Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 29

Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 29
29VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 18. desember 2014 Eru einhverjar hefðir hjá ykkur á bæjarskrifstofunni þegar kemur að jólunum? Já, ég er smátt og smátt að læra á þær. Starfsfólk skreytir sjálft sínar skrifstofur, mismikið þó, en á bóka- safninu og þjónustuverinu á jarð- hæð Ráðhússins setjum við upp fullskreytt jólatré til að skapa rétta andann fyrir þá fjölmörgu sem leggja leið sína í þangað á hverjum degi. Við setjum jólaljós í glugg- ana og pössum að hafa þau tilbúin, áður en kveikt er á jólatrénu frá vinabænum Kristiansand á Ráð- hústorginu, svo nánasta umhverfi trésins sé sem hátíðlegast. - jólaspurningar ■■ Kjartan Már Kjartansson Borðar hnetusteik og skellir sér í heita pottinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar gæðir sér á heimagerðri hnetusteik um jólin. Þau hjónin hafa fengið góða vini í heimsókn í 31 ár á jóladag, þar sem tekið er í spil og jólunum fagnað. Kjartan skellir sér svo yfirleitt í heita pottinn á aðfangadag eftir heimsókn í kirkjugarðinn. Í Ráðhúsinu starfa um 70 starfs- menn á ýmsum sviðum og skipar hvert svið 1 fulltrúa í skemmti- nefnd sem stendur fyrir alls kyns uppákomu yfir árið. Á Aðventunni stendur skemmtinefndin fyrir rauðum degi, þar sem allir eiga að koma í einhverju rauðu, jóla- peysudegi o.fl. í þeim dúr. Síðan borðum við saman jólamat í mötu- neytinu að kvöldi dags þegar líður nær jólum og í ár ætlar hún Angela okkar, sem rekur Ráðhúskaffi og er frá Portúgal, að sjá um að elda fyrir okkur saltfisk að hætti Portú- gala en það er vinsæll jólamatur í heimalandi hennar. Síðast en ekki síst munu svo starfsmenn Reykja- nesbæjar fjölmenna á samveru- stund í Keflavíkurkirkju þar sem við munum m.a. styrkja Velferðar- sjóð Suðurnesja með peningafram- lagi sem nemur sömu upphæð og kostað hefði að senda öllum starfs- mönnum Reykjanesbæjar hefð- ubundið jólakort. Í staðinn fá þeir rafræna jólakveðju. Að lokum er rétt að taka fram að bæjarskrif- stofurnar verða lokaðar að morgni Aðfangadags og Gamlársdags og einnig 2. janúar á nýju ári en sú hefð hefur skapast að nota þann dag til þess að taka til og gera upp ýmis mál; nokkurs konar vöru- talning. Hvernig eru jólahefðir hjá þér? Jólahefðir hjá mér og mínum eru nokkrar. Við förum í kirkju- garðana á Aðfangadag og svo í heita pottinn þegar við komum heim. Síðan hefst eldamennskan og síðustu árin höfum við verið með heimagerða hnetusteik ásamt kalkúnabringum í matinn. Börnin eru farin að heiman en skiptast á að vera hjá okkur á Aðfangadagskvöld og þá auðvitað með afastrákana. Þeim fylgja margir pakkar og því oftast mikið stuð fram eftir kvöldi. Jóladagur er yfirleitt rólegur en stundum hittist stórfjölskyldan og þá er glatt á hjalla. Að kvöldi Jóla- dags fáum við svo yfirleitt okkar nánustu vini í heimsókn, tökum í spil og fögnum hátíðinni á hefð- bundin hátt, en sú hefð skapaðist fyrir 31 ári þegar við urðum fyrst af vinahópnum til þess að eignast barn og þá lá beinast við að hafa jólapartýið heima hjá okkur Jónu. Hver er besta jólamyndin? Ætli það sé ekki "Christmas Vaca- tion" með Griswold fjölskyldunni. Hún toppar allt. Hvaða lag kemur þér í jólaskap? "The Christmas song" eftir Bob Wells og Mel Tormé. Íslenska út- gáfan af því lagi heitir "Þorláks- messukvöld". Af íslenskum lögum finnst mér lagið "Gleði og friðarjól" eftir Magnús Eiríksson ómissandi hluti af jólastemningunni. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? Nei í rauninni ekki annað en það sem ég sagði hér að framan um jólahefðir. Ég reyni nú bara að hafa það náðugt, borða mátulega mikið og lesa góðar bækur. Hvernig er aðfangadagur hjá þér? Eins og ég sagði hér að framan förum við í kirkjugarðana og í heita pottinn að deginum. Við förum líka alltaf í kirkju, stundum kl. 18 og stundum kl. 23:30 eftir því hvort hentar betur í það og það skiptið. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ætli það sé ekki hjólið sem ég fékk þegar ég var 11 ára. Amer- ískt chopper hjól, grænt með háu stýri, löngum glimmer hnakki og breiðum dekkjum. Hvað er í matinn á aðfangadag? Heimalöguð hnetusteik að hætti Jónu og samkvæmt uppskrift Pét- urs Péturssonar, matreiðslumanns, og kalkúnabringur. Eftirminnilegustu jólin? Ætli það séu ekki jólin 2009. Þá var Kristófer Orri, eldri afastrákurinn okkar, nýfæddur og Jóna í strangri lyfjameðferð. Það var því mikið til- finningarót í gangi þau jólin. Hvað langar þig í jólagjöf? Þegar fólk er komið á miðjan aldur held ég að flestir séu hættir að hugsa um harða eða mjúka pakka. Þá snúa óskir og vonir meira í átt að heimsfriði, góðri heilsu og að eiga sem flestar samverustundir með sínum nánustu. Ef ég næ að hitta mína nánustu hressa og káta um jólin þarf ég ekki annað. Jú, kannski eina góða bók. Borðar þú skötu? Ég hef smakkað skötu en get alveg verið án hennar. Ég fór nokkur ár í röð í skötuveislur í hádeginu á Þor- láksmessu en hef ekki farið sl. 6 ár. Það segir allt. Eru einhverjar hefðir í kringum Þorláksmessu hjá þér? Bara eins og hjá flestum held ég, ljúka við jólagjafakaup, fara niður í bæ að kvöldi og upplifa stemning- una á Hafnargötunni og reka svo inn nefið í einn kaffi hjá vinum og kunningjum. HS Veitur hf hsveitur.is Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum GLEÐILEGRA JÓLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.