Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 48

Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 48
48 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR – Hver er besta jólamyndin? Besta jólamyndin er klárlega Home Alone. Miðjubarnið ég fann fyrir mikilli samkennd með aumingja Kevin, gleymda barninu á jólunum. Mér fannst Buzz stóri bróðir hans ekkert ósvipaður Gunnhildi systur þegar hún var uppá sitt besta og sagði mér að ég tilheyrði ekki fjöl- skyldunni og hefði fundist í rusla- tunnunni. Mamma mín hefði líka gert hvað sem er til að redda mál- unum ef þetta hefði gerst í minni fjölskyldu Kemur mér í jólaskap jafnvel í júní. – Hvaða lag kemur þér í jólaskap? Uppáhaldsjólalögin mín eru Þú komst með jólin til mín með Bó og Ruth Reginalds og Þegar jólin koma með Á móti sól. Svo klassíkin eins og I'm dreaming of a white Christmas og It's beginning to look a lot like Christmas. Jólanótt með Ragnheiði Gröndal eftir hann Ell- ert vin okkar hjónanna á líka sér- stakan stað í hjarta mínu. Ég sakna þess að geta ekki hringt í Brosið og fengið óskalag og kveðju með því – Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? Ég er mikið jólabarn, enda á ég af- mæli milli jóla og nýárs, og ég er mjög vanaföst með allt, hvort sem það eru jól eða annað. Ég baka allt- af smákökur þrátt fyrir próflestur og verkefnavinnu. Hvítir lakkríst- oppar og ömmu Dúnnu súkkulaði- bitakökur eru fæðuflokkur út af fyrir sig á aðventunni. Eiginmann- inum finnst við hæfi að hefja ýmsar framkvæmdir í byrjun desember og klára svona fjórum dögum fyrir jól, sem setur strik í jólahreingern- inguna. Í ár er það að flísaleggja eldhúsið. Mér finnst síðan ómiss- andi að taka rölt á Hafnargötunni á Þorláksmessu með fjölskyldunni. Karlinn fer í kakó með börnin á Ránni, sem er hefð hjá honum, á meðan ég kaupi síðustu jólagjöf- ina...oftast handa honum. Jólunum fylgja svo fullt af jólaboðum og til dæmis förum við í kjúklingaboð á annan í jólum með stórveldunum fimm, móðursystrum mínum. Þá er kjúlli klæddur í sparibúning með stöffing og góðri sósu og svo ís með marssósu í eftirrétt. Alveg frá- bær hvíld frá öllum bjúgvaldandi matnum hina dagana. Þá eru spiluð borðspil sem mér finnst ómissandi á jólunum. Síðustu jól keypti ég risapúsl og við fjölskyldan vorum að vinna í því öll jólin við misjafnar undirtektir en ég vil endilega koma þessari nýju hefð á hjá fjölskyld- unni enda einlægur áhugamaður um teymisvinnu og allt sem eflir hana. Áramótin eru síðan tilfinninga- ríkur tími í mínum huga, ég er log- andi hrædd við flugelda og hætti mér ekki út úr húsi á gamlárskvöld fyrr en um tvítugt. Þá á ég það til að fella tár yfir sálminum "nú árið er liðið í aldanna skaut" þegar minn- ingaflóð ársins hellist yfir mig. – Hvernig er dæmigerður aðfangadagur hjá þér? Dæmigerður aðfangadagur hjá mér hefst á því að sofa eins lengi og börnin leyfa. Svo held ég áfram eldamennskunni á möndlu- grautnum (grjónagrautur) sem hefst venjulega á Þorláksmessu. Börnin horfa á sjónvarpið og við hjónin eldum. Við tökum svo rúnt með jólagjafir og jólakortin sem ég gleymdi að setja í póst á réttum tíma. Við komum við í kirkjugarð- inum hjá tengdaforeldrum mínum, afa og ömmu og fleirum sem við söknum mest yfir hátíðirnar. Þegar heim er komið þarf yfirleitt að krulla hár á tveimur og stundum þremur stelpum og yfirleitt er það ég sem verð útundan vegna tíma- skorts og enda með hárið í snúð eða út um allt þegar við setjumst við kvöldverðarborðið klukkan sex á Aðfangadagskvöld. Mamma hafði alltaf messuna á í útvarpinu og við gerum það – Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta