Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 37
Betri borgarar 5Helgarblað 10. nóvember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Ferskleiki sem
stendur undir nafni
Þegar við byrjuðum með Íslenska barinn var ekki pælingin að vera
hamborgarastaður en ham-
borgararnir urðu bara strax
svo vinsælir hjá okkur og það
varð til þess að við stækkuð-
um hamborgaramatseðilinn
og núna bjóðum við upp á
sex ólíka hamborgararétti
ásamt borgara dagsins,“
segir Veronika á Íslenska
barnum, Ingólfsstræti 1a.
Staðurinn er rómaður fyrir
bæði frábæran mat og góða
kráarstemningu og úrvalið á
barnum er frábært.
Veronika segir að ein af
ástæðum vinsælda ham-
borgaranna í byrjun hafi verið
sú að Íslenski barinn varð
einna fyrstur til að bjóða upp
á vöfflufranskar kartöflur
með borgurunum, sem þótti
afar spennandi nýjung á
sínum tíma en núna eru þær
orðnar útbreiddar.
„Við erum með ferska
nautaborgara frá Kjötsmiðj-
unni. Það er mikilvægt nota
einungis ferskt gæðakjöt.
Hamborgari er ekki bara
hamborgari og almennilegt
hráefni gerir þetta að allt
annarri máltíð en það sem
við köllum vanalega skyndi-
bita. Alvörukjöt, fitubætt, og
engin aukaefni,“ segir Veron-
ika.
Ljúffengur frumleiki
einkennir vinsælustu ham-
borgara Íslenska barsins og
Veronika tekur sem dæmi
Sigguborgarann: „Sagan á
bak við Sigguborgarann er
sú að hún Sigga mamma
mín bakar pönnukökurnar
okkar og okkur langaði til
að gera eitthvað meira við
þær, þannig að við ákváðum
að leggja efra brauðinu og
erum með pönnuköku fyllta
með osti og beikoni í staðinn.
Þetta gerðum við að borgara
dagsins einu sinni en hann
varð svo rosalega vinsæll að
það var ekki annað í boði en
að setja hann á matseðilinn.“
Annað dæmi um frumleika
og vinsældir er lambaham-
borgarinn: „Það varð verkfall
hér um árið og það var ekki
til nautakjöt í landinu og þá
byrjuðum við með lamba-
borgarann. Íslendingar
voru ekki mjög spenntir fyrir
honum í byrjun en erlendu
ferðamennirnir tóku honum
fagnandi. Núna er hann hins
vegar orðinn mjög vinsæll hjá
Íslendingum líka. Segja má
að verkfallið hafi kennt fleiri
Íslendingum að meta lamba-
borgara.“
Bæði Sigguborgarinn og
lambaborgarinn eru mjög
vinsælir réttir og seljast í
miklu magni á hverjum degi.
Íslenski barinn býður líka upp
á hefðbundinn hamborgara
og hreindýraborgara sem
er algjört lostæti. Einnig eru
kjúklingaborgari og Haf og
hagi sem er nautaborgari
með djúpsteiktum íslenskum
humri.
Eins og áður segir
er Íslenski bar-
inn bæði vinsæll
veitingastaður og
skemmtistaður.
Opið er virka daga
frá 11.30 til eitt um
nóttina og um helg-
ar er opið til þrjú að
nóttu. Bjórúrvalið á
barnum er magnað
en í boði eru allir
íslenskir bjórar sem
fáanlegir eru í flösku
og dós. Eingöngu er
íslenskur bjór í boði
en úrvalið af íslensk-
um bjór er líklega
eitt það mesta í
heiminum, tegund-
irnar í augnablikinu
eru um 60.
Fólk hefur tekið ástfóstri
við hamborgarana á
Íslenska barnum
HráEfNIð SKIptIr SKöpum