Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 4

Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 4
Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.jeep.is www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 ® ALLT SEM ÞÚ ÞARFT Í JEPPA LITLI BRÓÐIR GRAND CHEROKEE DÍSEL 2.0L 140 HÖ. EÐA 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF MEÐ 4 DRIFSTILLINGUM VERÐ FRÁ 5.890.000 KR. Select-TerrainTM fjórhjóladrif með 4 drifstillingum, árekstravörn, akgreinaaðstoð, leður/tau áklæði, hiti í stýri og framsætum, hraðastillir, snertiskjár, regnskynjari, LED ljós að framan og aftan,Bluetooth, leðurklætt aðgerðarstýri, varadekk í fullri stærð, 17” álfelgur o.fl. Einnig fáanlegur með 170 hö. bensínvél, sjálfskiptur. Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, boðar breytingar í verkalýðsbarátt- unni. Hún tók fram að raun- sönn kröfugerð í kjaraviðræðum yrði ekki lögð fram nema stjórnin væri búin að ráðfæra sig við félags- menn. Kröfurnar ættu að berast frá þeim. Framboð Sólveigar og félaga hennar á B-listanum fékk 80 prósent greiddra atkvæða í kosningum til stjórnar Eflingar. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra stóð af sér van- trauststillögu Samfylkingar og Pírata á Alþingi. Gagnrýndu flokkarnir vinnubrögð ráð- herra við skipan dómara í Landsrétt og bentu á að Hæstiréttur hefði komist að þeirri niðurstöðu að dómsmála- ráðherrann hefði með vinnu- brögðum sínum brotið lög. Sigríður kvaðst hafa fylgt lagabók- stafnum við skipan dómaranna. Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi ráðherra kvaðst hafa þekkt séra Ólaf Jóhannsson, sem er sekur um siðferðisbrot að mati úrskurðar- nefndar þjóð- kirkjunnar, að góðu einu. Rifjað var upp að í bréfi til brotaþola hafi Valgerður skrifað að séra Ólafur hefði séð um „litlu jólin“ í klúbbi í Vesturbæjarlaug- inni ár hvert og hefði hann gert það mjög vel. Þrjú í fréttum Breytingar og vantraust TÖLUR VIKUNNAR 04.03.2018 TIL 10.03.2018 16.290 krónur á tímann fá þeir sem sitja í kjararáði. Laun þeirra hafa hækkað um 62,9 prósent á 10 árum. 24,9% var raunhækkun á íbúðaverði hér á landi frá þriðja ársfjórðungi 2016 til þriðja ársfjórðungs 2017. Á evrusvæðinu var raunhækkunin 2,9 prósent. 56% kvenna 43% karla á aldrinum 25-64 ára á höfuð- borgarsvæðinu voru með háskóla- menntun árið 2017. Utan höfuð- borgarsvæðisins var 41 prósent kvenna með háskólamenntun en 20 prósent karla. 16,3 milljörðum króna nam hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur í fyrra. Árið 2016 nam hagnaðurinn tæplega 13,4 milljörðum. var aukning lands- framleiðslu að raungildi á árinu 2017. Einkaneysla og fjárfesting vógu þyngst í vexti landsfram leiðslunnar en alls jukust þjóðarútgjöld um 6,8 prósent. Einka neysla jókst um 7,8 prósent, samneysla um 2,6 prósent og fjár- festing um 9,3 prósent. 1.428 3,6% einstaklingar höfðu í lok janúar beðið lengur en 90 daga eftir að- gerð á Landspítalanum en alls biðu þá 3.400 eftir aðgerð. „Ég mun láta reyna á allt fyrir dóm- stólum. Ég mun gera allt sem ég get til þess að reyna að sameina þessa fjölskyldu,“ segir Stefán Karl Krist- jánsson, lögmaður foreldra sem standa frammi fyrir forsjársviptingu yfir tveimur dætrum þeirra af þrem- ur, vegna ásakana um vanrækslu. Stúlkurnar eru sextán ára, þriggja ára og fjögurra mánaða. Tvær yngstu hafa verið teknar af foreldrum sínum, þar af var önnur þeirra aðeins tveggja daga þegar farið var með hana á annað heimili. Foreldr- arnir fá að hitta börnin í einn og hálfan tíma í senn á mánaðarfresti, og að sögn Stefáns er miðjubarnið farið að tapa móðurmáli sínu. Foreldrarnir, Arleta Kilichowska og Adam Lechowicz, eru meðal annars sakaðir um að hafa í nokkur skipti sent miðjubarnið með nætur- bleyju á leikskólann, með þeim afleiðingum að barnið brann á bleyjusvæðinu. Arleta fullyrðir að barnið sé með viðkvæma húð og hún hafi bent leikskóla og barnavernd á það ítrekað. Þá eru börnin sögð hafa verið þreytt og gráleit í framan á morgnana, og steininn tók svo úr þegar elsta stúlkan sakaði móður sína um líkamlegt ofbeldi. Stúlkan dró þann framburð síðar til baka. Hún býr enn hjá foreldrum sínum. „Samskipti mín og elstu dóttur minnar voru oft erfið. Hún er á þeim aldri sem unglingar fara oft í uppreisn, og ég veit ég gerði mörg mistök,“ segir Arleta. Hún segir þær mæðgur hafa rifist mikið því dóttir hennar hafi stöðugt farið til Reykja- víkur í leyfisleysi. „Dóttir mín fór að segja alls konar lygasögur. En hún sá ekki að sögurnar gætu haft þessar afleiðingar.“ Stefán Karl gagnrýnir vinnu- brögð Barnaverndar. Hann segist sérstaklega ósáttur við þá ákvörðun nefndarinnar að hafna beiðni um að börnin yrðu vistuð hjá föðurfjöl- skyldu þeirra. „Það er alltaf ástæða fyrir því að barnavernd fer út í svona mál. Það er ekki til hið fullkomna foreldri. En síðan er það spurning hvernig mál þróast. Í þessu tilviki erum við að tala um fólk sem er ekki í neyslu og á ekki við drykkjuvanda að stríða. Þau eru ekki fullkomin en þessar ásakanir og aðgerðir sem lagt er upp með eru langt frá því að vera það sem eðlilegt getur talist,“ segir hann. „Ég veit ekki hvernig við myndum samþykkja að svona yrði farið með íslenska ríkisborgara erlendis, að vera vistaðir í umhverfi þar sem þeir geta ekki ræktað íslenska tungu. Þetta er óskaplega ljótt mál og við myndum aldrei samþykkja svona framkomu.“ Ítarlega er rætt við foreldrana á nýjum vef Fréttablaðsins frettabla- did.is, bæði í hljóði og mynd. sunnakaren@frettabladid.is Börnin að tapa móðurmálinu Pólskir foreldrar heyja baráttu við barnavernd um að fá tvö börn sín til baka. Annað barnið er farið að tapa móðurmáli sínu og á erfitt með að tjá sig við fjölskyldu sína. Lögmaður þeirra gagnrýnir málsmeðferðina. Arleta og Adam fluttu hingað til lands árið 2014 og eru nú búsett á Hellu. FréttAblAðið/SteFán Þau eru ekki fullkomin en þessar ásakanir og aðgerðir sem lagt er upp með eru langt frá því að vera það sem eðlilegt getur talist. Stefán Karl Krist- jánsson lögmaður 1 0 . m A R s 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R4 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A ð I ð 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -9 A 0 8 1 F 2 9 -9 8 C C 1 F 2 9 -9 7 9 0 1 F 2 9 -9 6 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.