Víkurfréttir - 04.12.2014, Blaðsíða 28
28 fimmtudagurinn 4. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent pósturu vf@vf.is
Atvinnumálin á S u ð u r -
nesjum hafa verið
í brennidepli í
m ö r g á r. Á r i ð
2006 hurfu mörg-
h u n d r u ð s t ö r f
vegna brotthvarfs
bandaríska hers-
ins og tveimur árum síðar hrundi
íslenska bankakerfið. Helgu-
víkurverkefnið hefur ekki gengið
sem skyldi og nú glímir Reykja-
nesbær við gríðarlega erfiða fjár-
hagslega stöðu. Hvað er til ráða
og hver á að gera hvað? Er ein-
hverra breytinga að vænta? Svarið
er já og öll gegnum við mikilvægu
hlutverki í umbreytingunni sem
framundan er.
Sérkennileg þróun
Á sama tíma og störf hurfu af svæð-
inu þá fjölgaði íbúum Reykjanes-
bæjar um mörg prósent. Reynslan
sýnir hins vegar að þegar störfum
fækkar þá fækki íbúum jafnframt,
þ.e. íbúar leita venjulega til staða
þar sem störf er að finna. Hér var
því öfugt farið. Afleiðingar þessarar
öfugþróunar þekkjum við of vel;
atvinnuleysi og stóraukinn kostn-
aður félagsþjónustunnar. En þrátt
fyrir að hér sé enn mesta atvinnu-
leysi á landsvísu þá tala atvinnu-
rekendur um að erfitt sé að fá fólk
til vinnu. Þeir sem sækja um mæta
jafnvel ekki eða seint og illa þegar
til kemur. Slæmt er ef rétt reynist.
Lausn í sjónmáli
Helguvíkin er enn ekki farin að
skila því sem væntingar stóðu til.
Staðreyndin er sú að bæjaryfir-
völd fóru í kostnaðarsamar fram-
kvæmdir án þess að hafa vilyrði
stjórnvalda fyrir ríkisstyrk. ESA
reglur um opinberan stuðning setja
ríkisvaldinu þröngar skorður um
með hvaða hætti slíkur stuðningur
má vera til að teljast lögmætur. Nú-
verandi iðnaðarráðherra, Ragn-
heiður Elín, hefur markvisst að
málinu síðan hún tók við ráðuneyt-
inu og vonandi finnst viðunandi
lausn innan tíðar.
Störf á næsta leyti
Hið opinbera býr ekki til störf.
Alþingi og ríkistjórn móta ramm-
ann en það er fólkið, heimamenn
sem búa til atvinnutækifærin. Þar
reynir á sköpunargáfuna, dugnað
og úthald. Frá því að ríkisstjórn
Sigmundar Davíðs tók við vorið
2013 hefur iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra gert þrjá fjárfestinga-
samninga um verkefni á Suður-
nesjum, m.a. við örþörungaverk-
smiðjuna Algalíf á Ásbrú, United
Silicon kísilverksmiðju í Helguvík
og Thorsil. Þessi fyrirtæki munu
skapa hundruð starfa í framtíðinni.
Til viðbótar við einstök verkefni
má nefna að frumvarp iðnaðarráð-
herra um ívilnanir vegna nýfjár-
festinga mun styðja við atvinnu-
uppbyggingu um allt land, ekki
síst á Suðurnesjum. Eitt af fyrstu
verkum ráðherra var tryggja lönd
á Vatnsleysuströnd fyrir lagningu
Suðvesturlínu og tryggja þar með
orkuflutning sem er nauðsynleg
undirstaða áframhaldandi upp-
byggingar atvinnulífsins.
En við getum öll gert betur. Öll
gegnum við mikilvægu hlutverki
og berum ábyrgð, því samfélagið
er við sjálf.
Silja Dögg Gunnarsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins
■■ Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
Okkar sameiginlega sköpunarverk
L’ORÉAL
Color Riche
naglalökk
gjafaaskja
Verð: 2.390 kr.
Miss Manga
gjafaaskja
Maskari og eyeliner.
Verð: 3.490 kr.
DIESEL
Li ð heil um jólin!
LANCÔME TREETSBIOTHERM - HERRA GIORGIO ARMANI
Diesel Only the Brave Wild
EdT 35 ml, sturtusápa 50 ml og
after shave balm 50 ml.
Verð: 8.699 kr.
Hydra Zen gjafaaskja
Hydra Zen rakakrem 50 ml, Hydra
Zen næturkrem 15 ml, Géni que
serumdropar 7 ml og Géni que
Light-Pearl augnserum 5 ml.
Verð: 8.990 kr.
Aquapower gjafakassi
Vinsælasta herrakremið frá Biotherm
í 75 ml pumpu ösku, raksápa 50 ml
og sturtusápa 75 ml.
Verð: 5.995 kr.
Sí
Sí kvenlegur, lostafullur og tælandi
Giorgio Armani ilmur. Sí EdP 30 ml
og húðmjólk 75 ml.
Verð: 9.259 kr.
Jólagjafir í Lyfju
Dömu
náttföt
Verð:
4.990 kr.
Inni mokkasíur
Verð: 1.590 kr.
Sokkar
Verð:
1.690 kr.
Herra náttföt
Verð: 4.990 kr.
Stráka- og
stelpu-
náttföt
Verð:
4.490 kr.
Náttkjóll
Verð:
4.990 kr.
Treets gjafaaskja
70 ml shower gel
& body lotion.
Verð: 2.279 kr.
Ilmkerti/nuddkerti
Verð: 2.998 kr.
Treets Foaming
Bath Salt
Verð: 1.704 kr.
Treets Salt Scrub
Verð: 2.387 kr.
Treets Room
Fragrange
Verð:
2.392 kr.
Velkomin í Lyfju
Reykjanesbæ!
Jólablöð VF eru framundan. Pantið auglýsingapláss í s. 421 0001
Magnús B. Bergmann,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi 21. nóvember.
Jarðað verður í Keflavíkurkirkju
föstudaginn 5. desember kl. 13:00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnar, Bjarni og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi.
Sigurður Kr. Jónsson,
Húsasmiðameistari, Aðalgötu 5, Reykjanesbær
lést þann 1. desember sl. á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju 11. desember kl. 13:00.
Selma Jóhannesdóttir,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
www.vf.is
83% LESTUR
+