enduðu ferðalag sitt í móanum við Réttarholt í Garði. Eldrauður þvengur og brjóstahöld í stíl og annar brjóstahaldari í svörtum lit komu fjúkandi á ógnarhraða frá þéttustu byggð- inni í Garði. Fatnaðurinn staðnæmdist hins vegar skammt frá Réttarholti þar sem Birgir Þór Guðmundsson kom flíkunum í skjól. Birgir Þór segist í fésbókarfærslu ekki hafa rekist á nakta konukind umhverfis heimili sitt og vonast til að engin hafi álpast út í vonda veðrið á undirfötunum einum. Nú er hins vegar spurning hvort einhver kona gefi sig fram sem eigandi undirfatanna. Undirfatalaus Öskubuska í Garði? Allir sálfræðingar Reykjanes- bæjar hafa sagt upp störfum Jólaljósin tendruð Jólaljósin voru tendruð á jólatrénu á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ um síð- ustu helgi. Tréð er gjöf frá vinabæ Reykja- nesbæjar, Kristiansand í Noregi. Það kom það í hlut Andra Sævars Arnarssonar, nemanda úr 6. bekk í Heiðarskóla, að tendra ljósin í björtu. Krakkarnir, m.a. þessi tvö, fylgdust spennt með.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.