Ljósið - 15.03.1923, Page 1

Ljósið - 15.03.1923, Page 1
LJOSIÐ RITSTJÓRI: EINAR JOCHUMSSON 11. ár. Reykjavik, marz 1923. 3. blað Jesús Kristur er Guð kristinnci manna. Biskup landsins jón Helgason. Eg hryggist í anda af því eg vil af hjarta vekja athygli þína á þeirri nauðsyn, að breyta þarf guðfræði okkar íslendinga. Ennþá heldur þú áfram að bjóða oss á upplýstum tíma, sköpunarsögu töfravitringsins Mósesar —- þrátt fyrir það að allir kristnir mannvinir vita og skilja, að það er róman en ekki sönn viðburðasaga. Það er ekki sennilegt að ramgöldróttur villumaður eigi að leiða menn til réttrar guðs þekkingar. Saga Gyðingaþjóðar sannar að leiðtogar Gyðinga vóru stórglæpamenn og lygarar. Sannar það sagan um dómarann Samson, er drap fleiri þúsundir manna með gömlum asnakjálka og drakk sig afþyrstan af vatni úr kjálkanum, drepur sjálfan sig með því að fella turn ofan á sig með mörgu fólki í. Svona saga er hlægileg heimska og ótal sögur fleiri. — Abraham forfaðir Gyðinga gaf drotni og englum hans kálfsket og brauð að eta, og Sara, kona Abrahams, varð barnshafandi og átti ísak á níræðisaldri. Abraham ætlaði að deiða son sinn, en guð vildi ekki fórnina, þá brennir Abraham hrút, sem hékk í eik. Jakob, þriðji forfaðir Gyðinga, var slæg- vitur maður og mesti bragðarefur, er sagan sýnir. Kon- ungarnir þrír, Sál, Davíð og Salómon vóru hver á sinn máta glæpamenn, svifust einkis, ef þeirra hagur var að framkvæma níðingsverkin. Á þessum glæpamönnum byggja guðfræðingar kenningar sínar, mest á Davíð, er átti að vera maður eftir drottins hjarta.

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.