Ljósið - 01.02.1923, Side 1
LJOSIÐ
RITSTJÓRI: EINAR JOCHUMSSON
11. ár. Reykjavik, febrúar 1923. 1. blað
Jesús Kristur er Guö kristinna manna.
Kristindómur.
Herra biskup yfir ríkiskirkju lands vors, Jón Helga-
son! Eg hefi og skal bera fram nægar sannanir fyrir
því, að biblían, sem er gamalt, ófullkomið mannaverk,
er alls ekki letruð af þeim góða höfundi kristindómsins,
drottni vorum Jesú Kristi.
Fyrir sanna opinberun sem eg hefi fengið frá drottni
vorum og herra, er það ósannur heilaspuni úr mönnum
að nokkurt stríð hafi orðið í dýrðarríki guðs, og þriðji
partur af þjónum hins alvalda hafi gert uppreisn og
æðsti engillinn hafi gerst óvinur guðs og orðið að djöfl-
inum — höfðingja myrkravaldsins. — Djöfullinn hafði
ósigur og hrapaði því með púka sína í undirdjúpin.
Þetta er lygabull og er það gleðiefni til barna
drottins.
Kristindómur.
Sönn orð koma úr munni á mér, mjög gömlu í vígi,
dómkirkju í drottning er, dramblát, gömul lýgi.
Drottning elur synda sið, syndir kennir börnum,
heldur lýgi og heimsku við heimi í villu-gjörnum.