Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 63

Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 63
63fimmtudagur 22. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR Verð pr. mann að kvöldi kr. 4.250,- Verð pr. mann í hádegi kr. 3.500,- Börn yngri en 12 ára 1.600,- Borðapantanir í síma 421 7080 eða duus@duus.is Skata Kæst skata Saltfiskur Hangiflot Hnoðmör Hamsatólg Plokkfiskur Sjávarréttagratín Bayonnes skinka Hangikjöt með uppstúf Kartöflur Kartöflusalat Rúgbrauð Smjör Harðfiskur Hákarl Rófur Síldarþrenna Laufabrauð duus@duus.is - Sími 421 7080 Skötuhlaðborð á Þorláksmessu frá kl. 12 - 14.30 og kl. 18 - 22 Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða nokkur íslenskunámskeið. „Það tók okkur langan tíma að læra íslenskuna og fyrstu þrjú til fjögur árin á Íslandi þá töluðum við ensku. Svo fæddist eldri strákurinn og fór í leikskóla og lærði íslensku og auðvitað vildum við skilja það sem hann sagði og líka hvað var að gerast þar. Núna er eldri strákurinn okkar í 1. bekk og er að læra að lesa og skrifa sögur og við lærum íslensku líka með honum. Það er erfitt að læra nýtt tungumál en ég held að þeir sem virkilega vilji læra ís- lenskuna geti það,“ segir Ania. Marcin segir Íslendinga alltaf hafa verið já- kvæða þegar hann var að reyna að tala íslensku í byrjun. „Ég fór bara í bank- ann og á pósthúsið og talaði við fólk á íslensku. Ég hef engar áhyggjur af því að ruglast, stundum skilur fólk mig ekki strax en það er allt í lagi.“ Ania segir að fæðing eldri sonarins hafi ýtt við þeim að læra íslensku enda gátu þau ekki hugsað sér að hann myndi þurfa að túlka fyrir þau þegar hann yrði eldri. Fjölskyldan talar yfirleitt saman á pólsku heima og horfir saman á barnaefni á pólsku. „Stundum eftir langan dag í skóla og á íþróttaæfingu þá spyr sá eldri hvort hann geti ekki bara sagt okkur frá einhverju atviki á íslensku og þá er það auðvitað í lagi,“ segir Ania. Bæði pólskir og íslenskir jólasveinar Í Póllandi tíðkast að borða ekki kjöt á aðfangadag, heldur fisk, súrsað kál, sveppi og fleiri smárétti og heldur fjölskyldan jólin að pólskum sið. Þar tíðkast líka að bíða eftir að fyrsta stjarnan sjáist á himni og setjast þá við matarborðið. Það er reyndar erfitt að halda í þá hefð á Íslandi þar sem oft er lélegt skyggni í vetrarhörkum í desember. Ania og Marcin halda alltaf upp á jólin með pólskum vinum sem búa í Reykjavík. Fjölskyldurnar skiptast á að bjóða heim til sín á að- fangadagskvöld. „Þau eru í sömu stöðu og við og eiga ekki fjölskyldu á Íslandi. Við erum eiginlega orðin eins og fjölskylda og það er gaman að halda saman upp á jólin, sérstak- lega eftir að börnin fæddust,“ segir Marcin. Synirnir Alex og Kacper fá í skóinn frá íslensku jólasveinunum og hittu líka þann pólska 6. desember en sá dagur er jólasveinadagurinn í Póllandi. Þá kemur jólasveinn heim til fólks, spjallar við börnin og gefur þeim pakka. Komin með íslenskan hugsunarhátt Ania og Marcin eru sammála um að hugsunarháttur Íslendinga og Pól- verja sé að sumu leiti ólíkur. Þau út- skýra það þannig að vegna þess lífs- baráttan sé erfið í Póllandi láti fólk það ganga fyrir að vinna, ekki endilega til að kaupa sér fallega hluti heldur til að þess að lifa af. „Þessi hugsun er einfaldlega í blóðinu,“ segja þau. Eftir áramót ætlar Ania að hefja nám í förðun við Reykjavík Make-up School og hlakkar mikið til. „Ég er pínu stressuð að skilja ekki allt sem verður sagt á námskeiðinu en þetta verður alveg örugglega gaman. Mig langar að breyta til og gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Það væri gaman að geta tekið að sér að farða fólk fyrir sérstök til- efni. Ætli þetta sé ekki hluti af því að hugsunarhátturinn okkar er búinn að breytast og orðinn meira eins og hjá Íslendingum, að kunna líka að njóta lífsins.“ Kannski væri gott að senda ungt fólk á Íslandi til Pól- lands eða Lit- háens í eitt ár? Ania hefur starfað hjá matstofunni Réttinum frá því fyrirtækið var stofnað fyrir tæplega átta árum og er vaktstjóri þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.