Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.2016, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 27.10.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 27. október 2016VÍKURFRÉTTIR Kostnaður við lagningu Suðurnes- jalínu 2 sem jarðstrengs er töluvert hærri en sem loftlínu, samkvæmt ný- legri skýrslu Landsnets þar sem bornir eru saman þrír valkostir; jarðstrengur samhliða þeim háspennulínum sem fyrir eru, jarðstrengur að mestu með- fram Reykjanesbraut og loftlína sem liggur meðfram Suðurnesjalínu 1. Í skýrslunni eru möguleikarnir bornir saman á ýmsan hátt, þar á meðal kostnaður við framkvæmdina sem nær frá Hrauntungum í Hafnarfirði að Rauðamel. Niðurstaðan er sú að stofnkostnaður við jarðstreng með- fram Suðurnesjalínu 1 er metinn um 3,5 milljarðar króna, 3,7 milljarðar við jarðstreng meðfram Reykjanesbraut og 1,7 milljarðar við loftlínu. Í skýrsl- unni segir að allar tölur um kostnað séu nokkurri óvissu undirorpnar en að meiri reynsla sé komin af byggingu loftlína en lagningu jarðstrengja og tölur um kostnað við þær því áreiðan- legri. Varfærið mat gerir ráð fyrir því að loftlínurnar endist í 60 ár. Almennt mæla framleiðendur jarðstrengja með því að gert sé ráð fyrir að þeir endist í 40 ár. Í áætlunum sínum hefur Landsnet gert ráð fyrir að Suðurnesjalína 2 verði loftlína við hlið þeirrar eldri, Suður- nesjalínu 1. Ekki fékkst samþykki allra landeigenda á Vatnsleysuströnd fyrir lagningu loftlínunnar og hafa áætlanir um framkvæmdina verið umdeildar og öll skref í ferlinu verið kærð, annað hvort til dómsstóla eða úrskurðar- nefnda. Nú síðast féll dómur í Hæsta- rétti þann 13. október þar sem ógild var ákvörðun Orkustofnunar um að veita Landsneti leyfi til að reisa og reka Suðurnesjalínu 2. Út frá tölfræði um truflanir í rekstri jarðstrengja er líklegt að yfir 40 ára tímabil gætu orðið 3 til 4 bilanir og samtals gæti jarðstrengur verið úr rekstri í um 1.200 klukkustundir eða í um tvo mánuði. Í skýrslunni segir að verulegur kostnaður verði af bilunum af þessari stærðargráðu og því mikil- vægt að til staðar sé önnur raflína til að minnka áhrif þeirra. Þá kemur fram að líklegt sé talið að yfir 40 ára tímabil gætu orðið fjórar til fimm bil- anir á loftlínu og að hún gæti verið úr rekstri í tæpan sólarhring. Raforkuspá fyrir Suðurnesin gerir ráð fyrir að álag aukist um 100 prósent frá árinu 2014 til 2050. Í skýrslunni kemur fram að á Suðurnesjum þurfi Landsnet að bregðast við nokkrum áformum stjórnvalda og sjá til þess að flutningskerfi raforku hafi flutnings- getu í samræmi við áætlanir. Meðal þessarra áætlana eru kísilver Thorsil og stækkun á kísilveri United Silicon. Þá kunna stór gagnaver að bætast við. Skýrsluna má nálgast á vef Landsnets. Viðurkennt gúmmíkurl er komið á sparkvelli í Grindavík sem áður voru með úrgangsdekkjakurli sem læknar höfðu varað við. Í Grindavík voru tveir sparkvellir með úrgangsdekkjakurli sem læknar hafa varað við, annar völlurinn er frá árinu 2006 og hinn 2010. Grindavíkurbær ákvað við gerð fjárhagsáætlunar í fyrra að vera til fyrirmyndar og leyfa börnunum að njóta vafans og skipta gúmmíkurlinu út í ár, sem er í sam- ræmi við beiðni stjórnar Heimilis og skóla og ályktun umboðsmanns barna og Læknafélags Íslands. Í sumar var skipt bæði um gervigras og gúmmíkurl á eldri vellinum. Á nýrri vellinum var dekkjakurlið ryk- sugað burt og gúmmí af viðurkenndri gerð sett í staðinn, þ.e. ljóst að lit og án efna sem teljast skaðleg heilsu eða mengandi. Er það í samræmi við sam- þykkt stjórnar KSÍ frá því í fyrrahaust. