Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 58

Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 58
58 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR Tilboðin gilda 18. - 21. des. 2014 www.netto.is Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Höfn · Grindavík Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Akureyri bækur útkall Óttar sveinsson 3.899 kr m ar kh ön nu n e hf SPENNANDI BÓKAJÓL Þökkum innilega frábærar móttökur á árinu sem er að líða Psst... vissuð þið að Grýla verslar allt garn í sokkana á jólasveinana hjá okkur? Jólakveðja frá Gallery Spuna Fylgist með okkur á facebook.com/galleryspuni Sími: 424 6500 Gerðavöllum 17, Grindavík (við hliðina á bakaríinu) gott og farsælt Gleðileg jól komandi ár ■■ Helga Jóhanna Oddsdóttir dettur á bólakaf í Nóakonfektið: Vaknar timbruð af sykuráti flesta morgna Keflvíkingurinn Helga Jóhanna Oddsdóttir er ACC markþjálfi hjá Carpe Diem sem er fyrirtæki hennar sem annast markþjálfun og ráðgjöf. Helga segir að Frostrósir komi henni í jólaskap. Hún sé vanaföst um jólin og segist hafa tekið margt með sér úr æskunni en hafi þó skapað sínar hefðir eftir að hún flutti að heiman. - jólaspurningar Hver er besta jólamyndin? „The Holiday og Love Actually eru dásamlegar. Mér finnst gott að kúra í desember og fara með aðalper- sónum í gegnum gleði og sorgir, er algjör sucker fyrir rómantík á dimmum vetrarkvöldum Svo upp- götvuðu strákarnir mínir Home Alone myndirnar fyrir nokkrum árum og þær eru orðnar fastur liður í kósýkvöldum aðventunnar líka“. Hvaða lag kemur þér í jólaskap? „Frostrósir eins og þær leggja sig. Get ómögulega gert upp á milli“. Ertu vanaföst um jólin? „Ég er ótrúlega vanaföst og tek margt frá æskunni þó ég hafi skapað mínar eigin hefðir frá því að ég flutti að heiman. Ég neita t.d. að gera jólahreingerningu sem gerir alla vitlausa og ég held að mamma sé meira að segja farin að slaka á í því. Auðvitað vil ég hafa hreint og fínt en öllu má nú ofgera. Að- ventan fer í rólegheit, bakstur og skreytingar. Smákökurnar eru oftar en ekki bakaðar fyrstu helgina í aðventu og svo aftur um miðjan desember þar sem þær eiga það til að gufa upp. Ég dett líka algjörlega á bólakaf í Nóakonfektið og vakna þ.a.l. timbruð af sykuráti flesta morgna um jólin. Svo er nokkuð öruggt að næturnar við lestur góðra bóka verði langar og að ég sjáist á náttsloppnum fram eftir degi. Stóru strákarnir okkar koma svo í humar á jóladag, þ.e. ef við vinnum samkeppnina við tengdafjölskyldu- rnar. Jólaboð föðurfjölskyldunnar og vistin sem þar er spiluð er líka ómissandi liður í jólunum. Náist þetta eru jólin nákvæmlega eins og ég vil hafa þau“. Hvernig er dæmigerður aðfanga- dagur hjá þér? „Ég passa að hafa hann rólegan og afslappaðan. Við sofum gjarnan fram á miðjan morgun, eigum notalega stund yfir morgunverði og svo klárum við í rólegheitum það sem eftir er í tiltekt og byrjum að elda. Rétt fyrir sex koma foreldrar mínir, tengdaforeldrar og amma í hús og við borðum þegar RÚV hefur hringt inn jólin. Svo tekur við hefðbundin gleði drengjanna og pakkaflóð sem stendur í ein- hverja stund. Eftir það er kvöldkaffi og rólegheit og ég enda gjarnan á náttfötunum uppi í sófa með góða bók. Þetta er í raun sama dásam- lega rútínan og frá því ég bjó í for- eldrahúsum, fyrir utan það að við færðum okkur yfir á mitt heimili fyrir níu árum“. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Þær hafa verið margar og hver annarri dásamlegri. Ég man alltaf eftir því þegar jólasveinninn henti inn í íbúðina sem við bjuggum í, risastórum pakka sem innihélt dúkkuvagn. Enn þann dag í dag er ég á því að hann hafi komið fljúgandi inn um glerið í útihurð- inni án þess að opna dyrnar eða brjóta glerið og það eina sem sást var skugginn af jóla þegar hann hraðaði sér í burtu“. Hvað er í matinn á aðfangadag? „Þar þýðir ekkert að stinga upp á breytingum eða tískufyrirbærum hvað það varðar. Rjómalöguð aspassúpa, léttreyktur lamba- hryggur að hætti mömmu og heimagerður ís hefur verið á mín- um borðum alla tíð. Ég varð meira að segja alveg fullorðin í fyrra þegar ég gerði ís í fyrsta sinn“. Eftirminnilegustu jólin? „Þau eru í raun samsettar minn- ingar af hinu og þessu. T.d. úr æsku þegar rafmagnið fór oft af í miðri eldamennsku vegna álags, skreyttur símastaurinn/mastrið í miðbæ Keflavíkur sem sást svo vel úr borðstofunni hjá mömmu og pabba, tilfinningin og þakklætið fyrir fólkið mitt, rólegheitin að loknu pakkaflóðinu og pabbi, og í seinni tíð - maðurinn minn og bræður sofnaðir í sófanum. Ótrú- lega afslappandi. Jólin eru dýr- mætur minningabanki sem við höldum áfram að leggja inn í“. Hvað langar þig í jólagjöf? „Ef ég ætti að vera ótrúlega eigin- gjörn, þá væri ég alveg til í að eiga jólin með bræðrum mínum sem búa erlendis og þeirra fjölskyldum. Sakna þeirra hrikalega á þessum árstíma. Fyrir hönd landsmanna: algjöra endurskoðun á hugar- fari okkar, endalok net-tröllanna og riddara lyklaborðsins, breytta nálgun fjölmiðla á umfjöllunar- efnum, gleði og jákvæðni sem gera lífið svo miklu meira þessi virði að lifa því“. Að lokum, eru einhverjar hefðir í kringum Þorláksmessu hjá þér? „Ég hef yfirleitt átt rólega Þorláks- messu, soðið hangikjötið og dútlað heimavið. Við skreyttum jólatréð alltaf á Þorláksmessukvöld en eftir að við skiptum yfir í gervi höfum við stundum skreytt örlítið fyrr. Ég hef einu sinni prófað skötu, einn munnbita. Það verður ekki endur- tekið, takk samt,“ segir Helga Jó- hanna Oddsdóttir. Óskum öllum Suðurnesja- mönnum gleðilegrar hátíðar, takk fyrir það liðna og gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir viðskiptin Ytri-Njarðvíkurkirkja Jólaball 21. desember kl.11:00. Jólasveinn sem heima á í fjallinu Keili mætir og gefur börnunum eitthvað gott. Aðfangadagur Jólavaka kl. 23:30. Helgileikur í umsjá fermingarbarna og í lokin munu allir tendra kertaljós þegar sungið verður „Heims um ból“. Jóladagur Hátíðarguðsþjónusta kl.14:00. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.14:00. Sönghópurinn JOYCES frá Þýskalandi syngur 2. lög. Allir velkomnir Óskum Grindvíkingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.