Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 52
28 sakamál Helgarblað 10. nóvember 2017 K viðdómur í Shasta-sýslu í Bandaríkjunum komst þann 14. mars 2013 að þeirri niðurstöðu að Vanessa Kay Williamson, þá 27 ára, væri sek um morð á kærasta sínum, Daniel Ravnesh Khelaw- an, 28 ára frá Sacramento, 8. jan- úar árið 2010. Þann 22. apríl 2013 fékk Vanessa lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn. Rétt áður en dóm- ari í málinu gerði dóm sinn heyr- inkunnan fór Vanessa að kjök- ra óstjórnlega og sagðist saklaust fórnarlamb. „Ég vildi aldrei að nokkrum yrði gert mein,“ sagði hún og ítrekaði að hún hefði ekki tekið í gikkinn á þeirri byssu sem notuð var við morðið á Daniel. Enginn efi „Það var Robert sem tók í gikk- inn. Ég skil bara ekki af hverju allir eru að hamast í mér. Ég skil ekki af hverju öllu er dembt á mig,“ sagði Vanessa kjökrandi. Vanessa hafði nokkuð til síns máls; hún hafði ekki skotið Daniel til bana, en að mati dómara, sak- sóknara og kviðdóms lék enginn vafi á að ódæðið hefði verið undan hennar rifjum runnið. Kærasti númer tvö Nefndur Robert, fullu nafni Robert Lee James IV, var kærasti Vanessu, já, hún ku hafa átt þá tvo á þess- um tíma, lýsti, árið 2012, sig sekan um manndráp í mál- inu. Hann játaði sig einnig sek- an um ránstilraun og sitthvað fleira og að launum fyrir að vera jafn samvinnuþýður og raun bar vitni var hann dæmdur til 32 ára fangelsisvistar og sex mánuðum betur. Það var þó skoðun ákæru- valdsins að Vanessa hefði ginnt Robert til óhæfuverksins. Hugmynd um rán Þannig var mál með vexti að Daniel Ravnesh Khelawan vann við að keyra út lyfseðilsskyld lyf til hjúkrunarheimila og fleiri viðlíka stofnana. Vanessa fékk þá snilldarhug- mynd að hún og Robert létu til skarar skríða þegar Daniel væri í útkeyrslu og rændu lyf- junum og öllu fémætu. Í sjálfu sér ekki verri hugmynd en hver önn- ur þar til Vanessa og Robert gerðu sér grein fyrir að yfirgnæfandi líkur voru á að Daniel myndi bera kennsl á að minnsta kosti Vanessu. Fimm skot Talið var að Vanessu og Robert hefði orðið ljóst að Daniel yrði að deyja, því annars mundi hann einfald- lega vísa lögreglunni á þau. Saksóknari í mál- inu, Stephanie Bridgett, sagði að Vanessa hefði narrað Robert til að drepa Daniel með því að segja að hann sæti um hana hvar sem hún færi og hefði hótað henni og fjölskyldu hennar, þar á meðal ungri dóttur hennar. Hvað sem því líður þá var Daniel skotinn fimm skotum og Robert hélt á byssunni. Tár Vanessu undir lok réttarhaldanna breyttu í engu skoðun ákæruvaldsins. „Hún grætur sjálfrar sín vegna,“ sagði Stephanie Bridgett. n Dauði lyfjasenDils n Hugðu á skjótfenginn gróða n Ránið breyttist í morð„Það var Robert sem tók í gikkinn. Ég skil bara ekki af hverju allir eru að hamast í mér. Ég skil ekki af hverju öllu er dembt á mig. Planlagði rán Vanessa lagði á ráðin um glæpinn. Tók í gikkinn Robert var annar tveggja kærasta Vanessu. Fórnarlambið Daniel var skotinn fimm skotum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.