Ljósið - 15.07.1923, Side 3

Ljósið - 15.07.1923, Side 3
LJÓ SIÐ 3 Sjálfur Drottinn segir mér, sýslið lítt um kverið, aldrei vondur heiðinn her, á himnum getur verið. Sál mín er af frelsi full, frelsi Guðs þið metið, lýð þið bjóðið löngum bull, logið margt þið getið. Fyrirbrígðí. Egyptalands forni fjandinn, frelsi spillir voru enn, hann er þrældóms þrái andinn, er þrælkar börn og deyðir menn. Morðinginn hann Móeses, í manna ritning það eg les, strauk í burtu úr stóru landi, strákur hvarf á eiði sandi. Fyrirbrigði fjandinn gerði, frjálsan drap hann mann með sverði, loddara hann list þá lærði, lifandi fólkið fjandinn ærði. Framdi satan Fróðár undur, fjölkunnugur laufa lundur, Guðlaus vondur galdra hundur, gott lögmálið braut í sundur. Bíblíuna bræður sjá, bókin fúnar hillum á, mörg þar eru myrkraverk, af mönnum framin æði sterk. Kristur rétta kendi trú, kannist við það bræður nú, hann er Drottinn himnum á, hefir aldrei dáið sá. Einar Kvaran ekki kann, upp að vekja nema drauga. Eg segi nafna sannleikann, sannan guð á ekki spauga. Fyrirbrigði forn og ný, fúna öllum löndum í, allir Kristi eiga trúa, ei að smælingjum má ljúga.

x

Ljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.