Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2014, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 27.02.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 27. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14 Getur það hugs-ast að vorið sé að banka á dyrnar? Gaman ef væri, þótt enn sé aðeins febrúar. Hvað boða þessar 6 heiðlóur sem sáust á Seltjarnarnesinu annað en vor. Þær sáust síðast í nóv- ember og því mætti ætla að þessar væru fyrstu vorboðarnir. Í bernsku dvaldi ritari löngum hér úti á Garð- skaga hjá ömmu og afa og síðar móðurbróður og fjölskyldu hans. Sá var í mörgu sérstakur maður, sann- kallað náttúrubarn, hávaðasamur og veðurbarinn, enda alltaf að kallast á við útsynninginn. Hann hafði hins vegar þá sérstöku eiginleika að líta á alla viðmælendur sem jafningja, hvort sem um börn eða fullorðna var að ræða. Hann var einn af fyrstu áhugamönnum um fuglamerkingar sem á þeim tíma var grundvöllur að þekkingu á ferðum og lífsháttum far- fugla sem menn vissu harla lítið um. Snörur voru lagðar í ilmandi þarann í fjörunni, fuglarnir veiddir og hring- merktir. Seinna bárust tilkynningar um fund þeirra á fjarlægum stöðum, eftir að þeir höfðu fundist dauðir eða verið skotnir. Þannig aflaðist þekking um ferðir þeirra og að nokkru leyti um aldur. Sagnir lifðu um hátterni Frakka sem sagðir voru éta þúfutitt- lingsungana beint upp úr hreiðrinu, marineraða í rauðvíni. Fyrir ungan dreng voru það viss forréttindi að fá að kynnast náttúrunni á þennan hátt og beinlínis vera þátttakandi í vís- indastarfi áhugamannsins. Heiðlóan skipaði ætíð sérstakt virðingarsæti í allri umgengni við fugla, hún bar af, sannkölluð þokkadís, hnarreist, hógvær og ætíð boðskapur um eitt- hvað eðlislega gott, hvar sem maður rakst á hana. Aldrei hefur ritari heyrt heiðlóu hallmælt. Það bar stundum til að í henni heyrðist á dimmum desemberkvöldum niðri í fjöru, eins hún væri að kveðja með angurværum rómi. Henni var óskað góðrar ferðar á langri leið yfir höfin og væntingar um endurkomu látnar í ljós. Að hún birtist í febrúarmánuði lét enginn sér detta í hug, hennar mánuður var apr- íl. Krían kom 11. maí glaðklakkaleg og uppveðruð, en aldrei fyrr á Garð- skagann. Enda lét heldur engum sér detta í hug að rækta rósir í þá daga. Gæti það hugsanlega verið, að þessar 6 heiðlóur af Seltjarnarnesinu hafi dvalið hér í allan vetur, líkt og sumir farfuglar, sem eru í reynd að dvelja n Konráð Lúðvíksson, formaður skrifar: Vorverkin í garðinum Þegar þú kaupir Lancôme vörur fyrir 8.900 eða meira færum* við þér snyrtibuddu fulla af spennandi vörum *E in n ka up au ki á við sk ip ta vin . G ild ir m eð an b irg ði r e nd as t. Tilboðið gildir í Lyfju Keflavík - sími 421 6565 www.lyfja.is TILKOMUMIKIL AUGU á einfaldan hátt HYPNÔSE DRAMA EYES SKUGGAPALLETTUR & MASKARI Augnförðun hefur aldrei verið eins auðveld. Sjáðu meira á Lancome.com LANCÔME KYNNING OG FÖRÐUN FYRIR GÓUGLEÐINA FIMMTUDAGINN 27. OG FÖSTUDAGINN 28. FEBRÚAR KRISTJANA GUÐNÝ LANCÔME NATIONAL MAKE-UP ARTIST OG ÞÓRUNN GUNNARSDÓTTIR FÖRÐUNARMEISTARI FARÐA Í LYFJU Á FÖSTUDAG kl. 12 – 18. Kynning fImmtudag kl. 13 – 18 og föstudag kl. 11 – 18. Frábær afsláttur og kaupaukar. Vertu velkomin við aðstoðum þig með allt sem þig vantar. Þeim sem kaupa Lancôme vörur fyrir 8.900 eða meira býðst förðun á föstudag. Nauðsynlegt