jólagjöfin. Þetta er erfið spurning. Ég hef alltaf notið þess meira að sjá viðbrögð annarra við gjöfunum sem ég gef. Ég gleymi því þó aldrei þegar mamma opnaði gjöf frá pabba og í pakkanum var miði sem á stóð: "gjöfin þín er í bílskúrnum". Mamma hljóp út í bílskúr og hélt hún væri að fá bíl og við á eftir henni en þar blöstu við þessi fínu skíði. Þá var mikið hlegið. Mér þykir alltaf vænt um föndruðu gjafirnar frá börnunum og sérstaklega handarfarið úr gifsi sem Júlía Rún eldri dóttir mín gaf mér þegar hún var þriggja ára. Í fyrra náði síðan maðurinn minn að koma mér á óvart þegar hann gaf mér iphone, sem ég átti ekki von á. – Hvað er í matinn á aðfangadag? Það er ekki hægt að tala mig inná matseðilsbreytingar á jólunum, ég mun alltaf hafa möndlugraut, graflax, hamborgarhrygg, brún- aðar kartöflur, piknik kartöflustrá, sveppasósuna hans pabba og óhollt rjómasalat. Ein jólin gerði maður- inn minn sósuna og ég setti eitt- hvað út á hana og þá hreytti hann þessum fleygu orðum í mig: "Viltu ekki bara giftast honum pabba þínum?!" – Eftirminnilegustu jólin? Ætli eftirminnilegustu jólin verði ekki bara jólin 2012. Þá handleggs- brotnaði hún Heiðrún Helga, yngri dóttir mín, þá tæplega tveggja ára, á Þorláksmessukvöld og grét svo alla nóttina. Aðfangadagsmorgun fór í úrlestur röntgenmynda og gifsun á slysó hér á HSS. Ég var ekkert mjög áhugasöm um að eyða morgninum "í vinnunni" en við fengum frábæra þjónustu þar enda sáu góðar vinkonur mínar, Bóel læknir, Stellan mín á rönt- gen og Berglind Ásgeirsdóttir vel um okkur en barnið gifsaði ég sjálf með aðstoð þeirra. Við mæðgurnar vorum síðan ansi sjúskaðar þann aðfangadag, Heiðrún Helga harð- neitaði að fara í föt og var því hálf í samfellu og ég illa sofin. – Hvað langar þig í jólagjöf? Eins og ég sagði áðan þá gleður mig mest á jólunum að hitta naglann á höfuðið og ramba á réttu gjöfina og gleðja þannig aðra. En ef ég gæti valið um hvað sem er þá væri það fjölskylduferð til útlanda. Ég er vel meðvituð um að ég hef það gott að fá að eiga góð jól með fjölskyldunni minni þar sem allir eru heilsu- hraustir og jólin vekja engan kvíða. Hugur minn er oft hjá börnum sem eru ekki eins lánsöm og við, hvort sem það er vegna veikinda, vímu- efnaneyslu eða fátæktar. Í mínum huga eru jólin fyrst og fremst hátíð barnanna og veit að ég mun sakna hennar Alexöndru, stjúpdóttur minnar, sem verður uppi í sveit með mömmu sinni þessi jól. – Eru einhverjar hefðir í kringum Þorláksmessu hjá þér? Það er ekki séns að ég smakki skötu, lyktin er alltof viðbjóðsleg og minnir óneitanlega á lykt úr vel sýktu sári. Í gamla daga fékk ég hangikjöt hjá ömmu Dúnnu á Þorláksmessu en síðustu árin fer eiginmaðurinn í skötu með afa sín- um og bræðrum meðan við mæðg- urnar og Amma Imma styrkjum skyndibitamenningu Reykjanes- bæjar ýmist með góðgæti frá Villa Pulsu eða glóðvolgri pizzu. OPNUNARTÍMAR UM JÓL OG ÁRAMÓT Starfstöðvar Kölku í Helguvík, Grindavík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega. Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða! - jólaspurningar ■■ Guðrún Ösp Theódórsdóttir í jólaspjalli: „Viltu ekki bara giftast honum pabba þínum?!“ Guðrún Ösp Theódórsdóttir, hjúkrunarfræðingur á slysa- og bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fann fyrir mikilli samkennd með aumingja Kevin í myndinni Home Alone og hún segist vera mikið jólabarn, enda sjálf fædd milli jóla og nýárs. Það má ekki nefna við hana að breyta matseðlinum á jólunum og hún segir skötuna lykta eins og sýkt sár og það sé ekki séns að hún smakki á henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.