Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.2016, Side 29

Víkurfréttir - 27.10.2016, Side 29
29fimmtudagur 27. október 2016 VÍKURFRÉTTIR Keflvíkingurinn Íris Sigtryggsdóttir tók við stöðu verslunarstjóra hjá BYKO Suðurnesjum fyrir um tveimur árum en áður hafði hún verið svæðis- stjóri hjá upplýsingaveitunni JÁ í Reykjanesbæ í átta ár og reyndi svo fyrir sér hjá hugbúnaðarfyrirtæki áður en starfið hjá BYKO bauðst henni. „Ég stýrði áður þjónustu- og upplýs- ingafyrirtæki þar sem nánast störf- uðu eingöngu kvenmenn og fyrir- tækið kvenlægt líka sem var mjög skemmtilegt. Það var því áskorun að fara hingað. Ég var hins vegar á tíma- mótum og datt niður á þetta verslunar- stjórastarf, sótti um og fékk starfið. Áskoranir af ýmsum toga heilla alltaf, þetta hljómaði sem spennandi starf hjá stóru og rótgrónu fyrirtæki og allt- af gaman að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Íris þegar Víkurfréttir ræddu við hana skömmu eftir að hún tók við starfi verslunarstjórans. Íris þekkir vel til aðeins til starfa iðn- anarmanna því hún hóf störf hjá Kefla- víkurverktökum fyrir tæpum tveimur áratugum og starfaði þar í tíu ár. „Það kom mér skemmtilega á óvart hvað BYKO er flott fyirtæki. Það er eitthvað svo notalegt við þetta fyrir- tæki sem ég þekkti lítið til, samstaða og samhugur sem kemur fram hjá starfsfólkinu. Hér hefur sama starfs- fólkið verið til margra ára, margir í tugi ára. Þegar ég kom fyrst til fyrir- tækisins fór ég í meiriháttar starfs- þjálfun hjá BYKO bæði í Reykjavík, Selfossi og víðar. Þar var ég í timbur- deildunum og lagnadeildunum og fékk í raun kynningu inn á allar deildir fyrirtækisins. Þar var ég að hitta fólk sem hefur starfað hjá BYKO í 30 ár og 40 ár. Það er hending ef það er einhver búinn að starfa hér minna en 15 ár,“ segir Íris og brosir þegar hún var spurð hvernig það hafi verið að koma til BYKO. „Það sagði mér ýmis- legt um fyrirtækið. Þetta er fjölskyldu- fyrirtæki og andrúmloftið notalegt sem skýrir þennan háa starfsaldur hjá fyrirtækinu. Þetta kom mér skemmti- lega á óvart“. Hér er gríðarleg reynsla og þekking „Hér er starfsfólk sem býr að gríðar- legri reynslu og þekkingu. Þjónustu- lundin og metnaðurinn er einnig svo mikill hjá þessu fólki. Að koma inn í þetta starf með litla og enga þekk- ingu á vöruflokkunum er áskorun,“ segir Íris en hjá BYKO eru á milli 35- 40.000 vöruflokkar. „Ég mun aldrei verða sérfræðingur í þessu öllu en það bætist við þekkinguna á hverjum degi. Starfsfólkið hér er orðið sérfræðingar hver á sínu sviði“. Sveinbjörg Sigurðardóttir, eða Systa, eins og hún er alltaf kölluð, hefur starfað hjá BYKO í 20 ár og segir vinnustaðinn eins og eina litla fjöl- skyldu. „Ætli það sé ekki bara fólkið,“ svarar Systa þegar hún er spurð að því hvað hafi haldið henni í starfinu í öll þessi ár. „Við erum mörg hérna búin að vera í meira en 10 ár. Það segir manni hvað það er gott að vinna hérna. Við erum bara lítil fjölskylda. Kúnnahópurinn er líka skemmtilegur, maður er farinn að kannast við flesta.“ Systa starfaði hjá Járn & Skip áður, en var í fæðingarorlofi þegar bruninn átti sér stað. Hún kom þó fljótlega eftir og hjálpaði til við að þurrka nótur og rýna í hluti eftir brunann. Aðspurð hvort salan sé sveiflukennd eftir ástandinu í samfélaginu svarar Systa játandi, „Já, salan hrundi í krepp- unni og það þurfti að skera niður alls staðar. Nú er verið að bæta í aftur. Svo eru jólin líka að koma og við erum að byrja að setja upp jólavörur. Þær verða komnar upp í næstu viku. Það er alltaf eitthvað.“ Unnið hjá BYKO frá fyrsta degi ●● Við●erum●bara●lítil●fjölskylda●og●kúnnahópurinn●er●líka●skemmtilegur Fyrsti viðskiptavinurinn og enn að Lúðvík Gunnarsson pípulagningameistari var fyrsti viðskiptavinur BYKO þegar verslunin opnaði haustið 1996. Lúðvík er enn daglegur viðskiptavinur BYKO og mætti í afmæliskaffi verslunarinnar sl. föstudag. Þar var hann leystur út með gjöf. Á myndinni eru þau Íris Sigtryggsdóttir, verslunarstjóri BYKO Suðurnes, Sveinbjörg Sigurðardóttir, Systa, sem hefur starfað hjá BYKO Suðurnes frá því verslunin opnaði og Lúðvík Gunnarsson. VF-mynd: Hilmar Bragi Eitthvað svo notalegt við þetta fyrirtæki ●● segir●Íris●Sigtryggsdóttir●verslunarstjóri●BYKO●Suðurnes Kaka og drykkur Fjölmargir lögðu leið sína í afmæliskaffi í verslun BYKO við Víkurbraut sl. föstu- dag þegar 20 ára afmælinu var fagnað. Verslun Járn & Skip gjöreyðilagðist í brunanum. Í rústunum eftir brunann. Byggingin var gjörónýt. Í frétt Víkurfrétta frá þessum tíma segir að talið er að hitinn inni í húsinu hafi verið 1200 gráður þegar það var að brenna. Hitinn í eldhafinu hlífði engu. Málningar- fötur sprungu í loft upp og eldfim málningin fuðraði upp á augabragði.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.