Víkurfréttir - 27.10.2016, Page 18
18 fimmtudagur 27. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Hrekkjavakan er á næsta
leiti, eða 31. október, og
ekki seinna vænna að fara
að huga að skreytingum
og ógnvekjandi búningum.
Undanfarin ár hefur þessi
bandaríski siður notið
vaxandi vinsælda á Íslandi
og hafa nokkur hverfi á
Suðurnesjum gert „grikk
eða gott“ að árlegum sið.
Þá skreyta þeir sem vilja
taka þátt innganginn með
logandi kertaljósum, oft í útskornum
graskerjum og öðru draugalegu
skrauti og börnin ganga í hús, bjóða
grikk eða gott og fá sælgæti eða annars
konar góðgæti. María Sigurðardóttir,
íbúi í Heiðarhverfinu í Reykjanesbæ,
segir þetta mikla fjölskylduskemmtun
og vonar að sem flestir taki þátt og
sleppi sínu innra barni lausu í skreyt-
ingum og gleði.
„Það hefur lengi blundað vilji hjá
okkur vinkonunum að halda Hrekkja-
vöku í hverfinu okkar en einhvern
veginn varð ekkert úr því. Það var ekki
fyrr en vinkona okkar, hún Svava Ósk,
flutti í hverfið til okkar úr Innri Njarð-
vík að hugmyndin varð að veruleika.
Þessi hátíð hefur verið haldin í Innri
Njarðvík í nokkur ár með
mikilli þátttöku og kátínu
á meðal barnanna. Við vin-
konurnar höfum verið að
fara til þeirra eða upp á
Ásbrú með börnin okkar til
að taka þátt í þessari gleði.
En svo ákváðum við Svava
og Þóra Kristín að hittast
og skipuleggja svona við-
burð í Heiðarhverfinu.
Eftir að við b j u g g u m
til viðburðinn
og settum hann á Fa-
cebook þá hefur mikil
umræða farið af stað
í kringum okkur. Til
mikillar ánægju þá er
þáttakan svakalega
góð og tala margir um
að skreyta heimilin
sín, halda hrekkjavö-
kupartý og klæða sig
upp í tilefni dagsins.
Við vonum bara að
sem flestir taki þátt
og sleppi sínu innra
barni lausu í skreyt-
ingum og gleði,“
segir María.
Hvað finnst þínum
börnum um Hrekkjavökuna?
„Það er mikil gleði á heimilum okkar
vinkvennanna. Það eru allir þátttak-
endur í gleðinni, ungir sem aldnir.
Hér er legið á Pinterest að skoða
skreytingar, góðgæti, búninga og
farðanir. Þetta er mikil fjölskyldu-
skemmtun. Enda var það tilgangurinn
með þessum viðburði, að útbúa góða
fjölskylduskemmtun,“ segir María að
lokum.
Glæpasögur og góðir höfundar
■ Glæpasagnavika stendur nú yfir í Bókasafni Reykjanesbæjar. Glæpa-
sögum verður gert hátt undir höfði þessa daga, glæpagetraun verður á
safninu og verður safnið að einum allsherjar glæpavettvangi.
Í kvöld, fimmtudagskvöldið 27. október, klukkan 20.00 koma glæpsam-
lega góðir gestir í heimsókn, það eru glæpasagnahöfundarnir Lilja og Yrsa
Sigurðardætur sem koma og kynna sínar nýjustu glæpasögur. Þær fjalla um
áhuga sinn á glæpasögum og hvernig þeirra glæpasögur verða til.
Allir góðir gestir eru glæpsamlega velkomnir, segir í tilkynningu.
Senjórítur og Raggi
Bjarna með tónleika
■ Senjórítukórinn mun halda haust tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju ásamt
stórsöngvaranum Ragga Bjarna laugardaginn 29. október. Undir spila Birgir
Bragason á bassa, Erik Róbert Qvick á trommur og Vilberg Viggósson á
píanó.
SKOÐA
Hrekkjavöku-
hugmyndir
Á PINTEREST
●● Skreytingar,●góðgæti,●búningar●og●andlitsfarðanir
María Sigurðardóttir,
íbúi í Heiðarhverf-
inu í Reykjanesbæ
Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi
sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317.
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.
ALÞINGISKOSNINGAR
LAUGARDAGINN 29. OKTÓBER 2016