Víkurfréttir - 22.12.2016, Page 67
67fimmtudagur 22. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR
Rekstur Golfklúbbs Suðurnesja gekk
vel á árinu sem er að líða en aðal-
fundur hans var haldinn í golfskál-
anum í síðustu viku. Í frétt á heima-
síðu GS segir að á heildina litið hafi
árið 2016 verið gott rekstrarár, senni-
lega það besta í sögu klúbbsins.
Ný gjaldskrá og lagabreytingar voru
samþykkt og að lokum var ný stjórn
kosin.
Stjórn Golfklúbbs Suðurnesja árið
2017 er skipuð eftirfarandi:
Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður
Björgvin Sigmundsson
Georg Arnar Þorsteinsson
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir
Hilmar Björgvinsson
Johan D. Jónsson
Sigurrós Hrólfsdóttir
Sveinn Björnsson
Tekjur klúbbsins voru 80.899.000
milljónir og jukust um 12% á milli ára.
Gjöld klúbbsins voru 77.871,329
milljónir og jukust um 10% á milli
ára. Hagnaður af rekstri var um
2.200.000 miljónir. Skuldir klúbbsins
lækkuðu á árinu og fóru úr um það
bil 19 milljónum í um 15 milljónir eða
sem nemur 26% lækkun. Félagafjöldi
jókst á árinu og fór í 574 félaga sem er
mestur fjöldi frá upphafi.
Sendum íbúum Sandgerðis bestu óskir um
gleðileg jól
og farsælt nýtt ár
Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu
jóla - og nýárskveðju,
megi árið 2017 verða farsælt
og gott ár fyrir
okkur öll.
Óskum Suðurnesjamönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar
með þökk fyrir árið sem er að líða
Óskum öllum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum frábærar viðtökur við jólamarkaði
TG raf og glitrandi jólaleiknum okkar.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
GS í góðum málum