Víkurfréttir - 09.08.2007, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 32. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Útrýmingarsala í Kasko um helgina
-örugglega ódýrt!
Keflavík • Breiðholt • Húsavík • Reyðarfjörður • www.kasko.is • verð birt með fyrirvara um prentvillur • Gildir 5. til 8. janúar eða meðan birgðir endasteflavík • Breiðholt • Húsavík • www.kasko.is • verð birt með fyrirvara um prentvillur • Gildir 9.–12. ágúst eða meðan birgðir endast
40–90% afsláttur af útsöluvörum
25% afsláttur af grillum
40% afsláttur
af öllum hjólum
ENN MEIRI
AFSLÁTTUR!
�������������
�
������
Reykjanesbær óskar eftir tilnefningum frá starfs-
mönnum fyrirtækja og stofn-
anna sem telja að fjölskyldu-
stefna sé viðhöfð á þeirra
vinnustað.
Tilnefningar þurfa að hafa borist
eigi síðar en 10. ágúst n.k. Þar
komi fram í hverju fjölskyldu-
stefna fyrirtækisins er fólgin og
hvernig henni er framfylgt.
Þetta er í fjórða sinn sem við-
urkenningar af þessu tagi eru
veittar og þegar hafa átta fyr-
irtæki og stofnanir fengið við-
urkenningar. Viðurkenningar
fara formlega fram með athöfn
í Duus húsum 30. ágúst n.k. við
upphaf Ljósnætur.
Tilnefningar berist til Fjöl-
skyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12,
230 Reykjanesbæ, merktar FJÖL-
SKYLDUVÆN FYRIRTÆKI.
Einnig má senda tilnefningar
með netpósti á netfangið hjor-
dis.arnadottir@reykjanesbaer.is.
fyrir 10. ágúst 2007.
Stjórn Ungmennafélagsins Þróttar vill þakka þeim sem
styrktu félagið með áheitum
vegna Landsgöngu þeirra
Gunnars Helgasonar og Hilm-
ars Egils Sveinbjörnssonar frá
Fönti að Reykjanestá.
Gangan var farin til styrktar
Ungmennafélaginu Þrótti og
var áheitum safnað á meðan á
henni stóð. Ungmennafélagið
þakkar þeim Hilmari og Gunn-
ari fyrir að styðja við félagið
með þessum hætti. Alls safnað-
ist rúmlega 200 þús. og munu
greiðsluseðlar berast til viðtak-
enda á næstu dögum.
Fjölmargir einstaklingar í
Vogum og víðar gáfu rausnarleg
áheit.
Bæjarstjórn sveitarfélagsins
Voga samþykkti að heita 69,5
kr. á hvern genginn km., auk
45% torfæruálags í samræmi við
akstursgjald ríkisstarfsmanna.
Fjölmörg fyrirtæki gáfu áheit og
má þar nefna Snertu ehf, Smart
húsgögn, Glersöluna, Ice Bike,
Nýmynd, Norma, Glitni og
Landsbankann.
Reykjanesbær:
Leitað að fjölskylduvænum
fyrirtækjum og stofnunum
Reykjanesbær - Leit stendur yfir að fjölskylduvænum fyrirtækjum og stofnunum . Ljósmynd: Oddgeir Karlsson.
410 4000 | landsbanki.is
Ungmennafélagið Þróttur í Vogum:
Þakkir til þeirra sem styrktu félagið
Tekið á móti göngugörpunum við heimkomuna. VF-mynd: elg.