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur fagnar því að börnin í Grindavík hafi fengið að njóta vafans, segir í gögnum nefndarinnar frá síð- asta fundi hennar. Samsung Galaxy Note 7 bannaður í ferðum frá Keflavík ■ Íslensku flugfélögin WOW air og Icelandair hafa bætt sér í hóp fjölda flugfélaga sem banna farþegum sínum að koma með Samsung Galaxy Note 7 síma um borð véla sinna, hvort sem farþeginn er með símann á sér, í handfarangri eða tösku sem sett er í farangursrými. RÚV vitnar í heimasíðu Icelandair, sem segir á heimasíðu sinni að þeim sem reyni vísvitandi að ferðast með slíka síma til Bandaríkjanna og Kanada verði vísað frá borði. Áætla að kostnaður við jarð- streng sé meiri en við loftlínu ●● Landsnet●hefur●borið●saman●þrjá●kosti●Suðurnesjalínu●2 Tvær til fjórar vikur getur tekið að bíða eftir bókuðum tíma hjá lækni á dagtíma á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja í Reykjanesbæ þegar álagið er hvað mest. Um þessar mundir er biðtíminn um tvær vikur en eftir síma- tíma ein vika. Að sögn Hall- dórs Jónssonar, forstjóra HSS, er biðtíminn tölu- vert breytilegur og fer eftir því hvernig mönnun er á hverjum tíma og eftirspurn eftir þjónustu. Biðtíminn var stuttur síðasta sumar á HSS í Reykja- nesbæ og er almennt stuttur í Grinda- vík. Halldór segir haustin yfirleitt vera álagstíma á HSS. „Um mánaðamótin ágúst/september hættir sumarstarfs- fólk, þar á meðal læknar og lækna- nemar, sem leiðir af sér einhverja fækkun. Auk þess eru alltaf einhverjar hreyfingar á læknum og/eða lengri leyfi. Þannig hefur það verið og því færri læknar við störf en verið hefur. Almennur skortur er á læknum og framboð því minna en eftirspurn,“ segir Halldór. Þá þurfa sérnámslæknar á HSS að taka hluta af sínu námi á Landspítala og eru því fjarverandi frá námi og störfum á HSS þann tíma. Það á við um einn sérnámslækni á HSS um þessar mundir. Boðið er upp á tíu mínútna hraðtíma á dagtíma á HSS í Reykjanesbæ sem bókað er í samdægurs. Að sögn Hall- dórs eru þeir tímar í boði flesta virka daga ársins. Þá er síðdegisvakt á virkum dögum og um helgar en þar er gert ráð fyrir um það bil tíu mínútna tímum sem ekki er bókað í fyrirfram. Þeir tímar kosta 1.900 krónum meira en bókaður tími, sé miðað við almennt verð. Auk þess að bjóða upp á heilbrigðis- þjónustu í Reykjanesbæ og Grinda- vík er opið einu sinni í viku hjá HSS í Vogum. Að þjónustu HSS koma ýmsar fagstéttir, svo sem læknar, hjúkrunar- fræðingar, ljósmæður, sálfræðingar, sjúkraliðar, geislafræðingar, lífeinda- fræðingar og fleiri. Bráðamóttaka á HSS Reykjanesbæ er opin alla daga fyrir bráðatilfelli. Halldór segir alltaf verið að leita leiða til að tryggja næga mönnun og styrkja þannig þjónust- una. „Það er hins vegar verkefni sem á sér engan endi og viðleitni okkar og vinna heldur því áfram með það að leiðarljósi að styrkja og bæta þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja við íbúa svæðisins.“ Tveggja til fjögurra vikna bið eftir tíma hjá lækni ●● Haustin●alltaf●álagstími●hjá●HSS ●● Biðtími●eftir●símatíma●er●ein●vika Halldór Jónsson, forstjóri HSS. Börnin fengu að njóta vafans ●● viðurkennt●gúmmíkurl●í●stað●úrgangsdekkjakurls●á●gervigrasvelli VIÐREISN | www.vidreisn.is Viðreisn á Kjördag Kosningavaka Viðreisnar verður á Ránni í Reykjanesbæ Kaffi og kökur verða frá 14-17 Kosningavaka byrjar kl 21:00 Frambjóðendur verða á staðnum Allir velkomnir - fyrir frjálslynt fólk Íslenskir aðalverktakar óska eftir dugmiklu og ábyrgðarmiklu starfsfólki á járnaverkstæði ÍAV upp á Ásbrú. Óskað er eftir járn- og málmiðnarmönnum jafnt sem vönum starfskröftum með eða án réttinda. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf í þjónustu-, viðhalds- og nýframkvæmdum á Suðurnesjum og Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 617 8943 eða í tölvupósti einar.ragnarsson@iav.is ATVINNA

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.