Víkurfréttir - 27.02.2014, Síða 1
Þrettán manns bjóða sig fram í prófkjöri Sjálf-
stæðismanna í Reykjanesbæ
sem fram fer á laugardag.
Óhætt er að segja að óvæntri
„sprengju“ hafi verið varpað í
vikunni þegar Gunnar Þórar-
insson, forseti bæjarstjórnar
og 2. maður á lista flokksins
við síðustu kosningar, sagð-
ist ætla beita sér fyrir því að
ráðinn yrði nýr og ópólitískur
bæjarstjóri, fengi hann til þess
brautagengi í prófkjörinu.
Gunnar býður sig fram í 1.-2.
sætið.
„Ráðinn verði karl eða kona sem
er fagmaður í rekstri og bein-
tengist ekki stjórnmálaöflum í
bæjarfélaginu,“ segir Gunnar
í grein á vf.is og í auglýsingu í
Víkurfréttum.
Það vakti einnig athygli að í
stuðnings-auglýsingu sem birt
var í Víkurfréttum,
t i l handa Árna
Sigfússyni, bæjar-
stjóra, skrifa undir
hana allir núver-
andi bæjarfulltrúar
utan Gunnars, for-
menn allra ráða
flokksins sem og
nær allir frambjóð-
endurnir í próf-
kjörinu.
Flokkurinn var með sjö bæjar-
fulltrúa eftir síðustu kosningar
og hefur verið með hreinan
meirihluta þrjú síðustu kjör-
tímabil í bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar. Í skoðanakönnun sem
gerð var nýlega hélt flokkurinn
meirihlutanum en með sex
bæjarfulltrúum í stað sjö áður.
Úrslit úr prófkjörinu verða birt
um leið og nýjustu tölur berast
á vef Víkurfrétta á laugardaginn.
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 27. FEBRÚAR 2014 • 8. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
20%
afsl
átt a
f Nu
trile
nk G
old
TILB
OÐ
VIKU
NNA
R
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Frábært
vöruúrval
og þjónusta
í Reykjanesbæ
16% afsláttur
12% afsláttur
Lyfja Reykjanesbæ
Krossmóa 4
Sími 421 6565
www.lyfja.is
Afgreiðslutími:
mán.–fös. 9–19
laugard. 10–16
sunnud. 12–16
Betri kjör fyrir heldri borgara
Félagar í Félagi eldri borgara
á Suðurnesjum njóta sérkjara
í Lyfju Reykjanesbæ.
Við stefnum að vellíðan.
Herþotugnýr og hamagangur í loftrýmisgæslu NATO og
samnorræna þjálfunarverkefninu
Iceland Air Meet 2014, sem stóð
yfir í febrúar á Keflavíkurflug-
velli og nágrenni, skilar Suður-
nesjamönnum viðskiptum upp á
hundruð milljóna króna.
Samtals voru þessir þrír herir; Svía,
Norðmanna og Finna með á fjórða
hundrað manns í Reykjanesbæ í
febrúar en auk þeirra starfaði fjöldi
heimamanna við loftrýmisverkefnið
en það hefur verið hér reglulega frá
því Varnarliðið fór frá Keflavík 2006,
með manni og mús. Hópurinn flutti
gríðarlega mikið af búnaði til Kefla-
víkurflugvallar en m.a. tóku 18 her-
þotur og flugvélar og tvær þyrlur þátt
í verkefninu.
Svona NATO verkefni skilur eftir sig
viðskipti við aðila á Suðurnesjum
upp á hundruð milljónir króna. Því
er nú lokið en á meðan það stóð
yfir var öll hótelgisting nýtt en um
helmingur hópsins gisti á hótelum
en hinn hlutinn í íbúðum á gamla
varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Veitingastaðir og fleiri þjónustuað-
ilar nutu góðs af heimsókn frænda
okkar frá Skandinavíu. Einn þessara
aðila var veitingafyrirtækið Menu
Veitingar sem er með aðsetur í gamla
Yfirmannaklúbbnum á Ásbrú.
„Svona heimsóknir koma mjög sterkt
inn í okkar rekstur og skipta okkur
miklu máli. Við vorum að útbúa um
tólf hundruð máltíðir á dag þegar
hópurinn var hér nær allan febrúar.
Næsta heimsókn verður í maí þegar
Bandaríkjamenn koma og sinna loft-
rýmisgæslu frá Keflavíkurflugvelli.
Þá verða steiktar stórsteikur eins og
forðum daga hér í gamla Yfirmanna-
klúbbnum á Vellinum,“ sagði Ás-
björn og lofaði samstarf við alla aðila
sem koma að loftrýmisgæslunni,
bæði Íslendingana og útlendingana.
Í Sjónvarpi Víkurfrétta
í kvöld kl. 21:30
Heimsókn í Menu Veitingar og inn-
slag um Iceland Air Meet 2014 er
hluti af efni í 3. Suðurnesjaþætti
Sjónvarps Víkurfrétta sem sýndur
er í kvöld á ÍNN kl. 21:30, á Kapal-
væðingu Suðurnesja og á Víkur-
fréttavefnum, vf.is.
-Suðurnesjafyrirtæki njóta góðs af Loftrýmisgæslu NATO
Hundruð milljóna hagnaður af herþotugný
ÞRETTÁN Í PRÓFKJÖRI
SJÁLFSTÆÐISMANNA
Ástandið á jarðvegslosunarsvæði Reykjanesbæjar á Stap-anum, rétt innan við byggðina í Dalshverfi, er skelfilegt. Þar
fara umhverfissóðar í skjóli myrkurs og jafnvel um hábjartan
daginn og losa sig við rusl sem alls ekki má losa á þessum stað.
Meðfylgjandi ljósmyndir tók ljósmyndari Víkurfrétta á losunar-
svæðinu sl. föstudag og það þarf ekki að hafa mörg orð um það sem
sést á myndunum. Ástandið er skelfilegt, svo vitnað sé til íbúa sem
hafði samband við blaðið og blöskraði ástandið.
Á svæðinu eru að myndast risastórir haugar og rusl og drasl fýkur
um allar jarðir og yfir byggðina í Innri Njarðvík. - Sjá nánar vf.is
Skelfilegt ástand á Stapa
- ruslið fýkur yfir Reykjanesbæ