Víkurfréttir - 12.07.2007, Qupperneq 23
23ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
Eldri ungmennafélagar úr Reykjanesbæ náðu frá-
bærum árangri á Landsmótinu
í Kópavogi um síðustu helgi.
Byrjað var að keppa í boccia
á fimmtudagsmorguninn og
Reykjanesbæingar stóðu sig
með prýði og hrepptu silfur og
brons. Þeir sem voru í silfurlið-
inu voru Marinó Haraldsson,
Soffía Guðlaugsdóttir og Jó-
hann Alexandersson en bronsið
hlutu Ísleifur Guðleifsson, Jóna
Björg Georgsdóttir og Guð-
bergur Ólafsson einnig var lið
frá Reykjanesbæ í 5. sæti.
Alls tóku 56 eldri ungmennafé-
lagar þátt í setningu Landsmóts-
ins.
Mjög góður árangur náð-
ist einnig í púttkeppninni. Í
kvennaflokki unnu þær Gerða
Halldórsdóttir silfur og Hrefna
Ólafsdóttir brons en gullið fékk
Valgerður Pálsdóttir Nesklúbbi.
Í karlaflokki voru herrarnir frá
Reykjanesbæ í öllum verðlauna-
sætum Marinó Haraldsson með
gull Hilmar Pétursson með
silfur og Högni Oddsson með
brons.
Laugardagurinn byrjaði með
keppni í línudansi sem fór
þannig að Akranes var með
gullið Reykjanesbær með silfur
og lið frá Reykjavík með brons.
Stjórnandi línudanshópsins er
Ásta Sigurðardóttir en hópur-
inn, sem samanstendur af 13
konum með meðalaldurinn 69
ár, stóð sig með mikilli prýði.
Á laugardeginum voru einnig
sýningaratriði, hringdansar á
grasvellinum í Fífunni og leik-
fimisýning í íþróttahúsinu í Sala-
hverfinu.
Þjálfari dans- og leikfimihóps-
ins er Eygló Alexandersdóttir
en hópurinn samanstendur
af 28 manns sem öll gerðu sitt
allra besta og hópurinn var sam-
stilltur og flottur, enda búið að
þjálfa mikið og vel.
Á laugardagskvöldið var síðan
haldin grillveisla í Hvammi þar
sem sigrum mótsins var fagnað
og borðaður gómsætur grill-
matur.
Frábær árangur eldri
borgara á Landsmótinu
Lið Keflavíkur í körfuknattleik hefur samið við Denis Ikovlev sem mun leika með liðinu á næsta vetri.
Denis þessi er af úkraínsku bergi brotinn en lék með Nevada-Reno
háskólanum í vetur þar sem liðið gerði góða hluti og var í 10. sæti á
styrkleikalista háskólaliða.
Hann er um tveir metrar á hæð, góður varnarmaður og sterk skytta
sem er einnig notaður undir körfunni.
Hann er væntanlegur hingað til lands lok ágúst og mun eflsust
styrkja Keflavíkurliðið, sem ætlar sér stærri og meiri hluti en á síð-
asta ári.
Keflvíkingar hafa þegar styrkt hópinn með tveimur leikmönnum,
þeim Sigurði Sigurbjörnssyni og Vilhjálmi Steinarssyni. Sigurður er
25 ára bakvörður, uppalinn í Keflavík, en lék með Grindavík á síð-
asta tímabil. Vilhjálmur er 24 ára framherji 190 cm. á hæð og hefur
allan sinn feril leikið með Haukum.
Keflavík semur við Ikovlev
Körfuknattleikslið Kefla-víkur í karla- og kvenna-
flokki máttu sætta sig við tap
í úrslitaleikjum Landsmóts
UMFÍ sem fór fram um helg-
ina. Engu að síður sigraði
Keflavík í heildarkeppninni
þar sem ekkert lið náði jafn-
góðum árangri samanlagt.
Kvennaliðið tapaði fyrir Hafn-
firðingum í ÍBH, sem eru Ís-
lands- og bikarmeistarar Hauka,
47-21, og var nokkur munur á
liðunum eins og tölurnar gefa
til kynna.
Karlaleikurinn, þar sem Kefla-
vík mætti Fjölni, var mun jafn-
ari á allan hátt þar sem staðan
var 39-39 eftir venjulegan leik-
tíma og þurfti því að framlengja
eftir flugeldasýningu Magnúss
Þórs Gunnarssonar sem jafnaði
leikinn fyrir Keflvíkinga.
Eftir spennandi framlengingu
þar sem flest stigin komu af víta-
línunni voru Fjölnismenn sterk-
ari og höfðu að lokum sigur,
47-45.
Stigahæstur hjá Fjölni var
Hörður Vilhjálmsson með 18
stig og Kristinn Jónasson setti
12.
Hjá Keflavík var Magnús Gunn-
arsson atkvæðamestur með 16
stig og Sigurður Gunnar Þor-
steinsson skoraði 12.
Þá voru Grindvíkingar í 5. sæti
hjá körlum. Þeir lögðu Stjörn-
una örugglega í umspili, 54-37.
Keflavík landsmóts-
meistari í körfu
Gefins
Vel með farið Chesterfield sófasett
fæst gefins gegn því að vera sótt.
Upplýsingar í síma: 862-3799
Sigurður Þorsteinsson átti
góðan leik fyrir Keflavík
í úrslitunum. Hér á hann
við Kristinn Jónasson í liði
Fjölnis.
VF-mynd/Stefán