er að panta tíma. 25% K Y N N I N G A R -A F S L Á T T U R A F Ö L L U M L A N C Ô M E V Ö R U M . BALDUR Í 4. SÆTIÐ – E N G I N S P U R N I N G 4. SÆTI -aðsent pósturu vf@vf.is hér í auknum mæli allt árið? Slíkar hafa veðrabreytingar orðið á undan- förnum árum, að við lifum við gjör- breyttar aðstæður. Ritari á samt erfitt með að trúa að fuglar séu farnir að flýja bresku eyjarnar í leit að betri skilyrðum á Íslandi, eins og gefið hefur verið í skyn, skárra væri það. Hvað sem öðru líður hvetur heiðlóan okkur til verka – við eigum að vaka og vinna, annars gerist fátt. Við hjá Suðurnesjadeild Garðyrkju- félags Íslands ætlum að hefjast handa og hefja fræðslustarfsemi vorsins. Við ákváðum að finna nýjar víddir í fræðslustarfseminni og taka fyrir verkefni sem ekki hefur verið minnst á áður eins og ræktun fjölæringa, grjót og tjarnir í garðinum, auk þess sem við hugsum okkur að fá nokkra garðeigendur á Suðurnesjum til að koma saman og ræða um það sem vel hefur tekist í þeirra garði og stendur upp úr. Í okkar nánasta ranni er t.d. einstaklingur sem tekist hefur afburða vel með grasflötina sína. Hann gæti hugsanlega opinberað sitt leyndarmál. Ritari veit reyndar að hann þekur flötina með sandi og sáir grasfræi á hverju vori. Ekki tókst betur en svo hjá ritara að fræið fauk út í blómabeðin til mikillar armæðu, en flötin fúl sem áður. Þá langar okkur að fá til okkur svokallaðan garðanörd, en það er einstaklingur sem nánast sefur í garðinum sínum, merkir hverja einustu plöntu og sópar grasflötina á hverjum degi. Hann býr sér einnig til eigin drykki úr garð- inum, sápu eða áburð og er fullkom- lega sannfærður um eigið ágæti. Í sumar hugsum við okkur að heim- sækja garða á Suðurnesjum, þegar þeir eru í blóma, gjarnan undir góðri leiðsögn. En fyrst eru það vorverkin. Hvenær á að byrja og hvað má gera? Ritari vonar að þeir sem ætla að sá fyrir eigin sumarblómum séu farnir að huga að því. Febrúarmánuður er mánuður sumarblómasáningar en mars garðplantanna. Veljið góðan vesturglugga í húsinu, fáið ykkur sáð- mold og bakka, vætið moldina vel áður en sáð er og þekið síðan fræin með örlitlu lagi af mold. Það gefst vel að setja síðan bakkann í glæran plastpoka á meðan fræin spíra til að forðast ofþornun. Athugið að sólar- ljósið í suðurglugga getur verið svo sterkt að plönturnar hreinlega soðna eða verða veiklulegar. Við erum svo heppin að Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur og fræðslustjóri Garðyrkjufélags Íslands ætlar að hefja fundarröðina með okkur og fjalla um vorverkin. Hann mun beina athyglinni að vörnum við illgresi og óværu á garðplöntum og runnum. Þá tekur hann fyrir gras- flötina sem mörgum reynist erfið að viðhalda fallegri, auk þess að fjalla um grundvallaratriði í trjáklippingu. Við eigum von á vörukynningu frá Litlu garðabúðinni sem selur afar skemmtilegan klæðnað fyrir kon- urnar í garðinum (Garden Girl) auk almennra ræktunarvara. Við hvetjum ykkur áhugafólk að koma, því þið takið alltaf eitthvað með ykkur heim og skiljið gjarnan annað eftir hjá okkur hinum til gagns. Fundurinn verður haldinn í Hús- inu okkar (K-húsið) við Hringbraut fimmtudaginn 27. febrúar og hefst kl. 20 að vanda. Aðgangseyrir 500 fyrir alla, léttar veitingar í fundarhléi. Konráð Lúðvíksson, formaður

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.